14/08/2024

Miðvikudagur

17:00 - 19:00

Umræður um húsnæðismál á höfuðborgarsvæðinu!

Miðvikudaginn 14. ágúst 2024 –
Þingmaðurinn Ágúst Bjarni Garðarsson boðar til fundar um húsnæðismál á höfuðborgarsvæðinu miðvikudaginn 14. ágúst í Bæjarbíói Hafnarfirði kl. 17:00-19:00. Yfirskrift fundarins er:
Tækifæri og áskoranir á húsnæðismarkaði og áhrif þeirra á íslenskt efnahagslíf til lengri og skemmri tíma!
Frummælendur eru:
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins
  • Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS
  • Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ
  • Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka þróunarfélags
  • Lilja Sólveig Kro, hagfræðingur Arion greining
Í pallborði verða: Sigurður Hannesson, Finnbjörn A. Hermannsson, Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra og frv. formaður stýrihóps um breytingar á byggingarreglugerð og Svanur Karl Grjetarsson eigandi MótX byggingarfélags Pallborði stýrir Ágúst Bjarni Garðarsson. Léttar veitingar að fundi loknum! Fundinum verður einnig streymt.
Ágúst Bjarni Garðarsson, alþingismaður