Kjördæmasambönd

Kjördæmasambönd

Flokksfélögin í hverju kjördæmi hafa með sér samstarfsvettvang sem kallast kjördæmissamband, nema í Reykjavík þar sem að þessi vettvangur kallast kjördæmasamband fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður og suður. Kjördæmissamböndin hafa umsjón með og/eða frumkvæði að flokksstarfi í kjördæminu. Til þeirra kasta koma þó fyrst og fremst sameiginleg mál eins og stefnumótun um málefni kjördæmisins, útgáfa flokksblaða í kjördæminu, samskipti við flokksforystuna og þingflokkinn og fleira þess háttar. Formenn kjördæmissambanda eiga sæti í landsstjórn flokksins.

Kjördæmissamböndin standa fyrir framboði til Alþingis í sínu kjördæmi þ.e. þau ákveða hvaða aðferð skuli nota við val á frambjóðendum, sjá um framkvæmd hennar og bera listann formlega fram. Þau sjá síðan um skipulagningu og rekstur kosningabaráttunnar á sínu svæði. Samböndin halda kjördæmisþing í október eða nóvember ár hvert. Það sækja trúnaðarmenn flokksins í kjördæminu og fulltrúar aðildarfélaga sambandsins (oftast einn fyrir hverja 10 félagsmenn). Þar er farið yfir starfið á liðnu ári, línurnar lagðar fyrir það næsta og ályktað um málefni kjördæmisins eða stjórnmálaástandið almennt. Þar eru einnig kjörnir fulltrúar í miðstjórn flokksins til eins árs í senn.  Fjöldi þeirra fer eftir fjölda félagsmanna í kjördæminu.

Reykjavík – KFR

Kjördæmasamband framsóknarfélaganna í Reykjavík
Hverfisgötu 33, 1. hæð
101 Reykjavík

Formaður: Stefán Þór Björnsson

Aðildarfélög:

  • Framsóknarfélag Reykjavíkur
  • UngFramsókn í Reykjavík

Suðvesturkjördæmi – KFSV

Kjördæmissamband framsóknarfélaganna í Suðvesturkjördæmi

Formaður: Guðmundur Birkir Þorkelsson

Aðildarfélög:

  • Framsóknarfélag Seltjarnarness
  • Framsóknarfélag Kópavogs
  • Framsóknarfélag Garðabæjar
  • Framsóknarfélag Hafnarfjarðar
  • Framsóknarfélag Mosfellsbæjar
  • Félag ungra framsóknarmanna á Seltjarnarnesi
  • Félag ungra framsóknarmanna í Kópavogi
  • Félag ungra framsóknarmanna í Hafnarfirði
  • Félag ungra framsóknarmanna í Garðabæ og Álftanesi – Denni
  • Félag framsóknarkvenna í Kópavogi – Freyja
  • Félag framsóknarkvenna í Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi – Harpa

Suðurkjördæmi – KSFS

Kjördæmissamband Framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi
Eyrarvegi 15 – Árborg
Hafnargötu 62 – Reykjanesbæ

Formaður: Björn Harðarson

Aðildarfélög:

  • Framsóknarfélag Reykjanesbæjar
  • Framsóknarfélag Grindavíkur
  • Framsóknarfélag Suðurnesjabæjar
  • Framsóknarfélag Árborgar
  • Framsóknarfélag Árnessýslu
  • Framsóknarfélag Hveragerðis
  • Framsóknarfélag Ölfuss
  • Framsóknarfélag Rangæinga
  • Framsóknarfélag Vestur-Skaftafellssýslu
  • Framsóknarfélag Austur-Skaftafellssýslu
  • Framsóknarfélag Vestmannaeyja
  • Félag framsóknarkvenna í Reykjanesbæ – Björk
  • Félag ungra framsóknarmanna á Suðurnesjum
  • Félag ungra framsóknarmanna í Árnes- og Rangárvallasýslu – Guðni
  • Félag ungra framsóknarmanna í Vestur-Skaftafellssýslu
  • Félag ungra framsóknarmanna í Austur-Skaftafellssýslu
  • Samtök framsóknarkvenna á Suðurlandi

Norðvesturkjördæmi – KFNV

Kjördæmissamband Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi
Heimilisföng:
Suðurgata 3 – Sauðárkróki
Pollgötu 4 – Ísafirði
Sunnubraut 21 – Akranesi

Formaður: Guðjón Ebbi Guðjónsson

Aðildarfélög:

  • Framsóknarfélag Akraness
  • Framsóknarfélag Borgarfjarðar og Mýra
  • Framsóknarfélag Stykkishólms
  • Framsóknarfélag Grundarfjarðar
  • Framsóknarfélag Snæfellsbæjar
  • Framsóknarfélag Snæfellsness- og Hnappadalssýslu
  • Framsóknarfélag Dala og Reykhóla
  • Framsóknarfélag Ísafjarðarbæjar
  • Framsóknarfélag Bolungarvíkur
  • Framsóknarfélag Barðastrandarsýslu
  • Framsóknarfélag Hólmavíkur
  • Framsóknarfélag Kaldrananeshrepps
  • Framsóknarfélag Árneshrepps
  • Framsóknarfélag Húnaþings vestra
  • Framsóknarfélag Austur-Húnavatnssýslu
  • Framsóknarfélag Skagafjarðar
  • Félag ungra framsóknarmanna á Akranesi
  • Félag ungra framsóknarmanna í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
  • Félag ungra framsóknarmanna í Húnavatnssýslum
  • Félag ungra framsóknarmanna í Skagafirði

Norðausturkjördæmi – KFNA

Kjördæmissamband Framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi
Tjarnarbraut 19, 700 Egilsstöðum

Formaður: Pálína Margeirsdóttir

Aðildarfélög:

  • Framsóknarfélag Fjallabyggðar
  • Framsóknarfélag Eyjafjarðarsveitar
  • Framsóknarfélag Grýtubakkahrepps
  • Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis
  • Framsóknarfélag Dalvíkurbyggðar
  • Framsóknarfélag Þingeyinga
  • Framsóknarfélag Bárðdæla
  • Framsóknarfélag Norður-Þingeyjarsýslu austan heiðar
  • Framsóknarfélag Vopnafjarðar
  • Framsóknarfélag Múlaþings
  • Framsóknarfélag Fjarðabyggðar
  • Félag ungra framsóknarmanna á Siglufirði
  • Félag ungra framsóknarmanna á Akureyri og nágrenni
  • Félag ungra framsóknarmanna á Mið-Austurlandi – Eysteinn