14/02/2026

Laugardagur

-

38. Flokksþing Framsóknar

14.-15. febrúar 2026 –
38. Flokksþing Framsóknar verður haldið 14.-15. febrúar 2026 á Hilton Reykjavík Nordica í Reykjavík. Framsókn heldur reglulegt flokksþing eigi sjaldnar en annað hvert ár og skal það að jafnaði haldið fyrri hluta árs. Flokksþing Framsóknarmanna ákveður meginstefnu flokksins í landsmálum, setur flokknum lög og hefur æðsta vald í málefnum hans.
Mikilvægar dagsetningar:
15. janúar – viðmiðunardagur fulltrúatölu aðildarfélaga. 30. janúar – lagabreytingum skal í síðasta lagi á miðnætti skilað inn til flokksskrifstofu. 7. febrúar – kjörbréfum skal í síðasta lagi á hádegi skilað inn til flokksskrifstofu. Á flokksþingi skal kjósa formann Framsóknarflokksins og skal hann jafnframt vera formaður miðstjórnar flokksins. Þá skal á flokksþingi kjósa varaformann, ritara og tvo skoðunarmenn reikninga. Einnig skal kjósa tvo meðstjórnendur í laganefnd og tvo til vara. Ennfremur skal kjósa tvo meðstjórnendur siðanefndar og tvo til vara. Hvert flokksfélag hefur rétt til að senda einn fulltrúa með atkvæðisrétt á flokksþing fyrir hverja 15 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu. Jafnmargir varamenn skulu kjörnir. Fulltrúatala skal miðast við félagatal eins og það liggur fyrir á skrifstofu flokksins 30 dögum fyrir flokksþing. Um fyrirkomulag kosninga fulltrúa fer eftir lögum einstakra aðildarfélaga. Aðildarfélög skulu tilkynna val sitt á fulltrúum á flokksþing til skrifstofu flokksins eigi síðar en viku áður en flokksþing er sett. Allir félagsmenn í flokknum hafa rétt til að sækja flokksþing og hafa þar málfrelsi og tillögurétt. Miðstjórnarmenn eiga sæti á flokksþingi með atkvæðisrétti. Drög að dagskrá: Laugardagur 14.02  08:30 – Skráning, afhending þinggagna og sala miða á hátíðarkvöldverð og ball  10:00 – Þingsetning   10:10 – Kosning þingforseta, þingritara, kjörbréfanefndar, kjörstjórnar, samræmingarnefndar og dagskrárnefndar  10:15 – Skýrsla ritara  10:30 – Mál lögð fyrir þingið  10:40 – Nefndastörf hefjast  12:30 – Hádegishlé  13:00 – Yfirlitsræða formanns   13:30 – Ræða varaformanns  13:45 – Almennar umræður  16:30 – Nefndastörf  20:00 - Hátíðarkvöldverður  Sunnudagur 15.02  08:30 – Skráning og afhending þinggagna  09:00 – Nefndastörf  10:30 – Afgreiðsla mála  12:00 - Hádegishlé  13:00 – Kosningar: Formaður, varaformaður, ritari, laganefnd, siðanefnd, skoðunarmenn reikninga og löggiltan endurskoðenda  14:00 – Afgreiðsla mála, framhald  17:00 – Þingslit    *** Með fyrirvara um breytingar 
FRAMSÓKNARFLOKKURINN