24. Kjördæmisþing KFNA
Laugardaginn 26. október 2024 –
Boðað er til 24. Kjördæmisþings Kjördæmissambands Framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi (KFNA) laugardaginn 26. október 2024 að Selhóteli í Mývatnssveit.
Drög að dagskrá:
13:00 Setning og kosning starfsmanna þingsins
13:10 Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fram
13:30 Ávörp gesta
14:15 Almennar stjórnmálaumræður
15.15 Kaffihlé
15:30 Stjórnmálaályktanir
15:45 Nefndarstörf
16:30 Ályktanir lagðar fyrir þingið
17:00 Lagabreytingar
17:10 Tillaga um framboðslista lögð fram til samþykktar
17:20 Kosningar:
-
Þrjá fulltrúa í stjórn KFNA til tveggja ára og fimm varafulltrúa til eins árs.
-
Formann kjörstjórnar
-
Sex fulltrúa í kjörstjórn
-
Fulltrúa KFNA í miðstjórn Framsóknarflokksins samkvæmt lögum flokksins
-
Tvo skoðunarmenn reikninga
17:30 Önnur mál
18:00 Þingslit
19:00 Kvöldverður
***
Á kjördæmisþingi skal kjósa í eftirfarandi embætti:
- Annað hvert ár skal kjósa formann KFNA til tveggja ára.
- Þrjá aðalfulltrúa í stjórn KFNA til tveggja ára.
- Fimm varafulltrúa í stjórn til eins árs.
- Formann kjörstjórnar.
- Sex (6) fulltrúa í kjörstjórn.
- Fulltrúa KFNA í miðstjórn Framsóknarflokksins.
- Tveir (2) skoðunarmenn reikninga KFNA.
***
- Þinggjöld kr. 6.500,- pr. fulltrúa.
Aðildarfélög eru vinsamlegast beðin að borga fyrir sína félagsmenn samkvæmt kjörbréfi og leggja inná reikning KFNA kt: 691101-2740 reikningsnúmer 162-26-75740
í síðasta lagi þann 21. október.
- Kjörbréfum skal skila eigi síðar en þann 21. október á netfangið: gbg1@simnet.is
Kvöldverður verður hlaðborð með súpu dagsins, salatbar, reyktum silungi, gröfnum laxi, fiskrétti, lambalæri, smælki ásamt meðlæti, skútaís, berjaostaköku og kaffi.
Verð kr. 7.500
- Skráning í kvöldverð skal skila eigi síðar en 21. október á netfangið: gbg1@simnet.is
Gisting:
- Eins manns herbergi kr. 18.000 með morgunmat
- Tveggja manna herbergi kr. 22.000 með morgunmat
Panta þarf gistingu með tölvupósti á netfangið: myvatn@myvatn.is merkt Framsókn.
***
Úr lögum KFNA:
2. Um kjördæmisþing.
2.1. Kjördæmisþing hefur æðsta vald í málefnum KFNA. Á kjördæmisþingi skal marka stefnu sambandsins og taka ákvarðanir um starf þess, skipulag og fjárreiður.
2.2. Halda skal reglulegt kjördæmisþing fyrir 15. nóvember ár hvert. Þá skal halda aukakjördæmisþing ef þörf krefur. Stjórn KFNA boðar til kjördæmisþings. Boða skal til kjördæmisþings með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara á óvéfengjanlegan hátt. Í þingboði skal getið dagskrár. Kjördæmisþing er löglegt sé löglega til þess boðað. Ef brýn nauðsyn krefur er þó heimilt að boða til kjördæmisþings með fimm daga fyrirvara, en auglýsa skal þá fundarefnið opinberlega.
Eigi síðar en 15 dögum fyrir kjördæmisþing skal stjórn kjördæmissambandsins skipa starfsnefnd sem tekur á móti tillögum um frambjóðendur sem kosið verður um til trúnaðarstarfa.
2.3. Á kjördæmisþingi eiga sæti með atkvæðisrétti:
a) Einn fulltrúi fyrir hverja byrjaða 10 félagsmenn hvers aðildarfélags í kjördæminu. Þó aldrei færri en einn fulltrúi úr hverju sveitarfélagi á félagssvæðinu. Jafnmargir varafulltrúar skulu kjörnir.
b) Fulltrúatala einstakra aðildarfélaga skal miðast við félagaskrá eins og hún liggur fyrir á skrifstofu flokksins einum mánuði fyrir kjördæmisþing, þó að teknu tilliti til greinar 2.4 í lögum flokksins.
c) Stjórn KFNA.
d) Aðalmenn í miðstjórn Framsóknarflokksins sem búsettir eru í kjördæminu, auk þess fyrrverandi og sitjandi þingmenn og ráðherrar flokksins ásamt fulltrúum kjördæmisins í sveitarstjórnarráði.
e) Fulltrúar kjördæmisins í launþegaráði.
Þá skulu allir félagsmenn Framsóknarflokksins í kjördæminu eiga rétt á að sitja kjördæmisþing með málfrelsi og tillögurétt. Einnig skal framkvæmdastjórn flokksins og framkvæmdastjóri hans eiga þar seturétt með málfrelsi og tillögurétt.
2.4. Í upphafi kjördæmisþings skal kjósa kjörbréfanefnd, uppstillinganefnd og aðrar þingnefndir eftir ákvörðun hverju sinni. Í kjörbréfanefnd skulu kosnir 3 fulltrúar sem yfirfara og úrskurða um kjörbréf þingfulltrúa. Í uppstillinganefnd skulu kosnir 5 þingfulltrúar og skulu þeir leggja fyrir þingið tillögu að fulltrúum í þau embætti sem kjósa skal til skv. gr. 2.5. Allir félagar í flokksfélögum í kjördæminu eru kjörgengir í embætti skv. gr. 2.5..
2.5. Á kjördæmisþingi skal kjósa í eftirfarandi embætti:
a) Annað hvert ár skal kjósa formann KFNA til tveggja ára.
b) Þrjá aðalfulltrúa í stjórn KFNA til tveggja ára.
c) Fimm varafulltrúa í stjórn til eins árs.
d) Formann kjörstjórnar.
e) Sex (6) fulltrúa í kjörstjórn.
f) Fulltrúa KFNA í miðstjórn Framsóknarflokksins. Kjósa skal einn fulltrúa fyrir hverja 100 félagsmenn í kjördæminu eða brot úr þeirri tölu umfram 50. Kjör þeirra gildir á milli reglulegra kjördæmisþinga. Þriðjungur þeirra hið minnsta skal vera úr hópi ungs framsóknarfólks. Jafnmargir varamenn skulu kjörnir á sama hátt.
g) Tveir (2) skoðunarmenn reikninga KFNA.
***
Hlökkum til að sjá ykkur!
Stjórn KFNA