24/10/2023

Þriðjudagur

15:00 - 17:00

Vöfflukaffi á kvennafrídegi

Þriðjudagur 24. október 2023 –
Í tilefni af kvennafrídeginum 24. október mun Framsókn bjóða upp á Vöfflukaffi á skrifstofu okkar að Hverfisgötu 33, 3. hæð. Glóðvolgar vöfflur bíða konum og kvárum að samstöðufundi loknum sem fer fram á Arnarhóli kl 14:00 og því tilvalið að hlýja sér og halda samtöðunni áfram. Skrifstofa Framsóknar að Hverfisgötu 33 er með aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Verið öll hjartanlega velkomin.
Karlar í Framsókn