Suðurnesjabær er ört vaxandi sveitarfélag á Suðurnesjum og íbúum fjölgar jafnt og þétt. Samkvæmt upplýsingum þjóðskrár er íbúafjöldi í Suðurnesjabæ kominn yfir 4.000, nánar tiltekið í alls 4.046. Þegar Suðurnesjabær varð til við sameiningu Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs fyrir fimm árum var íbúafjöldinn um 3.400. Íbúum hefur því fjölgað um 600 manns á þessum fimm árum, eða um 17,5%.
Staða atvinnumála er góð í sveitarfélaginu þar sem sjávarútvegur og flugtengd starfsemi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Suðurnesjabæ eru burðarpóstarnir í sveitarfélaginu á því sviði, einnig fjölgar störfum í ferðaþjónustu nokkuð.
Sjávarklasinn opnar Grænan iðngarð
Eftir að Norðurál Helguvík var tekið til gjaldþrotaskipta hefur verið unnið að því að selja þær eignir sem voru í eigu þrotabúsins. Nú liggur fyrir að Reykjanesklasinn eignast mannvirkið sem byggt var í þeim tilgangi að starfrækja álbræðslu Norðuráls. Samkvæmt tilkynningu sem Reykjanesklasinn hefur sent frá sér er ætlunin að nýta mannvirkið til þess að þróa þar og starfrækja Grænan iðngarð. „Ætlunin er að hýsa innlend og erlend fyrirtæki sem þurfa rými fyrir sprotastarf, rannsóknar- og tilraunastarfsemi, þróun, framleiðslu og samsetningu á vörum eða aðstöðu fyrir fiskeldi og ræktun, svo eitthvað sé nefnt.“ Þá kemur einnig fram að starfsemin muni m.a. byggjast á hugmyndafræði um hringrásarhagkerfi.
Smám saman er að færast aukið líf í Græna iðngarðinn í Suðurnesjabæ. Um er að ræða mjög metnaðarfullt verkefni sem byggist á hugmyndafræði um klasastarfsemi sem hefur sannað sig hjá Sjávarklasanum. Það verður áhugavert að fylgjast með framgangi málsins.
Uppbygging á innviðum sveitarfélagsins
Mikill uppbygging er að eiga sér stað í gatnagerð í báðum byggðarkjörnum, Sandgerði og Garði, sem mynda Suðurnesjabæ. Hefur úthlutun lóða og sala fasteigna verið mikil, sérstaklega með tilkomu hlutdeildarlána en sveitarfélagið er nú skilgreint sem vaxtarsvæði.
Nýlega var tekin í gagnið glæsileg stækkun við Gerðarskóla í Garði og þá er sveitarfélagið að byggja nýjan og glæsilegan leikskóla í Sandgerði sem telur sex deildir og eru áætluð verklok í mars 2024. Um að ræða byltingu í leikskólamálum í Suðurnesjabæ þar sem leikskólinn verður einn sá veglegasti á landinu. Svo er mikil vinna í gangi við endurnýjun og lagfæringu á eldri götum sveitarfélagsins sem hafa látið á sjá.
Áform um bætta aðstöðu til íþróttaiðkunar
Stækkun er hafin á húsnæði sundlaugarinnar í Sandgerði sem mun gera aðstöðu starfsfólks en betri og tryggja þannig meira öryggi sundlaugargesta.
Nýlega var samþykkt í bæjarráði Suðurnesjabæjar að fara af stað með frístundaakstur í sveitarfélaginu á milli byggðakjarna til að stuðla þannig að aukinni þátttöku ungmenna í íþróttum.
Í málefnasamningi B- og D-lista kemur fram að „bæta skal aðstöðu til íþróttaiðkunar með byggingu gervigrasvallar þar sem horft verði til framtíðar við hönnun hans og gert verði ráð fyrir að hægt verði að byggja yfir hann síðar“. Unnið er markvisst að þessari framkvæmd og er nú í gangi greiningarvinna um staðsetningu vallarins sem á að ljúka á allra næstu misserum. Því næst er að taka skjóta ákvörðun um staðsetningu hans til þess að uppbygging geti hafist.
Anton Guðmundsson, oddviti Framsóknar og formaður bæjarráðs í Suðurnesjabæ.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 13. október 2023.