Jafnréttisáætlun Framsóknar
Jafnréttisáætlunin kveður á um hvernig Framsóknarflokkurinn í innra sem ytra starfi vinnur að jafnrétti og virðingu meðal allra þeirra sem að flokksstarfinu og að stjórnmálum koma. Markmiðið er að ná jafnri þátttöku félagsmanna óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu í störfum á vegum flokksins.
Framkvæmd og umfang
Áætlun þessi tekur til allra stofnana flokksins sem og til allra þeirra sem gegna trúnaðar- og ábyrgðarstörfum fyrir flokkinn.
Jafnréttisfulltrúi – jafnréttisnefnd
Jafnréttisfulltrúi skal starfa á vegum flokksins og hafa aðgang að starfsmanni. Skal hann koma með tillögur og ábendingar til þeirra sem undirbúa framboð á vegum flokksins. Jafnréttisfulltrúi heyrir undir landsstjórn Framsóknarflokksins og kynnir henni árlega stöðu jafnréttismála í flokknum.
Jafnréttisfulltrúi er flokksfélögum, kjördæmisráðum, þingflokki, framkvæmdastjórn og öllum félagsmönnum til ráðgjafar og aðstoðar í jafnréttismálum. Meðal annars til að vinna að jafnri þátttöku félagsmanna óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu í starfi á vegum flokksins.
Jafnréttisfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við stofnanir flokksins að stefnumótun í jafnréttismálum innan Framsóknarflokksins og stjórnmálastarfi á vegum hans innan stjórnkerfisins.
Jafnréttisnefnd flokksins hefur það hlutverk að fylgja eftir jafnréttisáætlun Framsóknarflokksins. Í jafnréttisnefnd eiga sæti fulltrúi frá KF, SUF, SEF og þingflokki auk framkvæmdastjóra flokksins. Jafnréttisfulltrúi skal vera formaður jafnréttisnefndar. Jafnréttisnefnd skal halda fundi eigi sjaldnar en tvisvar sinnum á ári.
Stjórnir kjördæmissambanda skulu í samvinnu við jafnréttisfulltrúa vinna að hugmyndum til að ná fram markmiðum jafnréttisáætlunarinnar í hverju kjördæmi fyrir sig.
Jafnréttisnefnd veitir viðurkenningu á flokksþingi þeirri flokksstofnun eða einstaklingum sem skarað hafa framúr að framgangi jafnréttismála. Jafnréttisnefnd getur óskað eftir tilnefningum.
Fræðsla og kynning
Fræðsla um jafnréttismál og leiðir til að vinna að jafnari stöðu félagsmanna óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu skal vera virkur þáttur í starfi jafnréttisfulltrúa.
Aðgengi
Öll eiga að hafa möguleika á því að taka þátt í flokksstarfinu, óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu. Sem dæmi má taka að jafnréttisfulltrúi kanni hvort að kosningar og viðburðir séu aðgengilegir og möguleiki sé að nálgast upplýsingar um kosningar og framboð á fleiri en einu tungumáli.
Kynjajafnrétti
Lög og reglur Framsóknarflokksins, kjördæmissambanda og framsóknarfélaga verði yfirfarnar með það að markmiði að tryggja jafna stöðu kynjanna en jafnframt skal markmiðið fela í sér jafna stöðu félagsmanna óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu.
Við röðun á framboðslista, skipan í nefndir, starfshópa og stjórnir á vegum flokksins skal hlutfall kynja vera sem jafnast. Jafnréttisfulltrúi verði í nánu samstarfi við þá sem málið varðar, ef þörf krefur. Ekki skulu vera fleiri en 60% af sama kyni í trúnaðar- og ábyrgðarstöðum á vegum flokksins. Á framboðslista skal gæta að þessu hlutfalli í efstu 5 sætunum.
Endurskoðunarákvæði
Áætlun þessi skal endurskoðuð annað hvert ár fyrir flokksþing. Endurskoðunin skal taka mið af könnun á árangri áætlunarinnar.
Endurskoðað í febrúar 2026.
Jafnréttisfulltrúi Framsóknar er Unnur Þöll Benediktsdóttir.
Í jafnréttisnefnd Framsóknar eru Unnur Þöll Benediktsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson, Berglind Sunna Bragadóttir, Karítas Ríkharðsdóttir og Þórunn Matthíasdóttir.