Siðareglur Framsóknarflokksins
Tilgangur þessara siðareglna er að stuðla að trúmennsku, ábyrgð, heiðarleika, réttsýni og sanngirni. Þeim er ætlað að efla traust og tiltrú á störfum einstaklinga sem tala, skrifa eða tjá sig á annan hátt í nafni Framsóknarflokksins. Trúnaðarmenn, starfsmenn, frambjóðendur og kjörnir fulltrúar á vegum Framsóknarflokksins skulu ávallt stuðla að framgangi þessara reglna, styðja við þær og ganga á undan með góðu fordæmi. Siðareglurnar eru aðgengilegar á heimasíðu flokksins og þar aðgengilegar öllum, þær ná til allra félaga. Öllum sem gegna trúnaðarstörfum í nafni Framsóknarflokksins ber að fylgja lögum og siðareglum í störfum sínum.
1. gr. Virðing og traust.
Framsóknarflokkurinn starfar með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. Í störfum sínum ber félagsmönnum að hafa það hugfast og á þann hátt styðja hver annan í starfi.
2. gr. Heiðarleiki og hagsmunaárekstrar.
Öllum störfum í þágu flokksins skal gegna af trúmennsku og heiðarleika. Trúnaðarmenn og kjörnir fulltrúar skulu gera grein fyrir hagsmunatengslum og forðast hagsmunaárekstra sem geta haft óeðlileg áhrif á störf í þágu flokksins. Trúnaðarmenn og kjörnir fulltrúar skulu huga að hæfi sínu og mögulegum hagsmunaárekstrum þeirra eða tengdra aðila í hvívetna og segja sig frá ákvarðanatöku í málum þar sem hæfi þeirra eða hagsmunaárekstrar koma til álita. Trúnaðarmenn skulu ekki nýta stöðu sína til að hafa óeðlileg áhrif á innra starf flokksins og rýra gildi þess.
3. gr. Ábyrgð.
Flokksfélagar og starfsmenn eiga að vinna störf sín af háttvísi og samviskusemi og eiga ávallt að vera reiðubúnir að axla ábyrgð á verkum sínum. Framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins ályktar um ábyrgð vegna brota á reglum þessum í samræmi við lög Framsóknarflokksins, eftir álit siðanefndar. Grundvallarreglur góðrar stjórnsýslu eiga ávallt að vera hafðar í heiðri. Lögmæt og málefnaleg sjónarmið eiga ávallt að ráða för við ákvarðanatöku.
4. gr. Hlutlægni.
Ákvarðanir á að taka á yfirvegaðan hátt hverju sinni. Óheimilt er að misnota stöðu í eigin þágu eða annarra. Trúnaðarmenn eiga í hvívetna að gæta þess að fara vel með hlutverk sitt.
5. gr. Jafnrétti.
Jafnrétti á að hafa að leiðarljósi í öllum störfum á vegum flokksins, með það að markmiði að koma í veg fyrir mismunun svo sem vegna kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu.
6. gr. Trúnaðar- og persónuupplýsingar
Trúnaðarmenn flokksins eiga að virða trúnað í sínum störfum og vinna eftir gildandi reglum um þagnarskyldu jafnt innan flokks sem utan. Trúnaðarmönnum, er óheimilt að nýta trúnaðarupplýsingar í eigin ágóðaskyni. Persónuupplýsingar skal fara með af varfærni, ekki síst í aðdragandi kosninga.
7. gr. Gjafir og styrkir.
Framsóknarflokkurinn starfar samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálaflokka. Trúnaðarmönnum flokksins er óheimilt að þiggja gjafir eða fríðindi sem ætla má að gefnar séu í óeðlilegum tilgangi vegna stöðu þeirra.
8. gr. Tilkynningar til siðanefndar.
Brot á siðareglum eru litin alvarlegum augum. Félagsmenn sem verða vitni að eða vita af atvikum sem ætla má að brjóti gegn siðareglum flokksins eiga að tilkynna brotið afdráttarlaust og með rökstuðningi til siðanefndar skriflega. Siðanefnd skal afgreiða allar tilkynningar sem henni berast og halda trúnað um þær. Siðanefnd er heimilt að vísa frá tilkynningum ef enginn rökstuðningur fylgir með.
9. gr. Meðferð brota á siðareglum.
Meðferð tilkynninga um brot á siðareglum þessum fer að jafnaði fram í trúnaði. Framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins er heimilt að birta álit siðanefndar opinberlega ef veigamikil rök mæla með birtingu. Um málsmeðferð vegna brota á siðareglum þessum fer eftir lögum Framsóknarflokksins.
10. gr. Undirritun
Kjörnir fulltrúar skulu staðfesta skriflega við skrifstofu Framsóknarflokksins að þeir hafi kynnt sér framangreindar siðareglur.
Samþykkt á 31. Flokksþingi Framsóknarmanna 2011.
Svo breytt á 35. Flokksþingi Framsóknarmanna 2018.
Svo breytt á 38. Flokksþingi Framsóknar 2026
Formaður siðanefndar er Einar Sveinbjörnsson. Tilkynningar til siðanefndar berist til hans á netfangið:
Í siðanefnd eru einnig Gunnar Sær Ragnarsson og Sunna Hlín Jóhannesdóttir