Categories
Fréttir

„Við erum mikilvægt afl í íslensku samfélagi, afl umbóta, afl Framsóknar fyrir landið allt.“

Deila grein

25/11/2019

„Við erum mikilvægt afl í íslensku samfélagi, afl umbóta, afl Framsóknar fyrir landið allt.“

Ræða Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknar, á haustfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins 23.-24. nóvember 2019 í Hofi, menningarhúsi Akureyrar.

***

Kæru félagar!

Í kringum kosningar til Alþingis árið 2017 sýndu kannanir að 74 prósent kjósenda vildi sjá Framsókn í ríkisstjórn. Fólk var orðið þreytt á vígamóðum stjórnmálum og vildi sjá festu og jafnvægi í stjórn landsins eftir erfið ár frá hruni. Á þessum grunni og þeim skýru skilaboðum sem kjósendur gáfu í kosningum þar sem mynduð var stjórn með megináherslu á uppbyggingu innviða samfélagsins sem höfðu látið á sjá í þeim miklu niðurskurðarárum eftir hrunið.

Stórsókn í samgöngum, stórsókn í menntamálum, stórsókn í heilbrigðismálum og stórsókn í lífsgæðum. Sú ríkisstjórn sem við sitjum í undir forystu Katrínar Jakobsdóttur hefur unnið af krafti að stórum málum sem varða lífsgæði allra Íslendinga.

Framsókn hefur í þessu farsæla samstarfi við Vinstri-græn og Sjálfstæðisflokk unnið að heilindum fyrir landsmenn alla að því að koma í framkvæmd þeim stefnumálum sem við settum á oddinn í kosningabaráttunni og ég er stoltur af árangrinum. Stærsta einstaka framfaramál ríkisstjórnarinnar til þessa er gerð Lífskjarasamningsins sem er undirstaða jafnvægis og Framsóknar í íslensku samfélagi. Í tengslum við hann hefur tekist að koma baráttumáli Framsóknar síðustu árin, afnámi verðtryggingar, á góðan rekspöl.

Húsnæðismálin sem við lögðum svo mikla áherslu á í kosningabaráttunni eru þungamiðjan í lífskjarasamningunum og sýnir það svo ekki verður um villst þá sterku tengingu sem við sem flokkur höfum við alþýðu landsins.

Samfélag okkar er ekki fullkomið en það stendur framarlega í samanburði við aðrar þjóðir samkvæmt öllum alþjóðlegum mælikvörðum. Sú staða hefur náðst með öflugri þátttöku Framsóknar í stjórn landsins þá rúmu öld sem flokkurinn hefur starfað. Við höfum unnið með flokkum til hægri og til vinstri og í þetta sinn spannar ríkisstjórnin sem við störfum í litróf stjórnmálanna á Íslandi frá vinstri til hægri, nokkuð sem verður að teljast einstakt í heimi þar sem stjórnmálin einkennast nú um stundir af miklum öfgum til hægri og vinstri.

Þessi stjórn var svarið við ósk kjósenda um jafnvægi og Framsókn í mikilvægum málum. Getum við ekki öll verið sammála um það?

Og af hverju vildu íslenskir kjósendur svo margir sjá Framsókn við stjórn landsins? Samvinnan er okkur í Framsóknarflokknum í blóð borin. Flokkurinn okkar er ekki stofnaður eftir forskrift alþjóðlegra kreddna heldur sprettur hann upp úr íslenskum jarðvegi þar sem krafan var og er enn að jafnvægi ríki í samfélaginu.

Að mínu mati er eitt það fallegasta og mikilvægasta við íslenskt samfélag að hér er félagslegur hreyfanleiki einn sá mesti á byggðu bóli, ef ekki sá mesti. Fólki er með öflugu menntakerfi og sterku félagslegu neti gert kleift að láta hæfileika sína blómstra. Það er ekki aðeins mikilvægt fyrir einstaklinginn heldur samfélagið allt að hæfileikar fólks geti verið grunnur að betra lífi, meiri lífsgæðum.

Ísland er land tækifæranna. Við erum flokkur umbóta.

Sjávarútvegur

Undanfarnar vikur hefur samfélagið verið skekið af því sem í almennu tali er nefnt Samherjamálið. Fólk er eðlilega reitt. Reitt yfir þessu framferði stórfyrirtækisins sem birtist í umfjölluninni en ekki hvað síst reitt yfir þeim aðstöðumun sem stórfyrirtæki og almenningur búa við. Framsóknarflokkurinn kom að því á sínum tíma að setja á kvótakerfi í fiskveiðum. Það var stórkostlegt hagsmunamál fyrir þjóðina að fiskveiðar við Ísland væru sjálfbærar og gengju ekki á auðlind þjóðarinnar, fiskimiðin.

Ég leyfi mér að fullyrða að á þeim tíma datt engum til hugar að staðan árið 2019 yrði sú að svo fá fyrirtæki væru með svo stóran hlut kvótans. Og ekki nóg með það heldur farin að banka í hámarksþakið. Það er auðvitað gleðilegt og jákvætt að íslenskur sjávarútvegur sé með þeim fremstu, ef ekki sá fremsti, í heiminum. Það breytir því ekki að umbóta er þörf.

Fyrr á árinu var í samráðsgátt stjórnvalda nýtt auðlindaákvæði stjórnarskrár sem er hluti af þeirri markvissu vinnu ríkisstjórnarinnar í umbótum á stjórnarskránni. Ég tel gríðarlega mikilvægt að slíkt auðlindaákvæði sé í stjórnarskrá íslensku þjóðarinnar.

Auðlindir náttúru Íslands tilheyra íslensku þjóðinni. Nýting auðlinda skal grundvallast á sjálfbærri þróun.

Náttúruauðlindir og landsréttindi sem ekki eru háð einkaeignarrétti eru þjóðareign. Enginn getur fengið þessi gæði eða réttindi tengd þeim til eignar eða varanlegra afnota. Handhafar löggjafarvalds og framkvæmdarvalds fara með forræði og ráðstöfunarrétt þeirra í umboði þjóðarinnar.

Veiting heimilda til nýtingar á náttúruauðlindum og landsréttindum sem eru í þjóðareign eða eigu íslenska ríkisins skal grundvallast á lögum og gæta skal jafnræðis og gagnsæis. Með lögum skal kveða á um gjaldtöku fyrir heimildir til nýtingar í ábataskyni.

Þótt slíkt ákvæði sé mikilvægt þá dugar það ekki eitt og sér. Það verður að ríkja sátt um nýtingu auðlinda okkar, hvort heldur er orka, land eða fiskimið. Árin 2014 og 2015 lagði ég sem sjávarútvegsráðherra í mikla vinnu við frumvarp um stjórn fiskveiða, vinnu sem byggðist á tillögum sáttanefndar þar sem að komu fulltrúar allra stjórnmálaflokka og hagsmunaaðilar. Það frumvarp fól í sér að í sjávarútvegsfyrirtæki gerði samning um kvóta til ákveðins tíma, 23 ára, sem undirstrikar eign þjóðarinnar á auðlindinni en gefur sjávarútvegsfyrirtækjunum tækifæri til langtímahugsunar og býr til fyrirsjáanleika.

Frumvarpið komst ekki inn til þingsins vegna mikillar andstöðu samstarfsflokksins. Ég tel að grunnur að sátt um sjávarútveginn felist í þessu frumvarpi og því að lækka hámark kvótaþaks, bæði í heildaraflaheimildum og í einstökum tegundum, og vinna þannig að aukinni dreifingu kvóta.

Frumvarpið hefði haft mikil áhrif á samfélagið og stuðlað að meiri sátt, meira jafnvægi í samfélaginu.

Það hefði haft áhrif á þróun byggðar því sjávarútvegurinn er einn af burðarásum í atvinnu og verðmætasköpun um allt land. Kvótakerfið var ekki búið til svo nokkrir einstaklingar gætu orðið ofurríkir.

Það var ekki búið til svo þeir fjármunir sem urðu til við aukna verðmætasköpun færu á flakk milli reikninga á aflandseyjum.

Það var búið til svo Íslendingar allir gætu notið hagsbóta af öflugum íslenskum sjávarútvegi. Umbætur í sjávarútvegi eru nauðsynlegar og tímabærar. Og Framsókn mun beita sér fyrir þeim.

Því Ísland á að vera land tækifæranna. Og Framsókn er afl umbóta í íslensku samfélagi. Ekki flokkur byltinga. Flokkur umbóta.

Það þarf ekki mikið innsæi til að átta sig á því að við erum sem þjóð ekki búin að jafna okkur eftir hrunið og þau miklu svik sem almenningur upplifði þegar heilt bankakerfi hrundi. Ofan í það komu Panama-skjölin og nú Samherjamálið. Margir upplifa það kerfi sem við höfum byggt upp sem ófullkomið og máttvana til að standa vörð um hagsmuni almennings.

Á þessum stundum hljóðna líka í smá stund þær raddir sem hæst hafa um „ofvaxnar“ eftirlitsstofnanir og of flókið og íþyngjandi kerfi. Því markaðurinn þarf jú ekki eftirlit því hann sér um það sjálfur! Þennan söng heyrðum við á árunum fyrir efnahagshrunið. Segir ekki einhvers staðar að skilgreiningin á brjálæði sé að gera sömu mistökin aftur og aftur? Frelsi er mikilvægt en án ábyrgðar er frelsið lítils virði.

Jarðarmál

Og talandi um frelsi. Við heyrum af því fréttir að einn auðmaður frá Bretlandi hafi keypt upp hátt á annað prósent landsins. Ef 99 aðrir slíkir auðmenn gerðu slíkt hið sama væri ekkert eftir. Sættum við okkur að innan við hundrað einstaklingar geti átt allar jarðir á Ísland? Enginn sættir sig við í nafni viðskiptafrelsis að hægt sé að kaupa heilu dalina eða héruðin.

Uppkaup jarða geta skaðað fullveldi landsins. Þau hafa áhrif á samfélagsgerðina. Slík jarðasöfnun dregur kraft úr byggðum landsins. Dæmin sýna að heilu landsvæðunum er lokað fyrir frjálsri för. Við viljum ekki sjá slíka auðlindasöfnun. Eignarhaldi er leynt og auk þess ógagnsætt.

Þessi þróun gengur gegn hugsun Framsóknar. Verkefni Framsóknar er að tryggja fjölbreytta nýtingu auðlindar í þágu samfélags og þjóðar.

Í regluverkinu verður að taka á öllum þessu þáttum. Punktur.

Við fáum reglulega fréttir af því að einhverjir velji sér þá leið að færa fjármuni í flóknum fléttum til aflandseyja hér og þar í heiminum. Það er sorglegt til þess að hugsa að fólk og fyrirtæki sjái ekki sóma sinn í að deila kjörum með þjóðinni sinni og flytji peningana í skattaskjól. Ég held ég tali fyrir hönd mikils meirihluta þjóðarinnar þegar ég segi: Þessu verður að linna. Hættið að fela peningana. Takið þátt í að byggja betra samfélag.

Byggðamál

Framsókn á uppruna sinn í sveitum landsins líkt og íslenska þjóðin. Það hefur ætíð verið skýr stefna flokksins að horfa á landið sem eina heild. Nú horfir svo við að um 84 prósent landsmanna búa á einu horni landsins sem er afmarkað af Hvíta í Borgarfirði og Hvítá í Árnessýslu. Þróunin hefur verið hröð og þróunin hefur verið studd af ákvörðunum stjórnvalda sem hafa komið nær öllum störfum ríkisins fyrir á höfuðborgarsvæðinu. Það er bara einn flokkur sem hefur flutt stofnanir út fyrir höfuðborgarsvæðið og það er flokkurinn okkar.

Það er stefna okkar, nú sem fyrr, að byggðir um allt land séu blómlegar. Við viljum að fólk geti búið og starfað um allt land. Ljósleiðaravæðing landsins, Ísland ljóstengt, er einstakt verkefni í heiminum og hefur vakið athygli víða enda verður sú staða að árið 2021 verði 99,9 prósent fyrirtækja og heimila komið í samband við háhraða-net. Það er grundvallaratriði til þess að byggð geti dafnað um allt land í þeim miklu breytingum sem eru framundan og nefndar hafa verið fjórða iðnbyltingin.

Í sáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að auglýsa störf án staðsetningar með það að markmiði að fjölga opinberum störfum utan höfuðborgarsvæðisins. Ráðuneyti mitt hefur farið á undan með góðu fordæmi og er fyrsta ráðuneytið til að ráða samkvæmt þessari stefnu. Reynslan er góð og kemur það mér ekki á óvart.

Það er ekki aðeins mikilvægt að hæft fólk um allt land geti starfað í stjórnarráðinu. Reynsla og þekking sem fylgir fólki frá ólíkum svæðum eru verðmæt fyrir stjórnarráðið og þá miklu stefnumótun sem fer þar fram.

Loftslagsmál

Umræðan um loftlagsmálin er áberandi í samfélaginu um þessar mundir. Eðlilegt er að litið sé til þeirra aðvarana sem helstu sérfræðingar á þessu sviði hafa haft uppi um langt skeið. Loftlagsvandinn er verkefni okkar allra og er ánægjulegt að flokkurinn sé að leggja sérstaka áherslu á vandann í starfi sínu með stofnun sérstaks vettvangs flokksmanna. Við eigum ekki, og megum ekki, eyða orku í að taka þátt í popúlískum rifrildum sem drifin eru áfram af hagsmunaöflum olíufyrirtækja.

Við hljótum að taka mark á þeim yfirgnæfandi fjölda sérfræðinga sem hafa ekki aðeins bent á hættuna heldur einnig komið með leiðir til að koma í veg fyrir hamfarir sem fylgja hlýnun jarðar og súrnun sjávar. Það er rétt að efast, það er rétt að gagnrýna, en að aðhafast ekkert og vona það besta er einfaldlega ekki boðlegt fyrir framtíðarkynslóðir.

Í loftlagsmálunum reynir ekki síst á ungt fólk í stjórnmálum sem hlýtur að verða framarlega í því að leita lausna við þessum vanda sem kemur ekki niður á lífsgæðum okkar og leggur ekki alla ábyrgð á herðar einstaklinga heldur einnig fyrirtækja og þjóða. Ég treysti því að ungir framsóknarmenn verði framarlega í þessari umræðu og leyfi mér að vitna í ræðu Eysteins Jónssonar frá stofnun Landssambands ungra framsóknarmanna árið 1938:

“Allir þróttmiklir æskumenn hafa áhuga fyrir umbótum og nýjungum. Framsóknarflokkurinn hefir nóg rúm fyrir slíka menn. Þeir eiga að koma áhugamálum sínum á framfæri í flokknum — hafa áhrif á stefnu hans — flytja inn í hann fjör og þrótt. Þeir eiga að vera samviska flokksins.”

Orkuskipti í samgöngum, aukin skógrækt, aukin landgræðsla. Allt eru þetta þættir sem eru jákvæðir fyrir samfélagið allt. Hreinna loft, grænna land, sjálfstæðara hagkerfi. Hér höfum við allt að vinna og engu að tapa.

Þjóðgarður

Í stjórnarsáttmálanum er kveðið á um að stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Þverpólitískri nefnd var falið að greina tækifæri og koma með tillögur sem tekið var mið af og er nú í vinnslu. Ákvörðun um að setja Miðhálendisþjóðgarð verður að vera tekin á yfirvegaðan hátt. Hér er um stórt skipulagsmál að ræða sem nær yfir stóra hluta landsins sem varir um aldur og ævi.

Það skiptir máli að við horfum til framtíðar og tökum ekki ákvarðanir núna sem koma í veg fyrir tækifæri í framtíðinni. Markmiðið hlýtur alltaf að við sem búum hér séum sem mest sjálfbær til orku og fæðuöflunar. Að við fáum notið þeirra auðlinda á sjálfbæran hátt sem okkur var ráðstafað.

Þjóðgarður allra Íslendinga verður ekki að veruleika fyrr en meginþorri landsmanna, ekki síst sá hluti, gæslumenn landsins í 1100 ár, verði sammála um að tækifæri séu í stofnun Miðhálendisþjóðgarðs.

Samgöngur

Í samgöngum höfum við aukið fjármagn til vegagerðar umtalsvert. Samgönguáætlun var lögð fram fyrir ári síðan og mun uppfærð áætlun verða lögð fram á næstunni. Stærsti munurinn á þeim er að nýframkvæmdum verður flýtt sem nemur um 214 milljarðar króna. Með þessu erum við að stíga stærri skref en þekkst hafa áður. Á landsbyggðinni er verið að flýta framkvæmdum um 125 milljarða en jafnframt mun áherslan síðan vera á tengivegi. Samgöngusáttmálinn ríkis og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir sameiginlega sýn og heildarhugsun fyrir fjölbreyttar samgöngur á svæðinu og er liður í því að leysa umferðarvanda höfuðborgarbúa sem ríkt hefur þar síðustu ár.

Þá er gaman að segja frá því að samvinnuleiðir hafa alltaf reynst vel. Einnig í vegakerfinu. Það hefur sýnt sig að samvinnuverkefni í vegaframkvæmdum geta skilað ávinningi til þeirra sem nýta vegina, brýrnar eða göngin og lægri kostnaði fyrir ríkið. Forsenda slíkra leiða er jafnræðið, að það sé val um aðra leið.

Mennta- og menningarmál

Í mennta- og menningarmálum hefur Lilja Dögg unnið gríðarlega mikla vinnu og komið mörgum stórum málum í framkvæmd, á aðeins tveimur árum.  Grundvallarbreyting í starfsumhverfi kennara er orðin að veruleika og nýnemum í kennaranámi hefur fjölgað stórkostlega, eftir að kynntar voru aðgerðir sem gera kennarastarfið eftirsóknarverðara.

Vinna við Menntastefnu til ársins 2030 er á lokametrunum og endurskoðun á aðalnámskrá grunnskóla er í fullum gangi. Fjárveitingar til háskóla og framhaldsskóla hafa aukist, auk þess sem efling iðn-, starfs- og verknáms hefur verið sett í forgang. Þá hefur Lilja gripið til markvissra aðgerða til stuðnings íslenskri tungu enda er tungumálið okkar forsenda skapandi hugsunar og allrar menntunar.

Það er ánægjulegt að segja frá því að bókaútgáfa hefur tekið mikinn kipp eftir að lög um stuðning við útgáfu bóka á íslensku tóku gildi. T.d. hefur fjöldi útgefinna barnabóka aukist um heil 47%.

Einnig er grundvallarbreyting að verða á stuðningi hins opinbera við námsmenn, þegar Lánasjóður Íslenskra námsmanna breytist í Menntasjóð og þá var frítekjumark námsmanna hækkað um 43% fyrr á árinu.

Síðan er kvikmyndastefna í mótun hjá menntamálaráðherra og eins og komið hefur fram þá hefur verið lögð mikil vinna í að bæta rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla, þar með talinna héraðsfréttamiðla, svo dæmi séu tekin.

Félags- og barnamál

Í félags- og barnamálaráðuneytinu hefur Ásmundur Einar sett mikinn kraft í húsnæðismálin. Í anda Framsóknar er þar hugað sérstaklega að tækifærum fólks til að komast í öruggt húsnæði, hvort heldur það er til kaupa eða leigu, og að undanförnu lagt sérstaka áherslu á uppbyggingu á landsbyggðinni. Má segja að ráðuneyti hans sé í brennidepli í lífskjarasamningunum enda mikil áhersla lögð á húsnæðismál við gerð þeirra. Stofnframlög hafa verið aukin og einnig hafa verið gerðar breytingar á lögum til að þau nýtist með skilvirkari hætti á landsbyggðinni. Í lok október var 3,2 milljörðum úthlutað til kaupa eða byggingar á 531 íbúð um allt land.

Nú er unnið að því að skoða svokölluð hlutdeildarlán til að bregðast við bresti á húsnæðismarkaði og miðar vinnan að því að auðvelda ungu fólki og tekjulágu fólki að eignast eigið húsnæði.

Ásmundur Einar hefur svo eftir hefur verið tekið sett málefni barna á dagskrá. Það er líka svo að skoða verður alla málaflokka ríkisins út frá hagsmunum barna. Þessi áhersla Ásmundar hefur því áhrif langt út fyrir málaflokka ráðuneytisins.

Barnaþingið

Vikan sem er að líða var tileinkuð börnum. Sl. mánudag stóðum við í ráðuneytinu fyrir málþingi um Börn og samgöngur, Ásmundur Einar barnamálaráðherra var á barnaþingi Sameinuðu þjóðanna og barnaþingi í Hörpu er nýlokið. Við getum fagnað því að barnamálaráðherra hafi tekið mál barna föstum tökum. Þátttaka þeirra í samfélaginu skerpir okkur fullorðna fólkið til að taka betri ákvarðanir og hlusta á þá sem landið erfa.

Ákvarðanir sem hafa með einum og öðrum hætti snertifleti inn á öll heimili landsins. Heimilin hafa alltaf verið í forgrunni hjá Framsókn og hefur barnamálaráðherra sagt að árið 2030 verði best fyrir börn að búa á Íslandi. Framsókn ætlar móta fjölskyldustefnu, framhald af áherslu okkar á heimilin, fjölskyldustefnu þar sem börn verða í forgangi.

Eldri borgarar

Við þurfum einnig að hlusta á þá, sem bjuggu til þau lífsskilyrði sem við njótum nú. Eldri kynslóðin býr yfir reynslu og þekkingu sem við kunnum svo vel að meta. Lífslíkur fólks aukast í takt við aukna tæknivæðingu sem þýðir jafnframt að fólk er tilbúið til að vinna lengur. Og við viljum líka að samfélagið sé þannig að allir hafi jöfn tækifæri, á sama hvaða aldursskeiði viðkomandi er.

Við skulum varast að tala um aldraða sem einsleitan hóp. Fyrir aldraða gildir hið sama og um allar kynslóðir: Við viljum að allir hafi kost á því að eiga gefandi og innihaldsríkt líf við góðar aðstæður.

Sveitarstjórnarstigið

Í áratugi hefur sveitarstjórnarfólk barist fyrir því að gerð verði sérstök stefna fyrir sveitarstjórnarstigið. Ég er sjálfur gamall sveitarstjórnarmaður og þekki vel þær áskoranir sem sveitarstjórnarfólk um allt land stendur frammi fyrir. Hlutverk sveitarstjórnarstigsins verður sífellt mikilvægara í samfélaginu með aukinni ábyrgð sem lögð verið á það, til dæmis með flutningi grunnskólans og málefna fatlaðs fólks til sveitarfélaganna. Þar eiga þessi málefni og mögulega fleiri sem snúa að nærumhverfinu heima.

Það mikla samráð sem átt hefur sér stað við sveitarstjórnarfólk um land allt er komið fyrir þingið í formi þingsályktunartillögu. Markmið stefnunnar er að styrkja sveitarstjórnarstigið svo það verði betur í stakk búið til að sinna verkefnum sínum. Mikilvægur þáttur í eflingu stigsins er að sameina stjórnsýslu og pólitíska forystu í byggðarlögum og felst í því að á ný verður færður í lög lágmarksfjöldi íbúa sveitarfélaga. Þessi þáttur tillögunnar hefur verið mikið ræddur og þykir mörgum að of skammt sé gengið með 1000 íbúa lágmarki og einnig hefur verið gagnrýnt að of langt sé gengið. Það er bjargföst skoðun mín að þetta skref sé nauðsynlegt til að efla byggðir landsins til að rödd þeirra heyrist og að hagsmunir íbúa um allt land séu betur tryggðir.

Hér er ekki verið að sameina sveitarfélög með valdboði heldur ráða íbúar ferðinni. Hvernig sjá landsmenn þróun sveitarstjórnarstigsins fyrir sér? Ég fullyrði að það verði mikill kraftur sem leystur verður úr læðingi með öflugri stjórnsýslu og sameinaðri pólitískri forystu stærri sveitarfélaga með miklum stuðningi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna og ríkisins. Gott dæmi um framsýni í málefnum sveitarfélaga má sjá hjá íbúum fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi sem samþykktu sameiningu fyrir nokkrum vikum og í þeirri vinnu og framtíðarsýn sem birst hefur okkur í sameiningarviðræðum Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar. Þar birtist okkur skýr framtíðarsýn og háleit markmið um árangur sem byggist á sérstöðu byggðarlaganna.

Hér er talað fyrir umbótum og eflingu byggða um allt land í anda stefnu og sögu Framsóknar.

Landbúnaður

Búvörusamningurinn hefur verið í endurskoðun og breytingar verið kynntar. Hópur bænda hefur efasemdir um þær breytingar sem voru lagðar til. Og ég skil þá bændur sem hafa lýst yfir miklum áhyggjum af endurskoðuðum samning. Ríkisstjórnin lítur á landbúnað sem eina af mikilvægustu atvinnugreinum þjóðarinnar. Bændur vita að það er vaxandi eftirspurn eftir mat á heimsvísu. Íslendingum fjölgar hratt og fleiri munnar koma til landsins sem þarf að metta. Það eru sóknarfæri í íslenskum landbúnaði en jafnframt standa framleiðendur og bændur frammi fyrir áskorunum. En sóknarfærið verður að vera fyrir alla sem vilja stunda matvælaframleiðslu, ekki fyrir fáa. Samningar sem stjórnvöld gera verður að vera byggt á jafnræði og fyrirsjáanleika sem styður við störf og byggð í landinu.

Matvæli

Ríkisstjórnin hefur sett á laggirnar breiðan hóp sem samanstendur af nokkrum ráðuneytum til að móta stefnu um heilnæm matvæli, lýðheilsu, byggðamál, fæðuöryggi ofl.

Og talandi um matvæli þá hefur Framsóknarflokkurinn löngum verið talsmaður heilnæmra matvæla og lagt áherslu á að varðveita sérstöðu Ísland umfram önnur lönd til að verjast sjúkdómum og forðast sýklalyfjaónæmi. Við höfum einstakt forskot á önnur lönd og eigum ekki að fórna þeim miklum lýðheilsuhagsmunum fyrir stundarhagsmuni heildsala. Ef ekkert breytist munu fleiri deyja af völdum sýklalyfjaónæmis en deyja af völdum krabbameins árið 2050.

Aðrir flokkar hafa áttað sig á mikilvægi þess og eru heilnæmar landbúnaðarafurðir ein af áherslum í stjórnarsáttmálanum. Íslendingar eiga að framleiða sín matvæli sjálfir og halda landinu hreinu, annað er ræfildómur eins og Margrét Guðnadóttir heitin sagði.

Forsenda fyrir áframhaldandi lífskjörum er aukin verðmætasköpun. Verðmætasköpunin þarf að vera á sjálfbæran hátt þar sem gerð er krafa um samfélagslega ábyrgð. Ofnýting auðlindanna er græðgi. Hin ósýnilega hönd, hún hámarkar sinn eigin hagnað á sem skemmstum tíma.

Íslensk framleiðsla verður ekki samkeppnisfær fyrr en nýting auðlindanna er sjálfbær. Íslensk matvælaframleiðsla er stórt loftslagsmál. Það segir sig sjálft að kolefnisfótspor innfluttra matvæla er stórt. Þessu er hægt að stýra út frá kolefnisspori. Ein leið til að draga úr umhverfisáhrifum er að styðja við þá sem framleiða heilnæmar vörur, íslenskar bændur, styðja við þá sem skapa störf og eru með lágt kolefnisspor og um leið draga úr hvötum sem leiðir til stórfellds innflutnings.

Framtíðin er fólgin í staðbundinni framleiðslu matvæla með áherslu á gæði. Þannig er stigið stórt skref gegn loftslagsbreytingum. Við þurfum að tryggja að kynslóðaskipti í landbúnaði gangi almennt eðlilega fyrir sig.

Framsóknarflokkurinn hefur margoft talað fyrir því að jafna raforkukostnað í dreifðum byggðum. Í landinu er tvær gjaldskrár á flutningi rafmagns, ein fyrir dreifbýli, önnur fyrir þéttbýli. Við erum ein þjóð í einu landi og eigum allt undir að okkur vegni öllum vel.

Samkeppnisforskotið næst ekki nema allir sameinist um að verðmætin felast í byggðum landsins sem eiga allt undir verðmætum störfum í sjávarútvegi og landbúnaði. Við gerum að sjálfsögðu ríkar kröfur til framleiðanda, en kröfurnar verða að vera sanngjarnar svo störfin hverfi ekki til annarra landa með minni kröfur.

Flugvallamál

Fyrr í vikunni bárust af því fréttir að Isavia ætlaði að fara í uppskiptingu á því annars ágæta opinbera félagi, að búa til tvö dótturfélög sem héldi utan um flugleiðsögu og innanlandsflug annarsvegar og móðurfélag sem héldi utan um Keflavíkurflugvöll. Eðlilega hafa menn áhyggjur af því á hvaða vegferð Isavia er. Stjórnin starfar sjálfstætt, skipuð af pólitískum fulltrúum. Þau í stjórninni, sem kusu með tillögu Isavia um að fara í þessa uppskiptingu verða að svara til um þá ákvörðun. Ég hef hins vegar sagt, að Isavia verður ekki einkavætt á okkar vakt.

Frá því að ég kom inn í ráðuneytið hefur verið unnið að gerð flugstefnu, fyrstu sinnar tegundar í 100 ára sögu flugsins. Lykilatriðin í henni eru að varaflugvellirnir verði á einni hendi, á hendi Isavia sem á að taka ábyrgð á varaflugvöllunum.

Það má alveg setja spurningarmerki við það af hverju íslenska ríkið ætti að niðurgreiða rekstur varaflugvalla fyrir millilandafarþega. Fyrsta skrefið í þeirri vegferð er að Isavia taki að sér rekstur og uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar. En um flugöryggismál er að ræða og þörfin fyrir framkvæmdirnar og þjónustuna miðast við að skapa aðstöðu til að taka við nægu magni af fjölda véla í neyðarástandi. Með öðrum orðum að uppbygging varaflugvalla á Íslandi er flugöryggisverkefni fyrir þá sem fljúga um Keflavíkurflugvöll. Við erum eyja langt út í hafi og sitjum því ekki við sama borð og margar aðrar þjóðir á meginlandinu.

Það að Isavia taki við rekstri og uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar býr til svigrúm strax á næsta ári sem felst í viðbótarfjármagni sem nýtist til viðhalds á öðrum flugvöllum. Ástandið er vægast sagt orðið mjög bágborið víða og of lítið fjármagn fer í flugvöllinn hér á Akureyri. Með því að Isavia taki að sér Egilsstaðaflugvöll þá verður hægt að setja meira fjármagn til annarra flugvalla, m.a. hér á Akureyri.

Við viljum að stutt verði við uppbyggingu Akureyrar- og Egilsstaðarflugvalla sem alþjóðlegra fluggátta. Í því sambandi er einnig ánægjulegt að segja frá því að við 2. umræðu fjárlaga þá var gerð breytingartillaga um að leigja eða kaupa húsnæði sem nýtist sem stækkun á flugstöðinni á Akureyrarflugvelli.

Samhliða þessu er unnið að því að finna leiðir til þess að auka fjármagn og nýta í viðhald á flugvöllum landsins og jafna aðstöðumun landsmanna.

Skoska leiðin er mikilvægt skref í þá átt. Flugfargjöld eru há í samanburði við það sem býðst í millilandaflugi og sætanýting er léleg. Greiðsluþátttaka stjórnvalda í Skotlandi hefur reynst vel og er ætlunin að eftir ár geti íbúar á landsbyggðinni notið góðs af henni.

Ég hef sagt og segi enn: Isavia verður ekki einkavætt á minni vakt, það gildir einnig um Landsvirkjun.

Lokaorð

Nú líður að því að sú ríkisstjórn sem við sitjum í eigi tveggja ára afmæli. Þetta hefur verið ríkisstjórn sóknar og uppbyggingar. Þáttur Framsóknar í stjórninni er drjúgur og ég er stoltur af þeim árangri sem hún hefur náðst á þessum tveimur árum.

Framsókn er og hefur ætíð verið flokkur framkvæmda. Við höfum leitt saman ólík öfl og unnið með þeim að verkefnum sem hafa verið þjóðinni allri til heilla. Þegar þessu kjörtímabili lýkur tel ég að við getum horft stolt um öxl á afrek okkar við landsstjórnina. Nýr menntasjóður námsmanna er mikið umbótamál sem Lilja Dögg hefur leitt af krafti, húsnæðismálin og málefni barna sem Ásmundur Einar hefur svo sannarlega sett í forgang í störfum sínum.

Sjálfur er ég stoltur af þeirri gríðarlegu fjárfestingu í samgöngum um land allt. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins er ekki aðeins mikilvæg framtíðarsýn heldur hefur tekist að leiða þar saman ríki og sveitarfélög og þannig hefur sú kyrrstaða sem ríkt hefur í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu verið rofin. Allt eru þetta mál þar sem samvinnan hefur gert að veruleika. Allt eru þetta gríðarleg umbótamál sem styrkja Ísland sem land tækifæranna.

Ég hlakka til að vera með ykkur hér um helgina. Við erum mikilvægt afl í íslensku samfélagi, afl umbóta, afl Framsóknar fyrir landið allt.

Categories
Greinar

Réttindi barna í hávegum höfð

Deila grein

21/11/2019

Réttindi barna í hávegum höfð

Þrjá­tíu ára af­mæli Barna­sátt­mála Sam­einuðu þjóðanna er fagnað um þess­ar mund­ir. Með þeim mik­il­væga sátt­mála sam­mælt­ust þjóðir um að börn nytu á eig­in for­send­um ákveðinna rétt­inda og er hann sá mann­rétt­inda­samn­ing­ur sem hef­ur verið staðfest­ur af flest­um þjóðum heims­ins. Barna­sátt­mál­inn var full­gilt­ur fyr­ir Íslands hönd árið 1992 sem fel­ur í sér að Ísland er skuld­bundið að þjóðarétti til að virða og upp­fylla ákvæði samn­ings­ins.

Stuðning­ur við inn­leiðingu Barna­sátt­mál­ans

Til þess að tryggja að börn njóti þeirra rétt­inda sem sátt­mál­inn kveður á um þarf ekki hvað síst að hafa í huga aðstæður í nærum­hverfi barna á degi hverj­um. Á heim­il­um þeirra, í skól­um og hvar sem þau dvelja. Í ljósi þess hafa fé­lags­málaráðuneytið og UNICEF á Íslandi gert samn­ing með það fyr­ir aug­um að tryggja aðgengi allra sveit­ar­fé­laga að stuðningi við inn­leiðingu Barna­sátt­mál­ans. Þessi stuðning­ur er afar mik­il­væg­ur enda gegna sveit­ar­fé­lög­in mik­il­vægu hlut­verki í lífi barna á Íslandi og ann­ast stærst­an hluta þeirr­ar þjón­ustu sem hef­ur bein áhrif á þeirra dag­lega líf. Íslensk sveit­ar­fé­lög hafa sýnt í verki mik­inn áhuga á að rækja þetta hlut­verk sitt. Það var mér því sönn ánægja að geta í til­efni af þrjá­tíu ára af­mæli Barna­sátt­mál­ans und­ir­ritað sam­komu­lag um auk­inn stuðning við þá góðu vinnu sem þar fer fram. Með slíku sam­stilltu átaki skip­ar Ísland sér í fremstu röð þeirra ríkja sem hvað best standa vörð um rétt­indi barna.

Stjórn­völd taki aukið mið af sjón­ar­miðum barna

Ákvörðun um að inn­leiða Barna­sátt­mál­ann fel­ur í sér viður­kenn­ingu á að þekk­ing og reynsla barna sé verðmæt og að stuðla eigi að því að efla þátt­töku barna og ung­menna í sam­fé­lag­inu og leit­ast eft­ir og nýta reynslu þeirra og viðhorf. En ef við ætl­um okk­ur raun­veru­lega að styrkja hlut­verk barna og ung­menna í sam­fé­lag­inu og tryggja þátt­töku þeirra við stefnu­mót­un og ákv­arðana­töku þurf­um við að ganga lengra en að gefa börn­um orðið við hátíðleg tæki­færi. Við þurf­um skýr­ar breyt­ing­ar sem tryggja sam­starf við börn og að radd­ir þeirra heyr­ist, ekki bara í mál­um er þau varða held­ur öðrum líka. Við þurf­um að hlusta á til­lög­ur þeirra og sjón­ar­mið, taka þær al­var­lega og gera að veru­leika.

Að skapa barn­vænt sam­fé­lag sem ger­ir börn­um kleift að vera raun­veru­leg­ir þátt­tak­end­ur er eitt­hvað sem við hljót­um öll að vera sam­mála um að sé af hinu góða. En að fá börn raun­veru­lega að borðinu er ekki al­veg ein­falt mál. Eins að sjá til þess að við það sitji öll börn, ekki aðeins þau með sterk­ustu radd­irn­ar, og að þau séu þar á eig­in for­send­um en ekki á for­send­um full­orðinna.

Börn búa yfir sér­stakri reynslu og þekk­ingu sem get­ur verið mis­mun­andi eft­ir aldri þeirra og aðstæðum. Á grund­velli þeirr­ar reynslu hafa þau skoðanir og hug­mynd­ir á því hvernig sam­fé­lagið gæti verið betra. Þrátt fyr­ir það er of oft gert lítið úr fram­lagi barna til umræðu og ákv­arðana­töku. Afar margt í stefnu stjórn­valda hef­ur beint eða óbeint áhrif á líf barna. Samt sem áður er hún að mestu leyti þróuð án til­lits til þess hvaða áhrif hún mun hafa á börn og framtíð þeirra. Þátt­taka barna í stefnu­mót­un get­ur leitt til stefnu­breyt­inga og skapað sam­tal á milli ólíkra aðila. En til þess að reynsla og skoðanir barna hafi raun­veru­leg áhrif þurf­um við að vanda til verka.

Meira sam­ráð við börn og ung­menni í mót­un

Rík­is­stjórn­in samþykkti á fundi í mars síðastliðnum til­lögu mína, byggða á til­lög­um til mín frá stýri­hópi stjórn­ar­ráðsins í mál­efn­um barna, um að stefnt verði að auk­inni þátt­töku barna og ung­menna í stefnu­mót­un stjórn­valda sem og til­lögu sem fel­ur í sér að all­ar stærri ákv­arðana­tök­ur sem og laga­frum­vörp skuli rýnd út frá áhrif­um á stöðu og rétt­indi barna. Þetta var stór ákvörðun og afar mik­il­væg. Í maí síðastliðnum fylgdi ég þess­um til­lög­um eft­ir og skrifaði und­ir samn­ing við umboðsmann barna um að unn­ar yrðu til­lög­ur að því hvernig tryggja mætti að þátt­taka barna og ung­menna í stefnu­mót­un hér á landi yrði mark­viss, reglu­leg og raun­veru­leg og að sér­stak­lega yrði hugað að því að öll­um börn­um og ung­menn­um væru tryggð jöfn tæki­færi til þátt­töku, án mis­mun­un­ar. Fljót­lega för­um við að sjá fyrstu drög að þeim til­lög­um en mik­il­væg­ur þátt­ur í und­ir­bún­ingi þeirra er þing barna sem haldið er á veg­um umboðsmanns barna í Hörpu í dag og á morg­un. Auk barna er þing­mönn­um, full­trú­um sveit­ar­stjórna, stofn­ana rík­is og sveit­ar­fé­laga, aðila vinnu­markaðar­ins og frjálsra fé­laga­sam­taka sem koma að mál­efn­um barna boðið til þings­ins og standa von­ir til þess að það verði öfl­ug­ur vett­vang­ur fyr­ir sam­tal og sam­ráð um mál­efni barna til framtíðar.

Við sem telj­umst full­orðin í dag höf­um afar tak­markaða þekk­ingu á reynslu nú­tíma­barna og áhuga­mál­um þeirra. Það er kom­inn tími til þess að við viður­kenn­um að börn­in eru svo sann­ar­lega sér­fræðing­ar í því að vera börn en ekki við full­orðnu. Okk­ar hlut­verk er að tryggja rödd­um barna far­veg og áhrif og skuld­binda okk­ur til að hlusta á þær.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 21. nóvember 2019.

Categories
Fréttir

Bæta þarf aðgengi að menntun og auka fjölbreytni í atvinnulífinu

Deila grein

21/11/2019

Bæta þarf aðgengi að menntun og auka fjölbreytni í atvinnulífinu

Silja Dögg Gunnarsdóttir, alþingismaður Framsóknar í Suðurkjördæmi og forseti Norðurlandaráðs, segir frá ráðstefnu í þingmannasamstari Norðlægu víddarinnar, Northern Dimension Parliamentary Forum í Bodö í Norður-Noregi í yfirlýsingu í vikunni. Ræddir voru flutningar og öryggi á hafi, um samvinnu í umhverfismálum, sjálfbæra ferðamennsku og frumkvöðlastarfsemi í menningarmálum, framtíðarstefnumótun samstarfs Norðlægu víddarinnar og fleira.
Silja Dögg stýrði fundi um flutninga og öryggi í hafinu með þátttakendur frá Norðurlöndunum, Rússlandi, Evrópusambandinu og Eystrasalts ríkjum og ýmsum stofnunum m.a. Norræna fjárfestingabankanum NIB.
Fulltrúar ungs fólks taka virkan þátt í ráðstefnunni segir Silja Dögg. En það eru fulltrúar frá Murmansk, Lapplandi og Tromsö. Skilaboð þeirra voru skír, bæta þarf aðgengi að menntun og auka fjölbreytni í atvinnulífinu svo fólk vilji búa í norðrinu, stjórnvöld verða að hlusta á unga fólkið hvað varðar stefnumótun í umhverfismálum.
 

Categories
Greinar

Út­boð á heil­brigðis­þjónustu

Deila grein

20/11/2019

Út­boð á heil­brigðis­þjónustu

Sjúkratryggingar Íslands hafa ákveðið að fela Ríkiskaupum að bjóða út sjúkraþjálfun á höfuðborgarsvæðinu og er það í samræmi við lög um opinber innkaup sem sett voru samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og -ráðsins 2014. Þessi lög eru mikilvæg því hagkvæm innkaup eru forsenda fyrir góðri nýtingu á almannafé.

En á heilbrigðis- og félagsþjónusta að falla undir þessi lög? Norðurlöndin hafa tekið upp lög um opinber innkaup en þau hafa sett sérstaka umgjörð um heilbrigðis- og félagsþjónustu. Í Noregi t.a.m. er ákvæði í lögum um opinber innkaup og þar fjallað um útboð á heilbrigðis- og félagsþjónustu sem segir að setja skuli í reglugerð reglur um sérstöðu heilbrigðis- og félagsþjónustu. Leggja skal áherslu á fjölbreytni, gæði, samfellu og þátttöku notenda í þjónustunni.

Ég tel það vera skynsamlega nálgun og ættum við sem fámenn þjóð að fara sömu leið. Strax eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum var greiðsluþátttökukerfinu breitt þannig að fleirum var gert kleift að nýta sér þjónustu sjúkraþjálfara, sem er mikilvægur þáttur í að bæta virkni og heilsu einstaklinga. Það er líka á stefnuskránni að efla starf á sviði forvarna og lýðheilsu. Heilbrigðis- og félagsþjónusta er viðkvæmur málaflokkur. Þess vegna getum við ekki nálgast hann á sama hátt og jarðgangaverkefni eða aðrar stórar vegaframkvæmdir. Annað á við um vörukaup til heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðis- og félagsþjónustu verður alltaf að nálgast með sérstökum reglum.

Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður Framsóknar í Norðvesturkjördæmi.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 20. nóvember 2019.

Categories
Greinar

Byr í seglin til að bæta frekar réttarstöðu barna

Deila grein

20/11/2019

Byr í seglin til að bæta frekar réttarstöðu barna

Þrjátíu ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er fagnað í dag. Sáttmála sem gjörbylti réttarstöðu barna um heim allan. Með honum var ekki aðeins samþykkt að börn ættu ákveðin réttindi sem ríki eru skuldbundin til að tryggja heldur einnig að þau eigi sjálf rétt á því að berjast fyrir þeim réttindum og taka þátt í því að móta umhverfi sitt.

Það eru forréttindi að fá að vera barnamálaráðherra á slíkum tímamótum og skynja um leið að heimurinn allur virðist vera að átta sig á þeim krafti og auði sem býr í börnum og ungu fólki og að þau geti verið raunverulegt breytingarafl. Barnasáttmálinn má ekki vera eitthvað sem gripið er í við hátíðleg tilefni eða þegar okkur fullorðna fólkinu hentar heldur á hann að vera raunverulegur áttaviti og leiðarvísir fyrir samfélagið. Til þess að Barnasáttmálinn gegni því hlutverki sem honum er ætlað þurfa börn að njóta þeirra réttinda sem hann kveður á um í sínu nærumhverfi á degi hverjum.

Enn í dag eru börn á Íslandi sem búa við ofbeldi og líða skort. Of mörg börn fá ófullnægjandi aðstoð eða aðstoð sem berst of seint eða ekki yfir höfuð. Þá eru of mörg dæmi þess að börn fái ekki tækifæri til að tjá skoðanir og sömuleiðis of mörg dæmi þess að á raddir þeirra sé ekki hlustað. Þó við getum verið stolt af Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og því sem áunnist hefur á síðustu þrjátíu árum þá eru svo sannarlega áskoranir fram undan. Þessi tímamót, þrjátíu ára afmæli Barnasáttmála SÞ, eiga að gefa okkur byr í seglin til þess að bæta enn frekar stöðu barna á Íslandi og í heiminum öllum. Ég mun svo sannarlega gera mitt besta sem ráðherra barna til þess að tryggja að svo verði.

Til hamingju með daginn öll börn og allir þeir sem eitt sinn voru börn.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 20. nóvember 2019.

Categories
Greinar

Skilningur og skólastarf

Deila grein

20/11/2019

Skilningur og skólastarf

Sig­ur­sæll er góður vilji. Þessi máls­hátt­ur er í mikl­um met­um hjá manni sem á dög­un­um hlaut verðlaun Jónas­ar Hall­gríms­son­ar á degi ís­lenskr­ar tungu. Raun­ar má segja að þetta séu hin bestu ein­kunn­ar­orð Jóns G. Friðjóns­son­ar, pró­fess­ors, mál­vís­inda­manns og kenn­ara, sem sann­ar­lega er vel að þeim verðlaun­um kom­inn. Jón hef­ur með ástríðu og hug­sjón unnið ís­lensk­unni ómælt gagn og með miðlun sinni tendrað áhuga annarra á tungu­mál­inu, ekki síst í gegn­um stór­fróðleg­ar bæk­ur sín­ar og kennslu­efni, og fyr­ir það erum við hon­um afar þakk­lát.

Í viðtali við Jón á dög­un­um talaði hann fyr­ir mik­il­vægi þess að efla lesskiln­ing og sagði að móður­mál­inu stæði meiri ógn af því hversu stór hluti nem­enda gæti ekki lesið sér til gagns við lok grunn­skóla­náms, en af er­lend­um tungu­mál­um. Við erum meðvituð um þann vanda og þau miklu áhrif sem hann hef­ur á framtíðarmögu­leika í námi og starfi. Læsi snýst ekki ein­vörðungu um bæk­ur og nám, held­ur aðgengi að upp­lýs­ing­um sinni víðustu mynd, úr­vinnslu á þeim upp­lýs­ing­um og gagn­rýnni hugs­un. Lesskiln­ing­ur legg­ur þannig grunn­inn að öðru námi og er mark­mið okk­ar að leggja meiri áherslu á hann og þjálf­un hans. Það er enda ekki nóg að geta lesið hratt og skýrt, ef skiln­ing­ur­inn á efn­inu er tak­markaður. Þeir sem lesa þurfa að skilja inni­hald efn­is­ins og máta það við hug­ar­heim sinn, um­hverfi og fyrri reynslu til þess að öðlast þekk­ingu á inn­taki þess.

Við les­um ekki lest­urs­ins vegna held­ur vegna áhuga okk­ar á efn­inu. Því eru skemmti­leg­ar bæk­ur og hæfi­lega flókn­ir text­ar ein besta hvatn­ing­in fyr­ir unga les­end­ur. Fyr­ir þau er hver texti tæki­færi; hvort sem hann er í bók, á blaði eða á skjá. Það er fagnaðarefni að vís­bend­ing­ar eru um aukna út­gáfu bóka á Íslandi og herma töl­ur að aukn­ing­in sé 47% milli ára í flokki skáld­verka fyr­ir börn sam­kv. töl­fræði Bókatíðinda. Þá benda nýj­ustu kann­an­ir til þess að lands­menn lesi nú að meðaltali meira en fyr­ir tveim­ur árum.

Merk­ing máls­hátt­ar­ins hér í upp­hafi er að góður vilji skili sigri. Við vinn­um að því nú í góðu sam­starfi að efla móður­málið og tryggja með fjöl­breytt­um leiðum að ís­lensk­an okk­ar þró­ist áfram og sé notuð á öll­um sviðum þjóðlífs­ins. Marg­ar þeirra leiða tengj­ast mennta­kerf­inu með bein­um hætti, s.s. aðgerðir sem miða að því að bæta læsi og lesskiln­ing en einnig því að styðja bet­ur við ís­lensku­kennslu nýrra mál­not­enda og stuðla að já­kvæðri umræðu og fræðslu í sam­fé­lag­inu um fjöl­breyti­leika tungu­máls­ins.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og varaformaður Framsóknar.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 19. nóvember 2019.

Categories
Fréttir

Þjóðarátak í lýðheilsutengdum forvörnum sem nær til allra aldurshópa samfélagsins

Deila grein

13/11/2019

Þjóðarátak í lýðheilsutengdum forvörnum sem nær til allra aldurshópa samfélagsins

Willum Þór Þórsson, alþingismaður Framsóknar í Suðvesturkjördæmi, mælti fyrir tillögu til þingsályktunar um þjóðarátak í lýðheilsutengdum forvörnum á Alþingi á dögunum.
„Offita hefur aukist verulega síðustu fimm ár frá þeim tíma að samræmdar mælingar hófust árið 2014. Það eitt og sér er í raun áhyggjuefni að við höfum ekki mælt þetta betur fyrr. Þetta er einn angi af neikvæðri þróun. Almennt er þjóðin að innbyrða meiri orku en hún hefur þörf fyrir og það er alvarlegt í sjálfu sér. Við höfum náð ákveðnum árangri undanfarna áratugi í baráttu við hjarta- og æðasjúkdóma en þessi þróun og þróun á því sem kallast sykursýki 2 gæti í raun tekið þann ávinning til baka. Þá get ég vísað í grein úr Læknablaðinu frá 2010 þar sem er viðtal við sérfræðing frá Hjartavernd í sykursýkislækningum, Bolla Þórhallsson. Ég ætla að bera hér niður í viðtalið við hann, með leyfi forseta:
„Vandinn sem við stöndum frammi fyrir er að ávinningurinn af minnkandi tíðni hjarta- og æðasjúkdóma getur hreinlega horfið vegna aukinnar tíðni sykursýki 2 af völdum offitu sem aftur er mjög stór áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma.“
„Þetta mál nær kannski til fleiri þátta en ég hef farið hér yfir og ég ætla, af því að ég mæli fyrir þessu máli í fyrsta sinn, að fara yfir tillögugreinina en hún hljóðar svo:

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa starfshóp sem fái það verkefni að útfæra stefnu og aðgerðaáætlun um þjóðarátak í lýðheilsutengdum forvörnum. Starfshópurinn skili heildstæðri áætlun sem feli m.a. í sér:
a. framtíðarsýn og markmið um að efla og bæta lýðheilsu þjóðarinnar,
b. skilgreinda mælikvarða á forvarnir sem viðmið fyrir alþjóðlegan samanburð,
c. skilgreiningu á þeim sviðum þar sem lýðheilsutengdum forvörnum verður við komið,
d. tímaramma áætlunarinnar, aðgerða, eftirfylgni og endurskoðunar.
Markmið stefnunnar verði m.a.:
a. að Íslendingar verði út frá skilgreindum mælikvörðum ein af heilbrigðustu þjóðum heims,
b. að efla lýðheilsutengdar forvarnir á öllum þeim sviðum sem stefnan tekur til,
c. að efla starf á sviði forvarna og heilsueflingar í skólakerfinu og á vinnustöðum,
d. að efla fræðslu um forvarnir og heilbrigða lífshætti á öllum sviðum íslensks samfélags,
e. að skólakerfið, vinnustaðir og stofnanir verði heilsueflandi.
Heilbrigðisráðherra geri Alþingi grein fyrir aðgerðaáætluninni eigi síðar en haustið 2020.

„Í greinargerð kemur fram að meginbreytingin á málinu frá því síðast er að undirstrika áherslu á lýðheilsutengdar forvarnir. Hér er verið að leggja það til að ríkisstjórninni verði falið að skipa starfshóp til að útfæra stefnu og aðgerðaáætlun um þjóðarátak í lýðheilsutengdum forvörnum.
Í gildi er lýðheilsustefna til ársins 2030 sem hefur það sem meginmarkmið að Íslendingar verði ein heilbrigðasta þjóð heims árið 2030. Á það hefur þó verið bent að mikilvægt sé að uppfæra gildandi stefnu þannig að hún falli vel að nýrri heilbrigðisstefnu sem Alþingi samþykkti sem ályktun,“ sagði Willum Þór.
„Síðastliðna áratugi hefur þekking almennings á gildum heilbrigðra lífshátta og tengslum þeirra við gott heilsufar aukist til muna. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin skilgreinir heilbrigði sem fullkomna líkamlega, andlega og félagslega vellíðan en ekki einungis það að vera laus við sjúkdóma og heilsubrest. Heilbrigði er mikilvægt fyrir efnahagslega þróun og samfélagið í heild. Ein helsta ógn við heilbrigði, framfarir og hagvöxt um heim allan eru langvinnir sjúkdómar. Helstu áhættuþættirnir eru hreyfingarleysi, áfengisneysla, reykingar og óheilsusamlegt mataræði.
Sjúkdómar sem rekja má til óheilbrigðra lífshátta valda miklu álagi á heilbrigðiskerfið. Fyrirsjáanlegt er að útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála aukist í framtíðinni vegna afleiðinga nútímalífshátta. Rannsóknir sýna að notkun á heilbrigðisþjónustu eykst með hækkandi líkamsþyngdarstuðli og heilbrigðiskostnaður hækkar að meðaltali um 1,9% við hverja viðbótareiningu stuðulsins.
Mikilvægt er að snúa þeirri þróun við með þjóðarátaki í lýðheilsutengdum forvörnum sem nær til allra aldurshópa samfélagsins. Forvarnir miða að því að koma í veg fyrir sjúkdóma og draga úr fylgikvillum þeirra. Sýnt hefur verið fram á að forvarnir geta dregið verulega úr áhættuþáttum langvinnra sjúkdóma.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur að hægt sé að fyrirbyggja
80% tilfella hjarta- og æðasjúkdóma,
90% fullorðinssykursýki og
30% allra krabbameinstilfella með hollu mataræði, nægri hreyfingu og reykleysi.
Heilbrigður lífsstíll getur komið í veg fyrir stóran hluta hjartasjúkdóma, heilablóðfalla, sykursýki og fleiri alvarlegra sjúkdóma.

„Í grein eftir Janus Guðlaugsson, íþrótta- og heilsufræðing, sem birtist í 4. tbl. 104. árg. Læknablaðsins, kemur fram að 98% útgjalda til heilbrigðismála fari í að meðhöndla sjúkdóma en tæplega 2% fara í forvarnir. Með markvissu átaki í forvörnum er hægt að vinna að því að minnka þörfina fyrir dýra og flókna heilbrigðisþjónustu og létta þannig álagið á heilbrigðiskerfið.
Mikilvægi hreyfingar í forvörnum
Niðurstöður nýrrar rannsóknar menntavísindasviðs Háskóla Íslands á heilsu og lífskjörum grunnskólanemenda sýna að hátt í 40% unglinga í 10. bekk finna fyrir depurð vikulega eða oftar og 38% segjast glíma við svefnörðugleika. Fjölmargar rannsóknir staðfesta forvarnargildi íþrótta. Þær sýna að aukin hreyfing dregur úr tilfellum alvarlegra sjúkdóma. Þátttaka barna og unglinga í skipulögðu íþróttastarfi dregur einnig úr líkum á frávikshegðun og hefur margvísleg jákvæð áhrif á námsárangur, sjálfsmynd, sjálfsvirðingu, líkamsmynd, heilsu og almenna líðan. Þannig má leiða líkur að því að skipulagt starf íþróttafélaga leiði til þjóðfélagslegs heilsuábata og minnki álag á heilbrigðiskerfið. Einnig hefur verið sýnt fram á að hreyfing hefur jákvæð áhrif á skólastarf og vinnumarkað í formi færri veikindadaga og aukinnar framleiðni.
Niðurstöður rannsóknar sem gerð var á menntavísindasviði Háskóla Íslands frá 2003–2011 sýna að ungt fólk hreyfir sig álíka mikið og fólk um áttrætt. Það er ótrúlegt að sú sé staðan en kannski er það vegna þess að eldra fólk er farið að hreyfa sig meira. Skýrsla um heilsuhegðun Norðurlandabúa frá 2017 sýnir m.a. að einn af hverjum þremur fullorðnum Norðurlandabúum hreyfir sig ekki í samræmi við ráðleggingar um lágmarkshreyfingu og á það líka við um Ísland. Þar kemur einnig fram að hlutfall Íslendinga sem neyta óholls matar jókst úr 19% í 25% frá árinu 2011 til ársins 2014. Hreyfingarleysi er talið jafn mikill áhættuþáttur og reykingar og því mikilvægt að snúa þessari þróun við með markvissri fræðslu um mikilvægi hreyfingar fyrir fólk á öllum aldri. Börn og unglingar sem upplifa jákvæða reynslu af hreyfingu eru líklegri til að velja sér lífshætti sem fela í sér hreyfingu á fullorðinsaldri. Tryggja þarf að öll börn njóti sömu tækifæra til íþrótta- og tómstundaiðkunar óháð efnahag foreldra því slíkt eykur lífsgæði og er mikilvægur liður í heilsusamlegum lífsstíl. Miklu varðar að vekja almenning til umhugsunar um eigið heilbrigði og velferð og beina sjónum að þeim möguleikum sem hver maður hefur til að hafa jákvæð áhrif á eigin heilsu og lífsgæði. Huga þarf sérstaklega að heilsu barna og unglinga því möguleikar á að ná árangri eru mestir hjá þeim aldurshópi.
Hægt á öldrunarferlinu
Doktorsritgerð Janusar Guðlaugssonar, sem ber heitið Fjölþætt heilsurækt: Leið að farsælli öldrun sýnir að virkur lífsstíll, sem felur m.a. í sér fjölbreytta þjálfun, hefur margvíslegan heilsufarslegan ávinning. Þátttakendur rannsóknarinnar voru einstaklingar á aldrinum 71–90 ára. Helstu niðurstöður voru þær að dagleg hreyfing meiri hluta þátttakenda var aðeins brot af ráðleggingum alþjóðlegra heilbrigðisstofnana. Niðurstöðurnar sýndu m.a. að líkamsþyngdarstuðull og fitumassi batnaði að lokinni þjálfun og að jákvæðar breytingar urðu á vöðvamassa að lokinni þjálfun. Rannsóknin sýnir að eldri aldurshópar geta haft margvíslegan ávinning af markvissri hreyfingu, unnið gegn ótímabærri skerðingu á hreyfigetu og viðhaldið lífsgæðum. Öldruðum á Íslandi fer fjölgandi og er því fyrirsjáanlegt að útgjöld til heilbrigðismála aukist verulega í framtíðinni. Markvissar heilsutengdar forvarnir eru liður í því að stemma stigu við þessari þróun.
Heilsueflandi samfélög
Lykillinn að árangri á sviði forvarna og lýðheilsu er samstarf og víðtæk, þverfagleg nálgun sem byggist á þekkingu. Í lýðheilsustefnu til ársins 2030 kemur fram að stefnumótun og ákvarðanir ríkis og sveitarfélaga séu forsenda þess að lýðheilsusjónarmið séu sett í forgrunn og að heilsueflandi samfélag verði innleitt á landsvísu. Þá segir að heilsusjónarmið, þar sem ætíð er gefinn gaumur að áhrifum stefnu á heilsu og líðan allra íbúa í samfélaginu, þurfi að vera lykilstefið í allri stefnumótunarvinnu. Í því samhengi er mikilvægt að ríki og sveitarfélög vinni saman að því að ná settu marki. Heilsueflandi samfélag er verkefni á vegum embættis landlæknis í samvinnu við sveitarfélög, opinberar stofnanir, frjáls félagasamtök og fleiri aðila. Meginmarkmiðið er að styðja samfélög í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum og vellíðan allra íbúa.
Á 35. flokksþingi Framsóknarflokksins, 9.–11. mars 2018, var ályktað að vinna þyrfti markvisst eftir settri lýðheilsustefnu og innleiða þyrfti lýðheilsumat þar sem allar stjórnvaldsákvarðanir yrðu metnar út frá áhrifum á heilsu. Jafnframt skyldi bjóða öllum 50 ára einstaklingum í heilbrigðismat í forvarnaskyni og stefnt að því að öll sveitarfélög yrðu heilsueflandi samfélög fyrir árið 2025 og allir skólar, leikskólar og framhaldsskólar virkir þátttakendur í heilsueflandi verkefnum. Einnig skyldi efla heilsueflandi vinnustaði með auknu samstarfi Vinnueftirlitsins og embættis landlæknis.
Forvarnir þurfa að ná til allra þátta samfélagsins er varða heilsu og líðan allra aldurshópa. Nauðsynlegt er að efla það lýðheilsustarf sem fer fram á vegum landlæknis með auknum fjárheimildum til málaflokksins, svo sem til rannsókna, þróunar og eflingar lýðheilsusjóðs. Það má segja að þetta mál taki þessa ályktun Framsóknarflokksins áfram. Leggja þarf meiri áherslu á forvarnir á sviði lýðheilsu með samvinnu og stuðningi heilbrigðiskerfisins og vinna markvisst eftir settri lýðheilsustefnu. Aukin framlög hins opinbera til forvarna eru mikilvæg til lengri tíma litið svo að hægt sé að vinna að því að auka jafnvægi í útgjöldum til heilbrigðismála í framtíðinni. Og það er klárt mál að með auknum áherslum á forvarnir getum við dregið úr kostnaði við heilbrigðiskerfið til framtíðar,“ sagði Willum Þór.

Categories
Greinar

Smávirkjanir – einföldum kerfið

Deila grein

13/11/2019

Smávirkjanir – einföldum kerfið

Virkj­un­ar­kost­ir fyr­ir smá­virkj­an­ir hér á landi eru marg­ir, en skiplags- og leyf­is­mál smá­virkj­ana eru flók­in og reglu­gerðir íþyngj­andi. Ferlið frá hug­mynd að teng­ingu er kostnaðarsamt og tíma­frekt og langt frá sam­svar­andi ferli fram­kvæmda, t.d. í land­búnaði þar sem fram­kvæmd­ir bæði á landi og mann­virkj­um geta kostað um­tals­vert rask.

Smá­virkj­an­ir, þ.e. virkj­an­ir með upp­sett rafafl 200 kW til 10 MW, eru til­kynn­ing­ar­skyld­ar til Skipu­lags­stofn­un­ar sam­kvæmt lög­um um mat á um­hverf­isáhrif­um. Fram­kvæmd­um er í 1. viðauka við lög­in skipt í flokka A, B og C með hliðsjón af því mati sem skal fara fram.

Ein­falda þarf kerfið

Norðmenn hafa náð góðum ár­angri á sviði smá­virkj­ana, en þar hef­ur ein stofn­un, norska Orku­stofn­un­in (NVE), um­sjón með leyf­is­veit­ing­um. NVE hef­ur kort­lagt mögu­lega virkj­un­ar­kosti. Norsk stjórn­völd lögðu til fjár­magn svo að hægt væri að kort­leggja alla virkj­un­ar­kosti í vatns­afli og nota reiknilíkön svipuð þeim sem Vatna­skil og Veður­stof­an hafa yfir að ráða hér á landi til að spá fyr­ir um rennsli í vatns­föll­um. Fyr­ir­tæki hafa sprottið upp sem taka að sér að sjá um und­ir­bún­ing fyr­ir bygg­ingu virkj­un­ar, fjár­mögn­un, hönn­un og leyfi og gera lang­tíma­samn­inga við bænd­ur um tekj­ur af virkj­un­un­um.

Styrkja dreifi­kerfi raf­orku

Ljóst er að smá­virkj­an­ir eru ein leið til að styrkja dreifi­kerfi lands­ins og lækka kostnað við rekst­urs þess. Ein­föld­un á leyf­is- og skipu­lags­mál­um smá­virkj­ana opn­ar á leið til að ná niður dreif­ing­ar­kostnaði raf­orku í dreif­býli, jafna raf­orku­kostnað, jafna tæki­fær­in til at­vinnu og stuðla að sjálf­bærri þróun byggða um allt land.

Því hef ég lagt fram þings­álykt­un­ar­til­lögu þess efn­is að Alþingi álykti að fela um­hverf­is- og auðlindaráðherra og at­vinnu- og ný­sköp­un­ar­ráðherra að end­ur­skoða lög og reglu­gerðir er gilda um leyf­is­veit­ing­ar til upp­setn­ing­ar smá­virkj­ana með það að mark­miði að ein­falda um­sókn­ar­ferli í tengsl­um við þær.

Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður Framsóknar í Norðvesturkjördæmi.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 13. nóvember 2019.

Categories
Fréttir

Útboð á sjúkraþjálfun er ekki jarðgangaverkefni

Deila grein

12/11/2019

Útboð á sjúkraþjálfun er ekki jarðgangaverkefni

Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður Framsóknar í Norðvesturkjördæmi, segir að Félag sjúkraþjálfara hafi bent á marga agnúa á þeirri aðferð að bjóða út sjúkraþjálfun án þess að leggja skal áherslu á fjölbreytni, gæði, samfellu og þátttöku notenda í þjónustunni. Þetta kom fram hjá henni í störfum þingsins á Alþingi í dag. Það er ekki hægt að nálgast slíkt útboð á sama hátt og jarðgangaverkefni eða aðrar stórar vegaframkvæmdir á vegum ríkisins. Það er annað er á við um vörukaup til heilbrigðisþjónustu enda viðkvæmur málaflokkur.
„Sjúkratryggingar Íslands hafa ákveðið að fela Ríkiskaupum að bjóða út sjúkraþjálfun á höfuðborgarsvæðinu og er það í samræmi við lög um opinber innkaup sem sett voru samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014. Þessi lög eru mikilvæg því að hagkvæm innkaup eru forsenda fyrir góðri nýtingu á almannafé. Félag sjúkraþjálfara hefur bent á marga agnúa á þessari aðferð. Það sem skiptir mestu máli er náttúrlega fá góða niðurstöðu, bæði fyrir þá sem þjónustuna þiggja og líka fyrir ríkið sem niðurgreiðir hana. En á þá heilbrigðis- og félagsþjónusta að falla undir opinber innkaup og lög um hana? Norðurlöndin hafa tekið upp lög, sömu lög eða sömu tilskipun um opinber innkaup, en þau hafa sett sérstaka umgjörð um heilbrigðis- og félagsþjónustu. Í Noregi eru til að mynda ákvæði í lögum um opinber innkaup sem fjalla um útboð á heilbrigðis- og félagsþjónustu sem segir að setja skuli í reglugerð reglur um sérstöðu heilbrigðis- og félagsþjónustu. Leggja skal áherslu á fjölbreytni, gæði, samfellu og þátttöku notenda í þjónustunni.
Virðulegi forseti. Ég tel það vera skynsamlega nálgun og ættum við sem fámenn þjóð að fara sömu leið. Strax eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum var greiðsluþátttökukerfinu breytt þannig að fleirum var gert kleift að nýta sér þjónustu sjúkraþjálfara. Það er líka á stefnuskránni að efla starf á sviði forvarna og lýðheilsu. Heilbrigðis- og félagsþjónusta er viðkvæmur málaflokkur. Þess vegna getum við ekki nálgast hann á sama hátt og jarðgangaverkefni eða aðrar stórar vegaframkvæmdir á vegum ríkisins. Annað á við um vörukaup til heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðis- og félagsþjónustu verður alltaf að nálgast með sérstökum aðferðum og reglum,“ sagði Halla Signý.

Categories
Fréttir

Gestrisni eru okkur Íslendingum í blóð borin

Deila grein

11/11/2019

Gestrisni eru okkur Íslendingum í blóð borin

„Það er okkur alltaf hollt að ræða málefni innflytjenda og vil ég þakka málshefjanda og hæstv. ráðherra fyrir það tækifæri. Við getum þá velt fyrir okkur hvar við viljum standa og hvert við viljum stefna. Heyrst hefur úr þessum stól og í fjölmiðlum að það mál sem var í deiglunni í gær sé á ábyrgð núverandi stefnu stjórnvalda í innflytjendamálum. Ég vísa slíkum athugasemdum til föðurhúsanna en það er gott að taka samtalið. Þeim hefur vissulega fjölgað sem hér sækja um alþjóðlega vernd og útgefnum leyfum hefur líka fjölgað. Á árinu 2018 voru þau 160 en eru komin upp í 216 á þessu ári.“ Þetta kom fram í ræðu Höllu Signýjar Kristjánsdóttur, alþingismanns Framsóknar í Norðvesturkjördæmi, í umræðu um málefni innflytjenda á Alþingi á dögunum.
„Í sáttmála ríkisstjórnarinnar segir að það eigi að taka á þessu og áhersla er lögð á að lögð verði til grundvallar mannúðarsjónarmið og alþjóðlegar skuldbindingar og áhersla lögð á góða og skilvirka meðhöndlun umsókna um alþjóðlega vernd. Auk þess verður tryggð samfella í þjónustu og aðstoð við þá sem fá slíka vernd.
Í stjórnarsáttmálanum er líka talað um að setja á fót þverpólitíska pólitíska þingmannanefnd til að meta framkvæmd og eftir atvikum endurskoða hana. Þessi nefnd hefur ekki verið sett og er því ekki farin af stað. Þarna þurfum við að girða okkur í brók og setja hana saman til að hún geti farið að vinna.“
„Gestrisni eru okkur Íslendingum í blóð borin. Við setjum reglur og lög og viljum að farið sé eftir þeim. En mannúð og gestrisni þarf ekki að setja í lög. Þegar við framfylgjum reglum og lögum eigum við að hafa mannúð að leiðarljósi. Það má ekki gefa afslátt af henni. Það á við um okkur öll sem meðhöndlum útlendingamál,“ sagði Halla Signý.