Núna er til umsagnar á heimasíðu velferðarráðuneytisins drög að frumvarpi félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingar á almannatryggingum. Frumvarpið er liður í heildarendurskoðun laga um almannatryggingar sem unnið hefur verið að um árabil.
Áhugavert er að skoða áhrif frumvarpsins á kynin en undirritaðar vilja benda sérstaklega á jafnréttismarkmið frumvarpsins sem miða að því að jafna stöðu kynjanna og tækifæri með auknu efnahagslegu jafnræði. Það þýðir að markmiðin ná til efnahagslegs jafnræðis kynjanna, jafnrar félagslegrar virkni og sjálfstæðis ásamt jöfnum tækifærum til góðrar heilsu.
Ein af þeim áskorunum sem samfélagið stendur frammi fyrir er að stærra hlutfall þjóðarinnar mun eiga rétt á lífeyrisgreiðslum. Því er nauðsynlegt að hækka lífeyristökualdurinn í áföngum í 70 ár. Í þessum drögum er tekið á því en meðfram þessari breytingu verður sveigjanleiki við starfslok aukinn og hvati skapaður til þess að einstaklingar geti haldið áfram á vinnumarkaði allt eftir getu hvers og eins.
Einnig er ætlunin að einfalda kerfið; sameina bótaflokka og fækka, afnema frítekjumörk og einfalda útreikninga. Þessar breytingar snerta sérstaklega konur þar sem bæta á kjör þeirra sem hafa áunnið sér lítinn eða engan rétt í lögbundna lífeyrissjóðakerfinu og þurfa því að reiða sig á almannatryggingakerfið hvað varðar framfærslu á efri árum. Með þessari breytingu verður fest í sessi lágmarksfjárhæð sem uppbótin tryggir þeim sem lægstar tekjur hafa og bætir þar með kjör þeirra.
Það er nefnilega þannig að þetta snertir konur sem eru nú 56% ellilífeyrisþega og því er ánægjulegt að í frumvarpinu eru breytingar sem ætlað er að auka réttindi þeirra þar sem staðreyndin hefur lengi verið að konur hafa lakari rétt til framfærslu en karlar. Að þessu sögðu er rétt að benda á að karlar í sömu stöðu munu njóta sambærilegra breytinga en þar sem konur eiga almennt minni rétt í lífeyrissjóðakerfinu má ætla að breytingarnar komi þeim til góða í meiri mæli og dragi úr mun á kjörum kynjanna.
Það er því með sanni hægt að segja að með þessu frumvarpi félags- og húsnæðismálaráðherra til breytinga á lögum um almannatryggingar, sé stigið ákveðið og mikilvægt skref í þá átt að jafna stöðu kynjanna, í því felast möguleikar til félagslegrar virkni, sjálfstæði og góðrar heilsu og vert er að þakka fyrir það.
Anna Kolbrún Árnadóttir og Sunna Gunnars Marteinsdóttir
Greinin birtist á www.visir.is 1. júlí 2016.