Framboðsreglur fyrir alþingiskosningar
Lög Framsóknarflokksins um aðferð við val á lista við alþingiskosningar:
Við alþingiskosningar skal kjördæmissamband bjóða fram lista Framsóknarflokksins í sínu kjördæmi. Heimilt er þó, ef eitt kjördæmasamband starfar í Reykjavík, að það bjóði fram á sínum vegum lista Framsóknarflokksins bæði í Reykjavíkurkjördæmi norður og Reykjavíkurkjördæmi suður. Kjördæmisþing velur aðferð við val og gengur endanlega frá framboðslista. Reglur um framboð eiga að liggja fyrir a.m.k. 6 mánuðum fyrir reglulegar alþingiskosningar. Reglur um val frambjóðenda geta verið af fimm gerðum: i) rafræn kosning; ii) lokað prófkjör; iii) tvöfalt kjördæmisþing; iv) uppstilling; v) opið prófkjör, sbr. gr. 5.1 í lögum Framsóknarflokksins.
Á Flokksþingi Framsóknarmanna 2011 voru gerðar ýmsar breytingar á lögum flokksins. Þar var samþykktur m.a. sérstakur kafli um framboðsmál til að skapa ákveðnari ramma um framboðsmál og tryggja samræmi milli kjördæma. Í lögum Framsóknarflokksins eru því skýrt skilgreindar leiðir við val á lista, sem og ákvæði um fresti og dagsetningar er varða kjörgengi og kosningarétt. Framboðsleiðirnar voru unnar í góðu samstarfi og samvinnu við fjölmarga flokksmenn.
Framboðsreglurnar tryggja að:
- það séu jöfn tækifæri fyrir alla til að bjóða sig fram
- félagsmenn hafi raunhæfa möguleika á að hafa áhrif
- þeir einir hafi áhrif á valið sem eðlilegt er að hafi áhrif
- sátt um ferlið og væntanlegar niðurstöður
- það sé samræmi milli vals frambjóðenda og almennrar stefnumörkunar flokksins
Viðmiðunarreglur vegna sveitar- og borgarstjórnarkosninga
Landsstjórn Framsóknar hefur samþykkt samræmdar viðmiðunarreglur um val á framboðslista sem gilda um alla valkosti í öllum sveitarfélögum. Kjördæmaþing, fulltrúaráð eða félagsfundur í hverju sveitarfélagi tekur ákvörðun um aðferð við röðun á lista.
Sveitarfélög geta valið eina af eftirfarandi aðferðum við val á frambjóðendum: a) rafræn kosning, b) lokað prófkjör, c) uppstilling og d) opið prófkjör. Jafnframt var samþykkt að Kjördæmasambandið í Reykjavík gæti viðhaft tvöfallt kjördæmaþing við val á frambjóðendum.
Aðildarfélög í viðkomandi sveitarfélagi bera ábyrgð á framboði til sveitarstjórnar, ákveða aðferð við val frambjóðenda, sjá um framkvæmd valsins og ganga frá framboðslista. Ef framboð er í samstarfi við aðra flokka eða samtök setur fulltrúaráð/félagsfundur framsóknarfélags reglur um framkvæmd slíks samstarfs.
Deila
