Viðburðir
Viðburðir í febrúar
11/02/2026
Miðvikudagur
SUF kynnir kappræður: Ingibjörg Isaksen vs Lilja Alfreðsdóttir
Miðvikudagur 11. febrúar 2026 –
Kappræðurnar fara fram í Menningarhúsinu í Úlfarsárdal.
Spyrill: Elínborg Una Einarsdóttir
Útsending verður í beinni á Youtube síðu flokksins
Hlökkum til að sjá ykkur!

Samband ungra Framsóknarmanna
14/02/2026
Laugardagur
14.-15. febrúar 2026 –
38. Flokksþing Framsóknar verður haldið 14.-15. febrúar 2026 á Hilton Reykjavík Nordica í Reykjavík.
Nú styttist í 38. Flokksþing Framsóknar. Til að tryggja skilvirka framkvæmd þingsins er AFAR MIKILVÆGT að ganga frá forskráningu á þingið.
Sala miða á hátíðarkvöldverð lokar kl. 22:00 þriðjudaginn 10. febrúar. Athugið að takmarkaður miðafjöldi er í boði. Athugið einnig að bæði þarf að skrá sig á þingið og kaupa miða á kvöldverðinn.
Skráning á þingið: https://tix.is/event/20958/38-flokksthing-framsoknar
Miðasala á hátíðarkvöldverð: https://tix.is/event/20955/hatidarkvoldverdur-a-flokksthingi-framsoknar
Framsókn heldur reglulegt flokksþing eigi sjaldnar en annað hvert ár og skal það að jafnaði haldið fyrri hluta árs. Flokksþing Framsóknarmanna ákveður meginstefnu flokksins í landsmálum, setur flokknum lög og hefur æðsta vald í málefnum hans.
Mikilvægar dagsetningar:
- 15. janúar – viðmiðunardagur fulltrúatölu aðildarfélaga. 30. janúar – lagabreytingum skal í síðasta lagi á miðnætti skilað inn til flokksskrifstofu. 7. febrúar – kjörbréfum skal í síðasta lagi á hádegi skilað inn til flokksskrifstofu.
Verkefni flokksþings
- Á flokksþingi skal kjósa formann Framsóknarflokksins og skal hann jafnframt vera formaður miðstjórnar flokksins. Þá skal á flokksþingi kjósa varaformann, ritara og tvo skoðunarmenn reikninga. Einnig skal kjósa tvo meðstjórnendur í laganefnd og tvo til vara. Ennfremur skal kjósa tvo meðstjórnendur siðanefndar og tvo til vara.
- Hvert flokksfélag hefur rétt til að senda einn fulltrúa með atkvæðisrétt á flokksþing fyrir hverja 15 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu. Jafnmargir varamenn skulu kjörnir. Fulltrúatala skal miðast við félagatal eins og það liggur fyrir á skrifstofu flokksins 30 dögum fyrir flokksþing. Um fyrirkomulag kosninga fulltrúa fer eftir lögum einstakra aðildarfélaga. Aðildarfélög skulu tilkynna val sitt á fulltrúum á flokksþing til skrifstofu flokksins eigi síðar en viku áður en flokksþing er sett.
- Allir félagsmenn í flokknum hafa rétt til að sækja flokksþing og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
- Miðstjórnarmenn eiga sæti á flokksþingi með atkvæðisrétti.
Gott að vita:
- Forskráning á Flokksþingið fer fram hér: https://tix.is/event/20958/38-flokksthing-framsoknar
- Sala miða á hátíðarkvöldverðinn fer fram hér (ath. að takmarkað magn miða er í boði): https://tix.is/event/20955/hatidarkvoldverdur-a-flokksthingi-framsoknar
- Hilton býður þingfulltrúum tilboð í gistingu sem hægt er að bóka í gegnum þennan hlekk eða með afsláttarkóðanum WHPBB1: https://www.hilton.com/en/book/reservation/rooms/?ctyhocn=KEFHFHI&arrivalDate=2026-02-13&departureDate=2026-02-16&groupCode=WHPBB1&room1NumAdults=1&displayCurrency=ISK
- Íslandshótel býður þingfulltrúum tilboð í gistingu, er boðinn er 10% afsláttur af þeirra besta fáanlega verði, morgunverður innifalinn — smelltu hér til að bóka með 10% afslætti — einnig er hægt að setja afsláttarkóðann handvirkt inn við bókun: TOA5X7C10
- Reykjavík Lights Hotel býður þingfulltrúum tilboð í gistingu og er kóðinn “FRAMSOKN” yfir tímabilið 13.-15. febrúar 2026 — smelltu hér til að bóka —
- Auk þess er hægt að nálgast fjölbreytt úrval gististaða á Booking.com og airbnb.com
Drög að dagskrá***:
Laugardagur 14. febrúar 08:30 – Skráning, afhending þinggagna. 10:00 – Þingsetning. 10:10 – Kosning þingforseta, þingritara, kjörbréfanefndar, kjörstjórnar, samræmingarnefndar og dagskrárnefndar. 10:15 – Skýrsla ritara. 10:30 – Mál lögð fyrir þingið. 10:40 – Nefndastörf hefjast. 12:30 – Hádegishlé. 13:00 – Yfirlitsræða formanns. 13:30 – Almennar umræður. 16:00 – Nefndastörf. 20:00 – Hátíðarkvöldverður. Sunnudagur 15. febrúar 08:30 – Skráning og afhending þinggagna. 09:00 – Nefndastörf. 10:30 – Afgreiðsla mála. 12:00 – Hádegishlé. 13:00 – Kosningar: Formaður, varaformaður, ritari, laganefnd, siðanefnd, skoðunarmenn reikninga og löggiltan endurskoðenda. 14:30 – Afgreiðsla mála, framhald. 17:00 – Þingslit. *** Með fyrirvara um breytingar.
Málefnaskjöl fyrir flokksþing
Málefnanefnd hefur lokið við að uppfæra stefnu Framsóknar frá síðasta flokksþingi. Nefndin hefur endurraðað ályktununum, umorðað og bætt við nýjum ályktunum. Hóparnir á flokksþinginu munu vera að mestu leiti samsvarandi þingnefndum Alþingis.
- AMN: Allsherjar- og menntamálanefnd
- ATV: Atvinnuveganefnd
- VEL: Velferðarnefnd
- UMSAM: Umhverfis- og samgöngunefnd
- STJ: Stjórnskipunarnefnd
- UTN: Utanríkismálanefnd
- EHN: Efnahagsnefnd
Í málefnamöppunni er búið að skipta málaflokkunum, innan nefndanna, niður til að gera yfirferð þægilegri.
Hér má finna málefnamöppuna:
Við óskum eftir nýjum ályktunum og breytingartillögum frá framsóknarfélögum. Hægt er að senda inn tillögur til miðnættis 10. febrúar.
Málefnatillögur fyrir Flokksþing Framsóknar
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
19/02/2026
Fimmtudagur
Aðalfundur Framsóknarfélags Árborgar
Fimmtudagur 19. febrúar 2026 –
Boðað er til aðalfundar Framsóknarfélags Árborgar fimmtudaginn 19. febrúar að Eyravegi 15 á Selfossi kl. 20.00.

STJÓRN FRAMSÓKNARFÉLAGS ÁRBORGAR
Viðburðir í mars
05/03/2026
Fimmtudagur
Fimmtudagur 5. mars og föstudagur 6. mars 2026 –
Framboðsfundur fer fram fimmtudaginn 5. mars að Eyravegi 15 á Selfossi kl. 20:00.
- Framboðsfrestur rennur út á hádegi miðvikudaginn 18. febrúar og skulu framboð send á netfangið: arborg@framsokn.is – framboðstilkynningu skal fylgja: fullt nafn, símanúmer, ósk um sæti, kynningartexti og mynd.
Prófkjörspartý fer fram föstudaginn 6. mars að Eyravegi 15 á Selfossi og úrslit kjörsins kynnt.

Framsókn í Árborg
Viðburðir í maí
16/05/2026
Laugardagur
Laugardagur 16. maí 2026 –
Sveitarstjórnarkosningar fara fram þriðja laugardag í maímánuði sem ekki ber upp á laugardag fyrir hvítasunnu.
Beri sveitarstjórnarkosningar upp á laugardag fyrir hvítasunnu skal kjördegi flýtt um eina viku.
Kosningaréttur
- Allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag, og sem skráðir eru með lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi 38 dögum fyrir kjördag.
- Þeir námsmenn á Norðurlöndunum sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag, eiga kosningarrétt í því sveitarfélagi þar sem lögheimili þeirra var skráð við brottflutning.
- Allir danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgara sem eiga lögheimili á Íslandi og hafa náð 18 ára aldri á kjördag.
- Aðrir erlendir ríkisborgarar sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag og hafa átt lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag.

