Categories
Fréttir Greinar

Mikil­vægi samfélagslöggæslu

Deila grein

19/11/2024

Mikil­vægi samfélagslöggæslu

Hvernig tryggjum við öruggt samfélag þar sem börn og ungmenni geta vaxið og dafnað? Lykillinn liggur í trausti, samstarfi og fyrirbyggjandi aðgerðum. Samfélagslöggæsla er ein áhrifaríkasta leiðin til að ná þessum mikilvægu markmiðum.

Hvað er samfélagslöggæsla?

Samfélagslöggæsla er nálgun í löggæslu sem leggur áherslu á að efla tengsl og traust milli lögreglu og samfélags. Hún snýst um að vera nálægt fólkinu, hlusta á þarfir þess og vinna í sameiningu að lausnum.

Lögreglumenn í samfélagslöggæslu eru sýnileg og aðgengileg í daglegu lífi, til dæmis með heimsóknum í skóla og félagsmiðstöðvar. Þar fræða þau börn og ungmenni um samþykki, afbrotavarnir og hvernig samfélagið getur sameinast gegn ofbeldi. Þannig er byggt upp traust sem er lykilforsenda öryggis.

Af hverju er samfélagslöggæsla nauðsynleg núna?

Samfélagið stendur frammi fyrir áskorunum, sérstaklega varðandi ofbeldi meðal barna og ungmenna. Á síðustu misserum hafa komið upp tilvik sem varpa ljósi á nauðsyn þess að bregðast við með afgerandi hætti og fjárfesta í forvörnum. Auk þess hefur stafræn tækni opnað fyrir nýjar tegundir ofbeldis, svo sem stafrænt einelti og óábyrga miðlun myndefnis.

Samfélagslöggæsla er lykilþáttur í því að bregðast við þessum áskorunum. Hún vinnur í samstarfi við samfélagið, skóla, frístundir og félagsþjónustu að því að fyrirbyggja ofbeldi, styðja við börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu og skapa umhverfi þar sem þau geta blómstrað.

Hvað er verið að gera til að efla samfélagslöggæslu?

Í júní síðastliðnum kynnti Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, ásamt dómsmálaráðherra, aðgerðaáætlun með 14 markvissum aðgerðum gegn ofbeldi meðal barna og ungmenna. Ein þeirra er að efla samfélagslöggæslu um land allt, með sérstakri áherslu á höfuðborgarsvæðið.

Til að styðja við þessar aðgerðir hefur ríkisstjórnin tryggt umfangsmikið fjármagn í fjárlögum fyrir árið 2024. Alls verður 598 milljónum króna varið til samfélagslöggæslu og aðgerða gegn ofbeldi ungmenna. Af þessari upphæð renna 324 milljónir króna beint til eflingar samfélagslöggæslu, sem bætist við 120 milljónir króna sem þegar voru samþykktar í fjáraukalögum.

Öruggara samfélag

Sterk samfélagslöggæsla hefur víðtæk áhrif á líf okkar allra. Hún eykur öryggi barna og ungmenna, byggir upp traust milli lögreglu og samfélags og dregur úr ofbeldi. Með fyrirbyggjandi aðgerðum eins og fræðslu og samvinnu styrkir hún grunnstoðir samfélagsins og gerir það heilbrigðara og samheldnara.

Ofbeldi meðal barna og ungmenna er samfélagslegt mein sem við getum ekki sætt okkur við. Með því að styðja samfélagslöggæslu leggjum við grunn að öruggara og réttlátara samfélagi. Við í Framsókn trúum á kraftinn í samvinnu og ábyrgð. Þess vegna leggjum við áherslu á að tryggja bæði fjármögnun og framkvæmd þessara mikilvægu aðgerða.

Samfélagslöggæsla er ekki bara stefna — hún er leið til að skapa samfélag þar sem allir geta notið öryggis og virðingar.

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður og frambjóðandi Framsóknar í Reykjavík Norður.

Greinin birist fyrst á visir.is 18. nóvember 2024.

Categories
Fréttir Greinar

Eigum við ekki bara að klára þetta

Deila grein

06/11/2024

Eigum við ekki bara að klára þetta

Við sem foreldrar eigum það til að leita leiða til þess að gera fleiri ábyrga fyrir börnunum okkar. Sem er eðlilegt, því það þarf heilt þorp til þess að ala upp barn. Foreldrar þurfa að nýta sér alls konar þjónustu í uppeldi barna og sem foreldri vil ég að þessi þjónusta sé hnökralaus. Menntakerfið, íþróttastarf, geðheilbrigðisþjónusta og svo mætti lengi telja. En það þýðir ekki að ég geti sett ábyrgðina á uppeldi barnsins míns alfarið á þau sem sjá um að veita barninu mínu framangreinda þjónustu, þau eiga að koma að því með mér.

Með mér er svolítið lykilatriði að mínu mati, ábyrgð okkar sem foreldra á uppeldi barnanna okkar byrjar og endar hjá okkur. Aðrir styðja við það með þeim úrræðum sem standa barninu til boða. Þá þarf kjark og þor, mikla vinnu og eljusemi til að koma með breytingar á fyrirliggjandi kerfum og það er einmitt það sem Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur unnið streitulaust að allt kjörtímabilið. Förum aðeins yfir hvað þarf að vera í lagi svo börnunum líði vel og foreldrar upplifi traust innan kerfisins og hvað var í býgerð þegar kjarkleysið dundi yfir samstarfsflokka okkar í ríkisstjórn.

Menntakerfið og mat á árangri

Við viljum að börnin okkar fái framúrskarandi menntun sem er byggð á traustum grunni samskipta milli heimilis og skóla. Það þýðir að við viljum að skólinn kenni börnunum okkar það sem stendur í aðalnámskrá, allt frá því að læra að lesa og reikna og yfir í rökhugsun, lífsleikni og heimilisfræði, svo eitthvað sé nefnt. Gott og vel. En hvernig ætlum við að meta þann árangur sem af þeirri kennslu kemur? Samræmd próf voru mælikvarði um árabil og við sem munum eftir þeim munum líka eftir kvíðahnútnum sem fylgdi þessu risastóra orði samræmd. Þetta var orð sem maður skyldi ekki alveg hvað þýddi eða hvers vegna við værum að taka þessi próf. Fyrir mitt leyti var það aldrei útskýrt fyrir barninu sem var að taka það í fyrsta skipti. Samræmd próf sem slík eru góð, gefa okkur yfirsýn yfir hvernig við erum að standa okkur þegar kemur að menntun barnanna okkar. En það er samt sem áður þannig að samfélagið verður stöðugt að endurskoða og endurmeta þær mælingar sem eiga að meta árangur í menntakerfinu. Þar tók Ásmundur Einar af skarið og afnam samræmdu prófin í þeirri mynd sem þau voru og hóf vinnu við að finna betri og nútímalegri aðferð við að meta námsárangur. Frumvarp um samræmt námsmat var á leið inn í þingið á haustmánuðum en vegna uppgjafar ákveðinna flokka innan ríkisstjórnarinnar var allt sett á ís. Það verður því að vera fyrsta verk á nýju kjörtímabili að halda áfram með þessa vinnu.

Námsgagnaútgáfa

Traustar upplýsingar byggðar á rannsóknum skipta sköpum þegar við tölum um námgsagnaútgáfu. Það námsefni sem lagt er fyrir börnin okkar í skólanum þarf að vera gagnlegt og fróðlegt með þeim útgangspunkti að þau skilji viðfangsefnið hverju sinni. Ljóst er að námsgögn eru víða orðin úreld og því var orðið tímabært að uppfæra þau. Tækniþróun og notkun starfrænna lausna í menntun er nú orðinn raunverulegur valkostur fyrir kennara og styður við heilbrigða skjánotkun. Foreldrar geta þannig kennt börnum að nota skjái sem fræðslutól en ekki að heilalaust hámhorf á YouTube sé eina gagnið við þessi tæki. Það mætti lengi telja upp kosti þess að nota stafrænar lausnir í kennslu og með tækninni er hægt að auka fræðsluefni til barna. Allt ofangreint átti að verða að veruleika en fyrir þinginu lá frumvarp mennta- og barnamálaráðherra um breytingar í námsgagnaútgáfu. Það þarf að klára svo við getum gert betur og meira þegar kemur að fræðsluefni fyrir börn.

Inngildandi nálgun í skólakerfinu

Hér var um að ræða ný heildarlög um skipulag starfshátta, stuðnings- og þjónustu við börn í því skyni að tryggja þeim jöfn tækifæri til framúrskarandi menntunar. Þetta frumvarp var hluti af endurbótum og nýrri nálgun í menntakerfinu og er hluti af stofnun Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Þetta er mál sem ég hef mikla trú á að komi til með að gagnast börnunum okkar sama hvaða áskoranir þau glíma við í sínu daglega lífi. Eins og í öllu því sem Ásmundur Einar stendur fyrir þá fór fram víðtækt samráð við vinnslu þessara mála, alveg eins og þegar farsældarlögin voru í vinnslu og fleiri virkilega góð mál.

Íþróttamálin

Ný heildarlög um íþróttir voru á lokametrunum sem svöruðu kröfum nútímans til íþrótta meðal annars með tilliti til fagmennsku, aukinnar þekkingar og þess mikilvæga hlutverks sem íþróttir hafa í samfélaginu. Þar er horft sérstaklega til stöðu barna og ungmenna í íþróttum, jafnrétti til iðkunar, íþróttamannvirkja og fleira.

Framkvæmdaráætlun um afreksíþróttir sem unnin var í þverpólitísku samráði og skilaði þeirri vinnu að komin var tímasett innleiðingaráætlun til að betur styðja við afreksstarf í íþróttum hér á landi. Eitthvað sem lengi hefur verið kallað eftir og skiptir sköpum því við erum, og eigum að vera, fremst á meðal jafningja í stuðningi við afreksíþróttafólkið okkar, fyrirmyndir barnanna okkar, sem vinnur dag og nótt að því að ná markmiðum sínum.

Frístunda og félagsstarf

Það lá fyrir að lögfesta frístunda og félagsstarf barna, í því skyni að festa það í sessi sem grunnþjónustu við íbúana. Mikilvægi forvarna sem eiga sér stað innan frístundageirans verður seint fullþakkað. Lagaumhverfið þurfti að færa til nútímalegra horfs. Þar þurfti meðal annars að styrkja lagaumgjörð utan um frístunda- og félagsstarf barna og ungmenna innan sveitarfélaganna og styrkja stöðu ungmennaráðs í hverju sveitarfélagi. Þetta mál styður við markmið Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um virka þátttöku ungs fólks í samfélaginu.

Allt þetta og fleira þarf að halda áfram að vinna að og ég sé ekki fyrir mér að við munum gera það án þess að Ásmundur Einar Daðason verði þar áfram í fararbroddi fyrir stórar kerfisbreytingar í þágu barna og ungmenna. Þar liggur kjarkurinn, eldmóðurinn og hjartað. Það hefur enginn annar flokkur tekið jafn stór skref og barist jafnmikið fyrir bættri þjónustu eins og hann hefur gert. Höfum það í huga þegar við göngum til kosninga. Börnin okkar eru framtíðin, við gerum okkur grein fyrir því. Höldum áfram þessari vegferð og búum til trausta framtíð fyrir þau.

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður og frambjóðandi Framsóknar í Reykjavík norður.

Greinin birtist á visir.is 6. nóvember 2024.

Categories
Fréttir Greinar

Sjálf­skipaðir sér­fræðingar sam­göngu­mála

Deila grein

08/10/2024

Sjálf­skipaðir sér­fræðingar sam­göngu­mála

Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með umræðunni um framkvæmdina á nýrri Ölfusárbrú. Hver sjálfskipaði sérfræðingurinn á fætur öðrum stígur fram og segir sína skoðun á hvers konar tegund brúar eigi að vera byggð yfir Ölfusá, áætlanir um ársdagsumferðir hafðar að engu og framkvæmdin og nauðsyn hennar dregin í heild sinni í efa.

Umferðarþungi á svæðinu

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni þá er umferð árið 2024 um hringveg undir Ingólfsfjalli á hverjum sólarhring um 14.500 ökutæki. Áætlað er að á opnunarári 2028 að 7200 ökutæki muni aka yfir brúnna á hverjum degi. Þrátt fyrir það mun áfram vera umferð yfir gömlu brúnna eða um 10 til 11 þúsund ökutæki á hverjum sólarhring samkvæmt afar varfærnum áætlunum Vegagerðarinnar.

Ekki aðeins það heldur fara talsvert miklir þungaflutningar í gegnum Selfoss, sem hefur í för með sér bæði álag á gömlu brúnna, sem þolir illa þann mikla þunga sem fylgir því og hefur maður heyrt að vörubílstjórar vilja alls ekki mætast á brúnni. Ný brú losar þungaflutninga frá Selfossi að mestu og tryggir öryggi bæjarbúa enn frekar.

Náttúran er harður húsbóndi

Á þessu svæði eru jarðskjálftar tíðir en það eru vísbendingar um það að sprungur séu í botni Ölfusár. Við þurfum brúarmannvirki sem stendur af sér bæði þá jarðskjálfta sem koma á svæðinu og þegar það verða flóð í Ölfusá, en það er reglulegur atburður. Þess má geta að þegar það kemur flóð í Ölfusá, sem er vatnsmesta á landsins, þá flæðir hún iðulega yfir bakka sína. Árið 1968 varð mikið flóð sem flæddi inn í bæinn og olli miklum skemmdum. Það sama gerðist árið 2006. Því er ekki talið öruggt að byggja brú yfir Ölfusá með millistöplum í árfarveginum, því allar breytingar á rennsli árinnar, til dæmis vegna undirstaðna nýrrar brúar geta aukið flóðahættu á Selfossi og nágrenni.

Rökstuðningur og staðreyndir fyrir vali á brúartegund

Þá er heldur ekki fræðilegur möguleiki að stífla Ölfusá til að byggja brú á þurru landi eins og var gert í Hornafjarðarfljóti og Þorskafirði þar sem straumþungi er hvergi nærri því sem Ölfusáin býður okkur uppá. Þá eru haflengdir brúnna í Þorskafirði og Hornafjarðarfljóti í kringum 35 – 45 metrar en haflengd Ölfusárbrúar er 145 til 155 metrar. Þær miklu kröfur sem gerðar eru til nýrrar Ölfusárbrúar meðal annars vegna alls þess sem að framan er rakið gerir það að verkum að ódýrari framkvæmd eða önnur tegund brúar er ekki valmöguleiki án þess að við hreinlega gefum eftir öryggissjónarmið og endingargildi brúarinnar. Fyrir mitt leyti er það ekki boðlegt.

Ef við skoðum brúartegundir miðað við haflengdir þá eru steyptar brýr sjaldan notaðar þegar haflengdir eru lengri en 40-50 metrar. Stagbrýr eins og sú sem gert er ráð fyrir að rísi norðan við Selfoss með veglínu um Efri Laugardælaeyju eru talsvert algengari í tilfellum þar sem brúin þarf haflengd yfir 120 metra.

Til að setja þetta í samhengi við aðrar brýr á Íslandi þá er lengsta brúarhaf á Íslandi í dag 112 m á hengibrú yfir Skjálfandafljót í Bárðardal, brú sem byggð var 1955. Það eru 11 brýr á landinu þar sem brúarhafið er yfir 70 m þar af eru líklega 3 byggðar miðað við nútímaumferð, bogabrú yfir Fnjóská frá 1999 með 92 m haflengd, bogabrú á Mjóafjörð á Djúpvegi með 107 m haflengd frá 2008 og bogabrú á Þjórsá frá 2003 með 78 m haflengd.

Það er öllum ljóst sem ekið hafa um svæðið að ekki verður hjá því komist að að minnka álagið á núverandi brú yfir Ölfusá sem var byggð árið 1945. Brúin sem slík er komin til ára sinna og verður sífellt erfiðara að viðhalda henni. Ekki nóg með það, þá er það vægast sagt orðið aðkallandi að taka umferðina út fyrir Selfoss og leysa umferðarhnútana sem myndast beggja megin við núverandi brú.

Allar umræður um að Selfyssingar séu að fá minnisvarða og rándýrt hönnunarverk stenst ekki skoðun. Verkfræðilegar áskoranir sem fyrst og fremst hafa ráðist af staðháttum, sem og raunhæfar lausnir á þeim voru höfð að leiðarljósi við þá hönnun sem varð fyrir valinu. Við viljum brú sem stendur af sér veður og þær aðstæður sem móðir náttúra býður okkur uppá og geti þjónað þjóðinni til framtíðar. Vissulega er kostnaðurinn hærri en við byggingu hefðbundinnar steyptrar brúar en sá viðbótarkostnaður kemur til vegna turns og stagkapalkerfis, en undirstöðurnar eru reyndar færri og framkvæmdin flóknari. En umhverfið, jarðlög, og aðstæður í Ölfusár gera þetta eina færa kostinn til framtíðar. Við erum að byggja brú sem við viljum að standi í 200 ár en ekki 20 ár eða skemur.

Vanáætluð umferð og sjónarmið um sjálfbærni

Sjálfbærni er ekki aðeins náttúra og umhverfi heldur einnig heilsa, vellíðan, samfélag og menning. Sjálfbær þróun er áhersla á heildarsýn og langtímahugsun en ekki skammtímalausnir eða gróða. Ný brú mun bæta öryggi fólks á leið sinni um Suðurland auk þess sem lífsskilyrði íbúa á Selfossi munu batna umtalsvert. Ný brú mun einnig bera stofnlagnir fyrir hitaveitu, neysluvatn, rafmagns og samskipta sem núverandi brú ber tæplega eða alls ekki og það hefur valdið vandkvæðum þegar kemur að flutningi á heitu vatni frá borholum inn á heimili í Árborg.

Ef við lítum til sjálfbærni í efnahagi þá er verkefnið metið fjárhagslega sjálfbært en gert er ráð fyrir að með töku hóflegs veggjalds mun vera hægt að greiða hraðar niður framkvæmdakostnað brúarinnar, svo ekki sé talað um tímasparnað og greiðfærni fólks sem á leið um svæðið. Árið 2019 var dagleg umferð um núverandi brú yfir 10.400 ökutæki. Það eru 10.400 ökutæki sem leggja leið sína í gegnum Selfoss á degi hverjum það árið. Þessi tala hefur hækkað töluvert með aukningu ferðamanna sem að stærstum hluta leggur leið sína yfir Hellisheiðina og skoðar Suðurlandið. Það hefur verið ítrekað vanáætlað hversu mikil umferð er um núverandi brú eða hver hún mun verða á komandi árum. Þær áætlanir hafa alltaf sprengt sig fyrir þann tíma sem gert er ráð fyrir.

Karp um kostnað og afvegaleidd umræða

Höldum staðreyndum á lofti varðandi fjármögnun framkvæmdarinnar. En það stendur ekki til að fjármagna framkvæmdina með skattfé heldur veggjöldum, þeir borga sem nota. Meintur sparnaður sem myndi skapast af því að byggja þjóðveginn upp sunnan við Árborg er því tómur hljómur þar sem slík uppbygging þyrfti að vera á veginum um Óseyrarnes. Fjárfesting í samgöngum sem hafa þegar átt sér stað á veginum milli Hveragerðis og Selfoss. Við værum því bara að bíta í skottið á okkur og hafa skattgreiðendur að fíflum með slíkri ákvarðanatöku. Auðvitað eru allir að reyna að ota sínum tota fyrir hagsmuni sinna sveitarfélaga. Skiljanlegt en við megum ekki setja umræðuna enn frekar á villigötur því næg er vitleysan nú þegar. Hver sérfræðingurinn á fætur öðrum og fyrrum ráðherrar koma fram og tjá sig um málið, vonandi óafvitandi um hverskonar vanvirðingu slíkar staðhæfingar inn í umræðuna sýna íbúum Árborgar og Sunnlendingum öllum. Þessi framkvæmd með tilheyrandi vegaframkvæmd er gríðarleg lífskjarabót fyrir íbúa svæðisins. Hér er um að ræða mesta hagsmunamál svæðisins síðustu ára og til þess fallin að bæta öryggistilfinningu þeirra sem eiga leið um svæðið og þeirra sem búa á Selfossi. Sú sem hér skrifar væri til í að fara að sjá gröfur og vinnutæki mæta á svæðið og hefja það gríðarlega mikilvæga starf að reisa þessa brú, fyrir okkur sem búum á Suðurlandi og einnig alla þá sem sækja okkur heim, hvort sem það eru erlendir eða innlendir gestir. Sjálfskipaðir sérfræðingar samgöngumála mega því gjarnan reyna að láta stjörnu sína skína annarsstaðar í staðinn fyrir að flækjast fyrir í umræðu um svo brýna og skynsamlega umferðarbót sem ný Ölfusárbrú verður.

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður Framsóknar í Suðurkjördæmi.

Greinin birtist fyrst á visir.is 8. október 2024.

Categories
Fréttir Greinar

Hver er okkar á­byrgð á of­beldi meðal barna

Deila grein

17/09/2024

Hver er okkar á­byrgð á of­beldi meðal barna

Á síðustu vikum hefur okkur verið tíðrætt um ofbeldi barna gagnvart hvort öðru. Það kemur ekki á óvart í ljósi skelfilegra atburða sem hafa átt sér stað hér á landi þar sem börn ganga í meira mæli með eggvopn á sér.

Það eitt og sér að börn gangi vopnuð, eða telji sig þurfa að gera það, er óásættanleg þróun. Hvort sem að ofbeldi barna og ungmenna hafi aukist eða sé orðið sýnilegra, þá er augljóst að staðan er alvarleg og nauðsynlegt er að grípa í taumana og gera allt sem í okkar valdi stendur. Foreldrar, félagsþjónustan og stjórnvöld þurfa öll að taka höndum saman og stoppa þessa þróun.

Ofbeldi barna og ungmenna

Undanfarin ár hafa stjórnendur innan skólakerfisins lýst yfir áhyggjum af auknu ofbeldi m.a. innan skólalóðarinnar. Það á jafnvel við um börn á yngsta skólastigi. Það sama á við utan skólalóðarinnar og á samfélagsmiðlum. Foreldrar, lögreglan og skólayfirvöld benda öll á það að virðingarleysi barna gagnvart hvort öðru er sífellt meira áberandi þar sem ljót samskipti og líkamlegt ofbeldi færast í aukana.

Hvað er verið að gera?

Síðastliðinn júní kynnti Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, 14 aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna í samvinnu við dómsmálaráðherra. Þar á að leiða saman fjölbreytta þjónustu- og viðbragðsaðila í samstilltu átaki gegn vaxandi ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi. Þessar aðgerðir snúa að auknu forvarnarstarfi, inngripi og meðferð og varða ýmsa aðila innan ríkisins, stjórnsýslunnar og sveitarfélaga.

Viðfangsefnið er víðfeðmt og aðgerðirnar því margskonar og varða m.a. aukna þverfaglega nálgun í ofbeldismálum meðal barna, að mynda verklag fyrir sakhæf og ósakhæf börn og úrræði fyrir þau sem beita alvarlegu ofbeldi, að efla samfélagslögreglu, að auka fræðslu og forvarnir og efla ungmennastarf. Aðgerðir þessar miða að því að fræða börn og ungmenni um afleiðingar, útvega þeim stað þar sem þau geta eflt samskipti í skipulögðu starfi og hvernig eigi að bregðast við þegar ofbeldi á sér stað. Allar þessar aðgerðir eru nauðsynleg skref sem þarf sífellt að endurskoða og meta á meðan á þeim stendur. Hins vegar er ofbeldi barna og ungmenna samfélagslegt mein sem allt samfélagið verður að taka höndum saman við að vinna bug á.

Það þarf heilt þorp til að ala upp barn

Við erum öll uggandi yfir framangreindri þróun ofbeldis, enda varðar hún okkur öll. Vörumst það að leggjast í skotgrafir og leita að sökudólgum. Þó þurfum við að komast til botns í það hvað veldur, hvar við erum að bregðast og gangast við þeirri ábyrgð. Foreldraeftirlit hvers foreldris fyrir sig með sínu barni og öðrum í sínu nærumhverfi verður að vera öflugt. Samfélagið allt verður að koma saman og vinna að því að kynna börnum okkar fyrir þeim hættum sem stafa af ofbeldi af því tagi sem við heyrum af nánast vikulega. Við þurfum að gangast að okkar ábyrgð sem foreldrar og þar komum við aftur að því að samvera er besta forvörnin eins og okkur hefur verið tíðrætt um undanfarin ár. Foreldrasamfélagið þarf að virkja vel í þessum aðgerðum og hér á landi höfum við góða reynslu af öflugu forvarnarstarfi og aðgerðum til að vinda ofan af óæskilegri hegðun.

Við berum öll ábyrgð á því að koma börnunum okkar vel til manns og kenna þeim samfélagsreglurnar, það gerum við ekki með því að vera fjarverandi sem foreldrar og setja ábyrgðina á aðrar stofnanir eða jafnvel að skella skuldinni á menntakerfið eða heilbrigðiskerfið. Auðvitað þurfum við að hafa öflugt geðheilbrigðiskerfi sem kemur í veg fyrir alvarlegan hegðunarvanda eða vanlíðan meðal barna og ungmenna en það verður ekki fram hjá því litið hver ábyrgð okkar er sem foreldrar.

Við eigum að hafa vökult auga fyrir ofbeldi í okkar nærumhverfi, eiga samtal við ungmennin okkar og grípa einstaklinga í áhættuhópum sem gætu beitt eða lent í ofbeldi. Þegar kemur að velferð barnanna í okkar samfélagi er okkur sem ætlum að vera virkir og góðir þátttakendur í samfélaginu ekkert óviðkomandi, og við eigum að sjá til þess að börnin okkar mótist í rétta átt til framtíðar.

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður Framsóknar í Suðurkjördæmi.

Greinin birtist fyrst á visir.is 17. september 2024.

Categories
Fréttir Greinar

Fjár­fest í menningu

Deila grein

24/06/2024

Fjár­fest í menningu

Í dag er stór dagur þegar samþykktar voru breytingar á frumvarpi Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra á listamannalaunum í fyrsta skipti í 15 ár. Listamannalaun eða starfslaun listamanna eru þungamiðjan í kjörum listamannsins og markmið þeirra er að efla listsköpun í landinu. Listamenn eru mikilvægustu sendiherrar lands og þjóðar og halda merki Íslands á lofti dag hvern í alþjóðasamfélaginu.

Tímabærar breytingar

Listsköpun er afar mikilvæg hverri þjóð og nauðsynlegt að kjör listamanna haldist í horfi við kjör annarra í hagkerfinu. Fjöldi starfslauna hefur haldist óbreyttur í 15 ár eða frá því að gildandi lög tóku gildi árið 2009 auk þess sem umfang listamannalauna hefur staðið í stað frá árinu 2012, utan tímabundinnar aukningar á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru. Með þessum breytingum er verið að fjölga launasjóðum sem starfslaun eru veitt úr og fjölga árlegum úthlutunarmánuðum. Starfslaunamánuðum verður fjölgað úr 1.600 í 2.490 á fjórum árum. Mikilvægt er að umfang og fyrirkomulag listmannalauna sé endurmetið reglulega. Síðustu ár hefur fólki í landinu fjölgað, áherslur á listsköpun tekið breytingum og eftirspurn eftir listamannalaunum og árangurshlutfall umsækjenda í mismunandi sérgreinda sjóði vaxið.

Vegsemd

Þær breytingar sem hér eru komnar fram eru veigamiklar. Fyrst má nefna nýjan sjóð – Vegsemd sem er þverfaglegur sjóður fyrir listamenn 67 ára og eldri sem hafa varið starfsævi sinni til listsköpunar. Ekki er gert ráð fyrir að listamenn sæki beint um framlög úr sjóðnum heldur að listamenn 67 ára og eldri sæki um úthlutun úr hinum sérgreindu sjóðum í samræmi við sína listgrein. Lagt er til að starfslaun úr Vegsemd megi veita til allt að fimm ára í senn auk þess sem fallið er frá því að starfslaunaþegum beri að skila skýrslu um störf sín á starfslaunatíma.

Nýr kvikmyndasjóður

Þá kemur inn nýr sjóður fyrir kvikmyndahöfunda og er sjóðurinn í samræmi við kvikmyndastefnu stjórnvalda til ársins 2030. Með kvikmyndahöfundum er átt við bæði leikstjóra og handritshöfunda auk þess sem aðrir aðalhöfundar kvikmynda geta fallið þar undir, þar á meðal höfundar heimildarmynda. Þriggja manna nefnd, sem ráðherra skipar árlega, mun úthluta fé úr launasjóðnum sem Samtök kvikmyndaleikstjóra og Félag leikskálda og handritshöfunda skulu hvort um sig tilnefna þrjá nefndarmenn í.

Mikilvægi stuðnings við listamenn

Stuðningur í formi listamannalauna gríðarlega mikilvægur fyrir bæði listamennina sjálfa og samfélagið í heild, hér er um að ræða fjárfestingu sem skilar sér margfalt til baka til samfélagsins. Listamannalaun veita listamönnum öryggi og svigrúm til að einbeita sér að sköpun sinni án þess að þurfa að hafa áhyggjur af fjárhagslegum vandamálum. Með þessu fá þeir tækifæri til að þróa hæfileika sína, vinna að nýjum og krefjandi verkefnum og skapa verk sem geta haft djúpstæð áhrif á menningu okkar og samfélag. Listamenn gegna lykilhlutverki í að móta og spegla menninguna. Listamannalaun stuðla þannig að því að tryggja fjölbreytileika og nýsköpun í listum, sem er nauðsynlegt fyrir heilbrigt og þróttmikið menningarlíf.

Það er ljóst að með því að veita listamönnum listamannalaun erum við ekki aðeins að styðja við einstaklingana sjálfa, heldur einnig að efla menningu okkar, auðga samfélagið og styrkja efnahagslífið. Ég fagna þessum breytingum sem munu ævinlega stuðla að því að skapa umhverfi þar sem listir og menning geta blómstrað til hagsbóta fyrir alla.

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður Framsóknar.

Greinin birtist fyrst á visir.is 22. júní 2024.

Categories
Fréttir Greinar

Á­kall um að­gerðir í mansals­málum

Deila grein

11/05/2024

Á­kall um að­gerðir í mansals­málum

Mansal er alvarleg meinsemd og mannréttindabrot sem skotið hefur rótum í íslenskt samfélag líkt og víða annars staðar. Ísland hefur undirgengist alþjóðlegar skuldbindingar sem hafa það að markmiði að berjast með markvissum og árangursríkum hætti gegn hvers kyns mansali. En hvernig gengur okkur að koma í veg fyrir mansal hér á landi? Í haust sendi undirrituð fyrirspurn á dómsmálaráðherra um mansal á Íslandi með það að markmiði að fá upplýsingar um stöðu mansals mála hér á landi. Almenningur á Íslandi verður kannski lítið var við mansal hér á landi en úr svari ráðherra má þó lesa að það sé engu að síður raunveruleikinn hér á landi.

Fjölgun mansalsmála

Samkvæmt svörum frá ráðherra hafa mansalsmál verið í rannsókn hjá lögreglu síðastliðin ár og hafa fjölgað ef eitthvað er.Algengasta birtingarmynd mansals hér á landi undanfarin ár hefur verið kynlífs- og vinnumansal. Karlmenn hafa verið þolendur í um 60% mannsalsmálanna á móti 40% kvenna. Í svarinu kemur fram að í apríl á síðasta ári hafi verið 15 opin mál í rannsókn hjá lögreglu á tímabilinu 1. apríl 2022 til 31. mars 2023. Þar af voru sjö þeirra ný mál á skýrslutímabilinu en átta þeirra höfðu byrjað í rannsókn fyrir þann tíma. Á sama tímabili voru 38 mál skráð sem „grunur um mansal“ í málaskrárkerfi lögreglunnar.

Betur má ef duga skal

Árið 2018 var stofnsettur samstarfshópur eftirlitsaðila um brotastarfsemi á vinnumarkaði (SEB) sem er samstarfsvettvangur lögreglu, Skattsins, Vinnueftirlits ríkisins og Vinnumálastofnunar í þeim tilgangi að greiða fyrir upplýsingagjöf milli Vinnumálastofnunar og Vinnueftirlitsins og auka heimildir þeirra til að miðla upplýsingum til ríkisskattstjóra og lögreglu þegar grunur leikur á vinnumarkaðsbrotum, félagslegum undirboðum og hugsanlega mansali. En betur má ef duga skal. Sem liður í forvörnum skiptir einnig máli að fræða launþega, sér í lagi þá sem koma erlendis frá um lögbundin réttindi þeirra og skyldur atvinnuveitenda. Þess utan er einnig mikilvægt að stuðla að vitundarvakningu meðal almennings í þeim tilgangi að draga úr eftirspurn eftir þjónustu sem þrífst oft á mansali ásamt því að efla sérkunnáttu og færni fagstétta sem koma að mansalsmálum á eðli og einkennum hinna ýmsu birtingamyndir mansals.

Endurskoðun á aðgerðaráætlun

Í þriðju skýrslu GRETA eftirlitsnefndar Evrópuráðsins með samningi um aðgerðir gegn mansali, kemur fram að GRETA hafi áhyggjur af þeim takmarkaða árangri sem Ísland hefur náð frá síðustu úttekt í baráttunni gegn vinnumansali. GRETA brýnir íslensk yfirvöld til þess að hvetja lögreglumenn, vinnueftirlitsmenn, félagasamtök og aðra viðeigandi aðila til að sýna aukið frumkvæði í að finna þolendur vinnumansals og tryggja að heimildir og úrræði vinnueftirlits standi undir því að leggja sitt af mörkum til þess að koma í veg fyrir og upplýsa mansalsmál á vinnumarkaði. Janframt kemur fram að enn skorti formlegar verklagsreglur sem skilgreina hlutverk og ábyrgð allra viðkomandi faghópa. Sú sem hér skrifar telur afar brýnt að farið verði í endurskoðun á aðgerðaráætlun gegn mansali. Í dag er í gildi aðgerðaráætlun frá árinu 2019 og er því löngu orðin úreld þar sem íslenskt samfélag hefur tekið töluverðum breytingum á síðustu árum. Aðgerðir sem snúa að því að uppræta mansal þurfa reglubundna endurskoðun, mikilvægt er í því samhengi að nýta ábendingar, reynslu, athugasemdir og leiðbeiningar frá GRETA. Gott samstarf og samvinnu þarf til í baráttunni gegn mansali þvert á samfélagið, verkalýðshreyfingar, löggæslan, félagsyfirvöld og svo lengi mætti telja. Það er og verður alltaf viðvarandi verkefni hverrar þjóðar að berjast gegn mansali. Megum ekki sofna ekki á verðinum!

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður Framsóknar.

Greinin birtist fyrst á visir.is 10. maí 2024.

Categories
Fréttir Greinar

Fram­sókn stendur með bændum og neyt­endum

Deila grein

25/03/2024

Fram­sókn stendur með bændum og neyt­endum

Í síðustu viku voru samþykkt lög um breytingar á búvörulögum nr. 99/1993, framleiðendafélög. Þær miklu umræður sem fylgt hafa í kjölfarið hafa væntanlega ekki farið fram hjá nokkrum manni enda hafa stór orð verið látin falla sem eiga ekki öll rétt á sér.

Staða íslenskra bænda hefur verið erfið um langt skeið. Stóraukning á innfluttum landbúnaðarvörum og stökkbreytingar í verði á aðföngum hefur reynst greininni erfið síðustu ár, bara á síðasta ári jókst innflutningur á kjöti um 17%. Rekstur afurðastöðva í sauðfjár- og nautakjöti hefur lengi átt undir höggi að sækja og augljóst er ef að íslenskt lamba- og nautakjöt á að standast samkeppni frá innfluttu kjöti þarf að bregðast við. Hagræðing verður að eiga sér stað hjá afurðastöðvum til að standast erlenda samkeppni. Afurðastöðvar eru almennt að hluta í eigu bænda. Með þessum breytingum á búvörulögum sem nú hafa verið samþykkt er kjötafurðarstöðvum gert kleift að vinna saman eða sameinast til að ná fram rekstrarhagræði sem gagnast bæði bændum og neytendum.

Hagur bænda og neytenda

Því hefur verið haldið á lofti að þessar breytinga komi til með að stuðla að einokun, hækka vöruverð og verðbólgu. Þessar fullyrðingar eru á þunnum ís. Staðreyndin er sú að hagur bænda og neytenda fer saman. Íslenskur landbúnaður þarf á íslenskum neytendum að halda og á sama tíma þarf innlend framleiðsla að vera samkeppnishæf við innflutta matvöru. Ef ekki er veitt svigrúm til hagræðingar í greininni er næsta víst að neytendur færi sig í auknu mæli yfir í erlenda staðgönguvöru með þeim afleiðingum að það fjari undan íslenskum landbúnaði. Það sama myndi gerast ef sú hagræðing sem nú er möguleg skilar sér ekki til íslenskra neytenda. Hátt verð á innlendri landbúnaðarvöru veldur því að neytendur versla aðrar vörur. Þetta er einfalt reiknisdæmi. Að þessu leyti fara hagsmunir bænda og neytenda saman.

Rétt skal vera rétt

Þá er það hreinlega rangt það sem hefur verið haldið fram að afurðastöðvum sé nú heimilt að sameinast án takmarkana. Þeir sem skoða lögin geta séð að í þau eru skrifuð ákveðin skilyrði hyggist afurðastöðvar nýta sér þessa heimild. Þessi skilyrði voru sett inn í ljósi þess að samrunareglur eiga ekki lengur við. Þessi skilyrði tryggja að allir framleiðendur eru jafnsettir hvað varðar möguleika á að koma búfé til slátrunar óháð staðsetningu. Þá er afurðastöðvum skylt að selja öðrum vinnsluaðilum afurðir til frekari vinnslu á sömu viðskiptakjörum og vinnsluaðilum sem lúta þeirra stjórn. Með þessum skilyrðum er stuðlað að samkeppni og tryggt að aðrir vinnsluaðilar greiði sama verð fyrir sömu vöru og aðilar sem lúta stjórn framleiðendafélaga.

Þá er ekki heimilt að setja skorður við því að framleiðendur færi viðskipti sín til annars aðila. Er þessu skilyrði ætlað að efla og tryggja samningsstöðu bænda og tryggja að samkeppni ríki áfram á markaði. Að lokum er tryggður réttur til að eiga einungis viðskipti við framleiðendafélag um afmarkaða þætti, svo sem slátrun. Með þessu skilyrði er stuðlað að því að tryggja samningsstöðu bænda og fyrirbyggja hindranir fyrir minni keppinauta í slátrun og vinnslu. Þannig verður bændum auðveldað að vinna og markaðssetja afurðir sínar sjálfir ef þeir kjósa að gera það.

Sérstaða íslenskra kjörframleiðslu

Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni er sýklalyfjaónæmi einhver mesta ógn við heilsufar manna í dag. Nýútkomin skýrsla hóps á vegum heilbrigðisráðuneytisins í samvinnu við matvæla og umhverfis-, orku- og loflagsráðherra um aðgerðir til varnar útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería tekur undir þær staðhæfingar. Í skýrslu hópsins kemur fram að fæðuöryggi muni enn minnka þar sem sýklalyfjaónæmi hefur einnig áhrif á dýraheilbrigði og þar með matvælaframleiðslu. Sýklalyfjanotkun hér á landi í landbúnaði er með því minnsta sem þekkist og hefur það verið staðfest í eftirliti Evrópsku eftirlitsstofnunarinnar um notkun sýklalyfja í landibúnaði

Það er ekki ofsagt að íslensk matvælaframleiðsla eigi sér sérstöðu á heimsvísu og undir þetta taka helstu sérfræðingar á sviði sýkla- og veirufræða. Þeir hafa brýnt fyrir okkur að verja þurfi þá sérstöðu sem við búum við á Íslandi. Á grunni sérstöðunnar á Ísland að vera í fararbroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis með banni á dreifingu matvæla sem í greinist sýklalyfjaónæmar bakteríur. Það er bein skylda okkar að standa með íslenskri matvælaframleiðslu. Þá þarf að þora að stíga þau skref sem þarf til að koma því þannig fyrir að heilnæmt kjöt sé á boðstólum íslenskra neytanda á viðráðanlegu verði.

Samstaða frekar en sundrung

Við sem smáþjóð þurfum að standa vörð um innlenda framleiðslu og fyrir því eru fleiri en ein ástæða. Fyrst má þar nefna mikilvægi þess að halda framleiðslunni innanlands vegna allra þeirra starfa sem hún skapar, fyrir utan þá staðreynd að við viljum viðhalda innlendum landbúnaði og matvælaframleiðslu í landinu. Að ótöldu fæðuörygginu, matvælaöryggi með heilnæmi landbúnaðarvara og mikilvægi þess að vera sjálfbær.

Framsókn hefur í gegnum tíðina staðið með landbúnaði og mun ávallt gera, enda á flokkurinn uppruna sinn í sveitum landsins og hefur sú taug aldrei slitnað öll þessi ár. Þingmenn Framsóknar hafa í gegnum tíðina gert sitt besta til þess að vera öflugir málsvarar bænda í landinu. Okkar verkefni nú er að halda áfram að ræða mikilvægi innlends landbúnaðar og koma sjónarmiðum okkar á framfæri við samstarfsflokkanna sem og aðra flokka á Alþingi með hag bænda og neytenda að leiðarljósi.

Halla Signý Kristjánsdóttir, Þórarinn Ingi Pétursson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Ágúst Bjarni Garðarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmenn Framsóknar.

Greinin birtist fyrst á visir.is 25. mars 2024.

Categories
Fréttir Greinar

Sam­staða um aukna vel­sæld

Deila grein

13/03/2024

Sam­staða um aukna vel­sæld

Skrifað hefur verið undir langtíma kjarasamning milli Samtaka atvinnulífsins og SGS, Eflingar og Samiðnar – breiðfylkingar stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði. Það er rétt að hrósa samningsaðilum fyrir þeirra góðu vinnu og þann metnað sem lagður var í það verkefni að ná saman. Samningarnir skipta okkur sem samfélag gríðarlega miklu máli, sér í lagi í baráttunni við að ná niður verðbólgu. Hér hefur fólk ákveðið að standa bak í bak með það að markmiði að bæta lífskjör hér á landi, lækka vexti, minnka verðbólgu og auka kaupmátt.

Á samningstímanum verða lagðir allt að 80 milljarðar í aðgerðir sem eiga að m.a. að stuðla að heilbrigðari húsnæðismarkaði og fjölskylduvænna samfélagi samhliða. Með þessum aðgerðum munu ráðstöfunartekjur fjölskyldna aukast verulega á samningstímanum, eða um allt að 500 þúsund krónur á ári.

Mikill ávinningur

Ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga lögðu lóð á vogarskálarnar við gerð þessara samninga með aðgerðum til næstu fjögurra ára. Hér vilja allir leggjast á eitt við að auka velsæld. Almennt má segja að kjarasamningarnir samrýmist þeim spám sem hafa komið út nýlega og gera ráð fyrir áframhaldandi markverðri lækkun verðbólgu í ár sem tryggja á lækkun vaxta.

Mikill ávinningur er af lækkun á vaxtastigi hvort sem er fyrir heimilin í landinu, fyrirtæki, ríki og sveitarfélög. Fyrir heimili sem skuldar 40 m.kr. húsnæðislán er 1% lækkun um 400 þús. kr. á ári. Ef við horfum til sveitarfélaganna má gera ráð fyrir að 1% lækkun á vöxtum samsvari um 5,7-6,0 milljörðum króna. Þá er rétt að það komi fram að skuldir ríkissjóðs eru með föstum kjörum. Það þýðir að vaxtalækkun hefur eingöngu áhrif á nýjar lántökur. Fyrir hvern 1 milljarð sem ríkið tekur að láni þýða 1% lægri vextir 10 m.kr. lægri vaxtagjöld á ári. Það er fljótt að safnast saman við hverja prósentulækkun og til mikils að vinna.

Öruggt heimili fyrir alla

Aukinn stöðugleika á húsnæðismarkaði og vinna gegn auknum kostnaði almennings vegna húsnæðis er forgangsmál og nú þegar er búið að fjármagna þær aðgerðir. Heilbrigður húsnæðismarkaður er mikilvæg kjarabót fyrir almenning í landinu. Til að mæta auknum vaxtakostnaði heimila nú um stundir verða á árinu 2024 greiddir út allt að 7 milljarðar króna í sérstakan vaxtastuðning til heimila með íbúðalán. Stuðningurinn tekur mið af vaxtagjöldum ársins 2023 og kemur til viðbótar almennum vaxtabótum. Þessu til viðbótar og til að daga úr íþyngjandi húsnæðiskostnaði leigjenda verða húsnæðisbætur hækkaðar frá 1. júní nk. og munu grunnfjárhæðir húsnæðisbóta til leigjenda hækka um 25%, auk þess sem tillit verður tekið til fjölskyldustærðar þannig að greiddar verða húsnæðisbætur fyrir allt að sex heimilismenn í stað fjögurra áður.

Fyrir fjölskyldurnar í landinu

Sérstök áhersla er lögð á stuðla að fjölskylduvænna samfélagi með aðgerðum sem miða að því að auka velsæld barnafjölskyldna. Auka á framlög til barnabóta um 18 milljarða króna á samningstímanum. Barnabætur verða hækkaðar og dregið verður úr tekjuskerðingum sem mun fjölga þeim foreldrum sem fá stuðning um 10.000. Þá verður útfærð leið til að skólamáltíðir grunnskólabarna verði gjaldfrjálsar frá og með ágúst 2024. Þessum lið fögnum við sérstaklega enda mikilvægt að öll börn eigi kost á hollum og staðgóðum skólamáltíðum. Hér er um lýðheilsu- og jafnréttismál að ræða. Við í Framsókn höfum í gegnum árin lagt mikla áherslu á að bæta fæðingarorlofskerfið og með þeim aðgerðum sem hér hafa verið lagðar til verða hámarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hækkaðar í þremur áföngum á næstu tveimur árum. Þá munu stjórnvöld og sveitarfélögin taka höndum saman og vinna með markvissum hætti að því að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla á samningstímanum með því að tryggja öllum börnum leikskólavist.

Markvisst er unnið að því að draga úr kostnaði við að sækja heilbrigðisþjónustu fjarri heimabyggð. Á síðasta ári bætti heilbrigðisráðherra við þriðju flugferðinni og með þessum aðgerðum eru þær nú orðnar fjórar. Þá á að gera breytingar á lögum um Menntasjóð námsmanna sem lúta að því að létta vaxtabyrði og draga úr skyndilegum og ófyrirséðum hækkunum vegna verðbólgu og vaxta á afborganir námslána. Þá líkt og lengi hefur verið kallað eftir á að afnema ábyrgðarmannakerfi námslána. Fleiri aðgerðir eru hér lagðar til og um þær má lesa á vef Stjórnarráðsins, en allar miða þær að sama marki; styðja með öflugum hætti við fólkið í landinu og lækkun verðbólgu og vaxta.

Mál málanna

Allt of lengi höfum við verið að berjast við að ná niður verðbólgunni og vaxtakostnaður hefur rokið upp úr öllu valdi með tilheyrandi hækkunum og þar með minnkandi ráðstöfunartekjum. Með þessum samningum og sér í lagi loforðum ríkis og sveitarfélaga um að halda aftur að gjaldskrárhækkunum er verið að bregðast við með markvissum hætti. Við höfum áður rætt um hvað einkennir gott samfélag, það er að standa saman og rétta fram hjálparhönd. Um þessar mundir reynir á að sýna samstöðu og samfélagslega ábyrgð í því verkefni að ná niður verðbólgu. Því vil viðbótar köllum við eftir að hin „breiðu bök“ standi nú með þjóðinni á vegi til aukinnar velsældar.

Fyrir þetta stendur Framsókn – framtíðin ræðst á miðjunni.

Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknar

Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknar

Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknar

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður Framsóknar 

Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar

Greinin birtist fyrst á visir.is 13. mars 2024.

Categories
Fréttir

Á ferð um landið – Kjördæmavika Framsóknar

Deila grein

26/02/2024

Á ferð um landið – Kjördæmavika Framsóknar

Þingmenn og ráðherrar Framsóknar verða á ferð og flugi um land allt næstu daga. Þingflokknum er mikilvægt að heyra raddir kjósenda með reglubundnum hætti. Áhersla verður á heimsóknir í bland við opna fundi.

Hér að neðan má sjá yfirlit yfir alla opna fundi, en einnig má nálgast viðburðina á Facebook: https://fb.me/e/3vOUaC0mJ

Mánudagur 26. febrúar:
Reykjavík – Sykursalnum Grósku, kl. 20.00.
Suðurnesjabær – Samkomuhúsinu Sandgerði, kl. 20.00.

Þriðjudagur 27. febrúar:
Mosfellsbær – Skátaheimili Mosverja, kl. 20.00.
Bláskógabyggð – Efsti Dalur, kl. 20.00.
Borgarbyggð – Landnámssetrinu, kl. 20.00.

Miðvikudagur 28. febrúar:
Kópavogur – Siglingafélaginu Ými, Naustavör 14, kl. 20.00.
Akranes – Dalbraut 4, kl. 20.00.
Vopnafjörður – Safnaðarheimilinu, kl. 18.00.

Fimmtudaginn 29. febrúar:
Reyðarfjörður – Þórðarbúð, Austurvegi 39, kl. 17.30.
Sauðárkrókur – Kaffi Krók, kl. 20:15.
Egilsstaðir – Tehúsið, kl 20.00.
Árborg – Hótel Selfoss, kl 20.00.

Föstudagur 1. mars:
Húsavík – Félagsheimili eldri borgara, Hlyn, kl. 16.00.

Laugardagur 2. mars:
Hafnarfjörður – Kiwanissalnum, Helluhrauni 22, kl. 11.00.

Á næstu vikum munu þingmenn og ráðherrar heimsækja Höfn, Vestmannaeyjar, Vestfirði, en nánari upplýsingar verða birtar síðar.

ATH. að dagskráin kann að taka breytingum með skömmum fyrirvara.

Við erum Framsókn!

Framsóknarflokkurinn er frjálslyndur félagshyggjuflokkur sem vinnur að stöðugum umbótum á samfélaginu og lausn sameiginlegra viðfangsefna þjóðfélagsins á grunni samvinnu og jafnaðar. Hann stendur vörð um stjórnarfarslegt, efnahagslegt og menningarlegt sjálfstæði Íslendinga, byggt á lýðræði, þingræði og réttaröryggi.

Í meira en öld höfum við unnið að framfaramálum fyrir Ísland með hugsjónir samvinnunnar að leiðarljósi.

Við í Framsókn trúum því að yfirvegað samtal skili samfélaginu meiri árangri en upphrópanir.
Við setjum manngildi ofar auðgildi.

Categories
Fréttir Greinar

Venjulegt fólk og afborgun lána við núverandi aðstæður

Deila grein

11/01/2024

Venjulegt fólk og afborgun lána við núverandi aðstæður

Verðbólga og háir vextir hafa áhrif á samfélagið allt þar sem byrðar fólks og fyrirtækja þyngjast með hverjum deginum. Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá nokkrum að stjórnmálin um heim allan eru með vindinn í fangið þessi misserin. Hækkanir á hækkanir ofan dynja á almenningi víða um heim og við hér á Íslandi erum ekki undanskilin og finnum fyrir þeim. Þá gildir einu hvort við séum að horfa á húsnæðislánin okkar, matarkörfuna, tryggingarnar eða hvað eina annað. Afleiðingar af þessum hækkunum eru að almenningur í landinu fær minna fyrir krónurnar sínar.

Við höfum oft og tíðum rætt um „venjulegt“ fólk og hina „venjulegu“ fjölskyldu; fólkið sem af einhverjum ástæðum fellur oft á milli skips og bryggju í hinni daglegu umræðu. Hér er um að ræða hóp sem fær ekki alltaf mikla athygli, hver sem ástæðan er fyrir því, hvort sem það er vegna þess að sá hópur telst ekki vera í viðkvæmri stöðu eða til minnihlutahóps. Hann hefur ekki hátt og er í raun nokkuð ósýnilegur ef svo má segja. Hann mætir til vinnu, hugsar um fjölskylduna, eldar matinn og borgar reikninga. Þessa hversdagslegu hluti og lífið gengur sinn vanagang dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð. Líkt og hamstur í hjóli.

Við teljum að þetta sé hópurinn sem telur sig ekki vera í þeirri stöðu að geta haft hátt um stöðuna eða telja sig jafnvel ekki eiga rétt á því að kvarta. Þau sem þessum hópi tilheyra eru ekki meðal þeirra tekjulægstu, en eru ólík og bera oft mikið álag. Þetta er hópurinn sem heldur samfélaginu á gangandi og það er því til mikils að vinna að grípa inn í og létta undir þeim sem þyngstar bera byrðarnar í því árferði sem nú geisar.

Hvalrekaskattur – „við og þið“ eða „við og hinir“

Okkur hefur verið það tíðrætt síðustu mánuði að ef við ætlum okkur að ná tökum á ástandinu þurfa allir að taka þátt í því verkefni. Að taka þátt þýðir m.a. að stíga ölduna með fjölskyldum og fyrirtækjum í landinu. Við erum að sjá mikinn hagnað viðskiptabankanna þriggja þar sem bæði þjónustutekjur og vaxtatekjur þeirra eru að hækka umtalsvert. Þetta er tilkomið vegna þess að vaxtabyrði „venjulegs“ fólks er að aukast. Það er ekki annað að skynja á umræðunni að upplifun fólks sé sú að hér á landi sé að skapast samfélag sem megi kalla „við og þið“ eða „við og hinir“. Við fréttir sem þessar verður það upplifun fólks, sem alls ekki má vanmeta, að hér séu ekki allir að taka þátt og leggja sitt að mörkum til að rétta skútuna og það er vont að finna fyrir þeirri tilfinningu. Almenningur er að taka á sig auknar byrðar með ýmsum hætti og það gengur ekki að hér séu aðilar, stórfyrirtæki og aðrir, sem halda að þeir séu eyland í þessu samfélagi sem við byggjum saman. Við erum í tímabundnu ástandi, sem kallar á óvenjulegar tímabundnar aðgerðir. Af þessari ástæðu teljum við það koma vel til greina að skattleggja hagnað og arðgreiðslur alveg sérstaklega og styðja enn markvissari hætti við þá hópa sem nú standa í miðjum ólgusjó. Annað er hreinlega ósanngjarnt.

Gerð langtíma kjarasamninga

Jákvæður tónn var sleginn í kjaraviðræðum Samtaka atvinnulífsins og stærstu stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði þegar sameiginleg yfirlýsing var send út nú rétt fyrir áramót. Í yfirlýsingunni er sérstaklega tiltekið mikilvægi þess að semja til lengri tíma svo auka megi fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu. Þessi yfirlýsing er skynsamlegt innlegg í okkar mikilvægasta verkefni sem er að ná niður verðbólgu og háum vöxtum og hefur hvarvetna fengið jákvæð viðbrögð. Mesta kjarabótin fyrir fólk og fyrirtæki í landinu til lengri tíma er óumdeilanlega að ná niður vöxtum.

Það er til mikils að vinna að lenda farsælum langtímakjarasamningum. Þó svo að ríkisstjórnin eigi ekki formlega aðkomu að kjarasamningsgerðinni hafa aðilar vinnumarkaðarins kallað eftir því að stjórnvöld liðki fyrir gerð kjarasamninga. Þar teljum við meðal annars nauðsynlegt að rýna í stöðu barnafjölskyldna á Íslandi með það að markmið að skoða með hvaða hætti og hvaða aðgerðum er hægt að beita til að koma enn betur til móts við þann þunga róður sem margar fjölskyldur standa frammi fyrir þessa stundina. Það er staðreynd að við þurfum að einbeita okkur betur að barnafjölskyldum. Það er hreinlega lýðheilsumál, því ekki viljum við sjá þennan aldurshóp brenna upp í báða enda fyrir fimmtugt sem yrði samfélagslega mjög dýrt.

Húsnæðismarkaður í jafnvægi

Líkt og fyrr segir þá heldur enginn hér á fríspili; ekki ríkið, ekki sveitarfélög, ekki Seðlabankinn og ekki fyrirtækin í landinu. Ábyrgðin er okkar allra. Rörsýn Seðlabankans hefur verið of mikil og of mikill skortur er á sýn á stóru myndina, heildarsamhengi hlutanna til framtíðar, og hvert við erum raunverulega að stefna. Við þurfum framtíðarsýn og þora að sjá fyrir okkur hvernig við ætlum að hafa hlutina eftir 2, 3, 5 eða 10 ár. Vaxtahækkanir Seðlabankans hafa haft verulega neikvæð áhrif á framboðshlið húsnæðis og hert lánþegaskilyrði hafa það einnig, en gera það á öðrum enda. Annars vegar er dýrt að byggja íbúðir vegna hárra vaxta og hins vegar er erfitt að selja íbúðir vegna hertra lánþegaskilyrða Seðlabankans. Það sjá allir að þetta gengur ekki upp og hefur letjandi áhrif á uppbyggingaraðila og þar með fasteignamarkaðinn sem er alls ekki það sem við þurfum núna. Það er skammgóður vermir að pissa í skó sinn.

Snjóhengja kynslóða er að myndast sem mun svo á einhverjum tímapunkti ryðjast út á markaðinn, stíflan mun bresta og þá, ef ekki verður gefið vel í með annars vegar opinberum aðgerðum líkt og innviðaráðherra hefur ráðist í með aðgerðum í almenna íbúðakerfinu, þar sem stofnframlög voru tvöfölduð og framlög til hlutdeildarlána voru aukin, og hins vegar á almennum byggingamarkaði. Þurfum að þora að taka ákvarðanir sem byggja á framtíðarsýn því ef við stígum ekki þessi nauðsynlegu skref þá munum við sjá skarpari sveiflu með tilheyrandi neikvæðum áhrif á landsmenn en þær sem við þegar þekkjum og erum að reyna að komast út úr.

Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknar  
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður Framsóknar 

Greinin birtist fyrst á eyjan.is 10. janúar 2024.