48. Sambandsþing SUF 

Föstudagur 1. september 2023 ‒

Nú er liðið að árlegu Sambandsþingi SUF og verður það haldið helgina 1.-3. september í Norðvesturkjördæmi að þessu sinni, nánar tiltekið í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki, Suðurgötu 3. Hér neðar finnur þú drög að dagskrá.

Sambandsþing hefur æðsta vald í málefnum Sambands ungra Framsóknarmann. Þar er stefna sambandsþing mynduð, lög og ályktanir samþykkt. Einnig er kosið í nýja stjórn ár hvert auk formanns. Sambandsþing er enn fremur uppskeruhátíð ungs Framsóknarfólks. Tími til að hafa gaman og fyrir nýtt fólk að kynnast starfinu. Við hvetjum öll þau sem eru áhugasöm að taka þátt og skrá sig.

Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband við SUF með því að senda skilaboð á facebook eða öðrum miðlum.

Þau sem hafa verið skráð í Framsókn í það minnsta 30 dögum fyrir sambandsþing og hafa greitt þinggjöld hafa atkvæðisrétt á þinginu. Þau sem vilja skrá sig í flokkinn geta gert það með rafrænum skilríkjum hér: https://framsokn.is/ganga-i-flokkinn/

​Lagabreytingartillögur þurfa að berast á suf@suf.is minnst 14 dögum fyrir þingið, á sama hátt þurfa framboð til formanns SUF að berast til skrifstofu Framsóknar á netfangið framsokn@framsokn.is. Framboðsfrestur til stjórnar og varastjórnar SUF rennur út þegar kosningar verða á dagskrá þingsins. Lög SUF má finna í heild sinni á SUF.is.

Drög að dagskrá:

Föstudagurinn 1. september 
20:00 Óformleg kvölddagskránni
20:30 Kynning á lokaverkefni

Laugardagur 2. september
10:00 Þingsetning
– Kosning þingforseta
– Kosning þingritara
– Kosning starfsnefndar
10:15 Skýrsla stjórnar og ársreikningur
10:30 Lagabreytingar
11:00 Almennar umræður // Ávörp
12:00 Hádegishlé
13:00 Málefnavinna
16:00 Þinghlé
20:00 Hátíðarkvöldverður & skemmtun // Ávörp

Sunnudagur 3. september 
11:00 Kosningar
– Formaður
– Stjórn (12)
– Varastjórn (12)
– Skoðunarmenn reikninga (2)
– Varaskoðunarmenn reikninga (2)
12:00 Hádegishlé
12:59 Niðurstöður kosninga
13:00 Málefnavinna – áframhald // Afgreiðsla mála
16:00 Þingslit og heimferð
*Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar

STJÓRN SUF