21. Landsþing Kvenna í Framsókn
21. Landsþing Kvenna í Framsókn verður haldið laugardaginn 5. október 2024 á skrifstofu Framsóknar, Bæjarlind 14-16 í Kópavogi. Þingsetning verður kl. 13.00 og fyrirhugað að þingstörf standi til kl. 18:00.
Drög að dagskrá:
1. Hefðbundin aðalfundarstörf
a. Skýrsla stjórnar
b. Ársreikningar
2. Ávarp gesta
3. Stjórnmálaumræður
4. Ályktanir
5. Lagabreytingar
6. Kosningar
a. Formaður
b. Framkvæmdastjórn (4 og 2 til vara)
c. Landsstjórn – einn í hverju kjördæmi (6 og 6 til vara)
d. Skoðunarmenn reikninga (2)
7. Önnur mál
Skráning á þingið skal skila á netfangið
framsokn@framsokn.is.
Framboð í þau embætti sem kosið verður um á þinginu óskast send á netfangið
framsokn@framsokn.is fyrir 4. október.
Þingið er konum að kostnaðarlausu. Boðið verður upp á góðar kaffiveitingar.
Framkvæmdastjórn Kvenna í Framsókn