Á fundi ríkisráðs á Bessastöðum í dag féllst forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, á tillögu forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, um að veita ráðuneyti hans lausn frá störfum.
Á öðrum fundi ríkisráðs féllst forseti Íslands á tillögu Sigurðar Inga Jóhannssonar um skipun fyrsta ráðuneytis hans og gaf út úrskurð um skiptingu starfa ráðherra.
Í nýrri ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar eru 10 ráðherrar.
Ráðherrar nýju ríkisstjórnarinnar eru:
- Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra
- Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra
- Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra
- Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra
- Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
- Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra
- Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
- Ólöf Nordal, innanríkisráðherra
- Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra
- Lilja Dögg Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra