12/11/2025
Miðvikudagur
20:00 -
Aukakjördæmaþing KFR
Miðvikudagur 12. nóvember 2025 –
Boðað er til aukakjördæmaþings Kjördæmasambands Framsóknar í Reykjavík miðvikudaginn 12. nóvember kl. 20:00 á Hilton Reykjavik Nordica.
Drög að dagskrá:
1. Kosninga starfsmanna fundarins.
2. Aðferð við val á lista fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2026.
3. Önnur mál.
Á kjördæmaþingi eiga sæti með atkvæðisrétti:
- Einn fulltrúi fyrir hverja byrjaða 10 félagsmenn hvers aðildarfélags í kjördæmunum.
- Aðal- og varamenn í stjórn kjördæmasambandsins.
- Aðalmenn kjördæmanna í miðstjórn Framsóknarflokksins.
- Heiðursfélagar í aðildarfélögum í kjördæmunum 70 ára og eldri.
Formenn aðildarfélaga eru hvattir til þess að huga að kjörbréfum fyrir þingið og koma þeim sem fyrst á netfangið reykjavik@framsokn.is.
Þá eiga allir félagsmenn Framsóknarflokksins í kjördæmunum rétt á að sitja kjördæmaþing með málfrelsi og tillögurétt.
Hlökkum til að sjá sem flest!
