Aukakjördæmisþing KFNA
Laugardagur 19. október 2024 –
Boðað er til
aukakjördæmisþings KFNA laugardaginn 19. október 2024 á Teams kl. 14.00. (
HLEKKUR)
Fyrir aukakjördæmisþinginu liggur aðeins eitt mál sem er að afgreiða aðferð við val frambjóðenda fyrir komandi alþingiskosningar.
Vegna þeirrar stöðu sem upp er kominn er uppstilling á framboðslista flokksins sú aðferð sem rúmast innan þess þrönga tímaramma sem fyrir liggur, en þarf engu að síður samþykki kjördæmisþings.
Við munum svo halda áður auglýst reglulegt
kjördæmisþing KFNA 26. október á Sel hótel í Mývatnssveit og afgreiða hefðbundin þingstörf auk þess að afgreiða og samþykkja uppstillingu á framboðslista okkar hér í Norðausturkjördæmi.
Stjórn KFNA