Framboðsfundur verður haldinn mánudaginn 2. febrúar í sal Framsóknar að Hafnargötu 62 í Reykjanesbæ kl. 20:00.
Rafrænt prófkjör Framsóknar í Reykjanesbæ fer fram 7. febrúar og verður kosið um fjögur efstu sæti framboðslistans fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí.
Eftirfarandi frambjóðendur bjóða sig fram í prófkjörinu:
- Birgir Már Bragason, framkvæmdastjóri Keflavíkur, sækist eftir 2.–4. sæti.
- Díana Hilmarsdóttir, forstöðumaður Björginni geðræktarmiðstöð, sækist eftir 2.–3. sæti.
- Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri Geo Silica, sækist eftir 2.–3. sæti.
- Gunnar Jón Ólafsson, verkefnastjóri eldvarnaeftirlits hjá BS, sækist eftir 3.–4. sæti.
- Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri hjá Reykjanesbæ, sækist eftir 1. sæti.
- Róbert Jóhann Guðmundsson, málarameistari, sækist eftir 2. sæti.
Frestur til að skrá sig í Framsókn og þar með til þátttöku í prófkjörinu rennur út þann 31. janúar.
