Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður Framsóknar í Norðausturkjördæmi, segir í færslu á Facebook að samgönguáætlun verði til síðari umræðu á Alþingi í dag ásamt frumvörpum um samvinnuverkefni(PPP) og hlutafélag um framkvæmd samgöngusáttmála.
Líneik Anna segir að öllum flýtiverkefnunum í fjárfestingarátaki 2020 verði fylgt eftir með fjárveitingum í fjármálaáætlun sem lögð verður fram í haust svo að þeim ljúki á árunum 2021-2023. Þar megi nefna framkvæmdir eins og:
- á flugvellinum á Egilsstöðum (flughlað) og Akureyri (flugstöð og flughlað)
- lýsing á Norðfjarðarflugvelli
- ýmis hafnarverkefni m.a. á Djúpavogi
- Borgafjarðarvegurinn, áframhaldandi viðbót í tengivegi og viðhald, o.fl.
- Einbreiðum brúm fækki
Við afgreiðslu áætlunarinnar fá mörg mikilvæg verkefni staðfestingu eins og:
- Öll verkefni áætlunarinnar eins og hún var lögð fyrir þingið
- Flýtiverkefni í fjárfestingarátaki 2020 (COVID)
- Ný flugstefna
- Ný stefna í almenningssamgöngum (ferjur, flug og strætó tengt saman)
- Samgöngusáttmáli fyrir höfuðborgarsvæðið (skipulagsvinna, framkvæmdi, stofnbrautir, forgangsakgreinar)
- Samvinnuverkefni í vegaframkvæmdum (Hornafjarðfljót, Öxi, o.fl.)
- https://www.facebook.com/plugins/post.php?href=https%3A%2F%2Fwww.facebook.com%2Flineikanna%2Fposts%2F10223159014346678&show_text=true&width=552&height=508&appId