26/10/2024

Laugardagur

13:00 - 17:00

24. Kjördæmisþing KSFS

Laugardagur 26. október 2024 —
Boðað er til 24. Kjördæmisþings Kjördæmissambands Framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi (KSFS) laugardaginn 26. október 2024 á Hótel Örk í Hveragerði. Þingsetning er kl. 13:00. Formenn aðildarfélaga eru hvattir til þess að huga að því að manna kjörbréf fyrir þingið og gott væri að áhugasamir félagsmenn myndu tilkynna sig til þeirra. Þinggjaldið er 5.000 kr. og innifalið í því er kaffihressing að hætti hússins meðan á þingi stendur.
Drög að dagskrá:
1. Þingsetning og kjör embættismanna þingsins: – Tveir þingforsetar – Tveir þingritarar – Starfsnefnd 2. Skýrslur stjórnar: – Skýrsla formanns – Skýrsla gjaldkera 3. Ávörp gesta. 4. Almennar stjórnmálaumræður. 5. Lagabreytingar. 6. Tillaga að framboðslista lögð fram til samþykktar. 7. Kosningar: a) Formaður KSFS. b) Varaformaður KSFS. c) Fimm fulltrúa í stjórn KSFS og sjö til vara. d) Formaður kjörstjórnar. e) Sex fulltrúa í kjörstjórn. f) Fulltrúa KSFS í miðstjórn Framsóknarflokksins samkvæmt lögum flokksins. g)  Þrír fulltrúar í launþegaráð og þrír til vara. h) Tveir skoðunarmenn reikninga og tveir til vara. 8. Önnur mál. 9. Þingslit. Formenn aðildarfélaga eru hvattir til þess að huga að því að manna kjörbréf fyrir þingið og gott væri að áhugasamir félagsmenn myndu tilkynna sig til þeirra. ***
Úr lögum KSFS um kjördæmisþing:
2. Um kjördæmisþing. 2.1  Kjördæmisþing hefur æðsta vald í málefnum KSFS. Á kjördæmisþingi skal marka stefnu sambandsins og taka ákvarðanir um starf þess, skipulag og fjárreiður. 2.2  Halda skal reglulegt kjördæmisþing ár hvert fyrir 15. nóvember. Þá skal halda aukakjördæmisþing ef þörf krefur. Stjórn KSFS boðar til kjördæmisþings. Boða skal til kjördæmisþings með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara á óvefengjanlegan hátt. Í þingboði skal getið dagskrár. Kjördæmisþing er löglegt sé löglega til þess boðað. Ef brýn nauðsyn krefur er þó heimilt að boða til kjördæmisþings með fimm daga fyrirvara en auglýsa skal þá fundarefnið opinberlega. Formaður kjördæmissambands setur kjördæmisþing og stýrir því þar til forsetar hafa verið kjörnir. Í upphafi þings skal kjósa fimm (5) manna starfsnefnd, sem taki þegar til starfa. Verksvið starfsnefndar skal vera a) Yfirfara kjörbréf. b) Sjá um kosningu til miðstjórnar og talningu atkvæða. c) Uppstilling til stjórnarkjörs, kosningar og talning atkvæða. Eigi síðar en 15 dögum fyrir kjördæmisþing skal stjórn  kjördæmissambandsins skipa starfsnefnd sem tekur á móti tillögum um frambjóðendur sem kosið verður um til trúnaðarstarfa. 2.3  Á kjördæmisþingi eiga sæti með atkvæðisrétti: a) Einn fulltrúi fyrir hverja byrjaða 10 félagsmenn hvers aðildarfélags í kjördæminu. Þó aldrei færri en einn fulltrúi úr hverju sveitarfélagi á félagssvæðinu. Jafnmargir varafulltrúar skulu kjörnir; Fulltrúatala einstakra aðildarfélaga skal miðast við félagaskrá eins og hún liggur fyrir á skrifstofu flokksins einum mánuði fyrir kjördæmisþing, þó að teknu tilliti til greinar 2.4. í lögum Framsóknarflokksins; b) Aðalmenn í stjórn KSFS; c) Aðalmenn í miðstjórn Framsóknarflokksins sem búsettir eru í kjördæminu; d) Formenn framsóknarfélaga í Suðurkjördæmi. Þá skulu allir félagsmenn Framsóknarflokksins í kjördæminu eiga rétt á að sitja kjördæmisþing með málfrelsi og tillögurétt. Einnig skal framkvæmdastjórn flokksins og framkvæmdastjóri hans eiga þar seturétt með málfrelsi og tillögurétt. Nú getur kjörinn fulltrúi eða varamaður hans ekki mætt á kjördæmisþingi og skal þá formaður þess félags sem hann tilheyrir, ákveða um fulltrúa í hans stað. 2.4  Á kjördæmisþingi skal kjósa í eftirfarandi embætti: a) Formann KSFS og varaformann; b) Fimm (5) fulltrúa að auki í stjórn KSFS og sjö (7) til vara; c) Formann kjörstjórnar; d) Sex (6) fulltrúa í kjörstjórn; e) Fulltrúa KSFS í miðstjórn Framsóknarflokksins skv. lögum hans; f) Þrjá fulltrúa í launþegaráð og þrjá til vara. h) Tveir (2) skoðunarmenn reikninga KSFS og tveir (2) til vara. ***
STJÓRN KSFS