Laugardagur 29. október 2022
Boðað hefur verið til 22. Kjördæmisþings Kjördæmissambands Framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi (KSFS) laugardaginn 29. október á Hótel Höfn, Hornafirði. Þingsetning er kl. 13.00.
Fyrir fundargesti sem mæta snemma á Hornafjörð verður boðið upp á stuð og stemningu á föstudagskvöld.
Formenn aðildarfélaga eru hvattir til þess að huga að því að manna kjörbréf fyrir þingið og gott væri að áhugasamir félagsmenn myndu tilkynna sig til þeirra.
Þinggjaldið er 3.500 kr. og innifalið í því eru kaffiveitingar.
Drög að dagskrá:
1. Þingsetning og kjör embættismanna þingsins:
– Tveir þingforsetar
– Tveir þingritarar
– Starfsnefnd
2. Skýrslur stjórnar:
– Skýrsla formanns
– Skýrsla gjaldkera
3. Ávörp gesta
4. Almennar stjórnmálaumræður
5. Kosningar:
a) Formaður KSFS
b) Varaformaður KSFS
c) Fimm fulltrúa í stjórn KSFS og sjö til vara
d) Formaður kjörstjórnar
e) Sex fulltrúa í kjörstjórn
f) Fulltrúa KSFS í miðstjórn Framsóknarflokksins samkvæmt lögum flokksins
g) Þrír fulltrúar í launþegaráð og þrír til vara
h) Tveir skoðunarmenn reikninga og tveir til vara
6. Önnur mál
7. Þingslit
***
Formenn aðildarfélaga eru hvattir til þess að huga að því að manna kjörbréf fyrir þingið og gott væri að áhugasamir félagsmenn myndu tilkynna sig til þeirra. Formenn skulu senda kjörbréf á gissurj@simnet.is fyrir kl. 23:59 þann 27. október.
***
ÚR LÖGUM KSFS:
2. Um kjördæmisþing.
2.1 Kjördæmisþing hefur æðsta vald í málefnum KSFS. Á kjördæmisþingi skal marka stefnu sambandsins og taka ákvarðanir um starf þess, skipulag og fjárreiður.
2.2 Halda skal reglulegt kjördæmisþing ár hvert fyrir 15. nóvember. Þá skal halda aukakjördæmisþing ef þörf krefur. Stjórn KSFS boðar til kjördæmisþings. Boða skal til kjördæmisþings með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara á óvefengjanlegan hátt. Í þingboði skal getið dagskrár. Kjördæmisþing er löglegt sé löglega til þess boðað. Ef brýn nauðsyn krefur er þó heimilt að boða til kjördæmisþings með fimm daga fyrirvara en auglýsa skal þá fundarefnið opinberlega. Formaður kjördæmissambands setur kjördæmisþing og stýrir því þar til forsetar hafa verið kjörnir. Í upphafi þings skal kjósa fimm (5) manna starfsnefnd, sem taki þegar til starfa. Verksvið starfsnefndar skal vera a) Yfirfara kjörbréf. b) Sjá um kosningu til miðstjórnar og talningu atkvæða. c) Uppstilling til stjórnarkjörs, kosningar og talning atkvæða.
Eigi síðar en 15 dögum fyrir kjördæmisþing skal stjórn kjördæmissambandsins skipa starfsnefnd sem tekur á móti tillögum um frambjóðendur sem kosið verður um til trúnaðarstarfa.
2.3 Á kjördæmisþingi eiga sæti með atkvæðisrétti:
a) Einn fulltrúi fyrir hverja byrjaða 10 félagsmenn hvers aðildarfélags í kjördæminu. Þó aldrei færri en einn fulltrúi úr hverju sveitarfélagi á félagssvæðinu. Jafnmargir varafulltrúar skulu kjörnir; Fulltrúatala einstakra aðildarfélaga skal miðast við félagaskrá eins og hún liggur fyrir á skrifstofu flokksins einum mánuði fyrir kjördæmisþing, þó að teknu tilliti til greinar 2.4. í lögum Framsóknarflokksins;
b) Aðalmenn í stjórn KSFS;
c) Aðalmenn í miðstjórn Framsóknarflokksins sem búsettir eru í kjördæminu;
d) Formenn framsóknarfélaga í Suðurkjördæmi.
Þá skulu allir félagsmenn Framsóknarflokksins í kjördæminu eiga rétt á að sitja kjördæmisþing með málfrelsi og tillögurétt. Einnig skal framkvæmdastjórn flokksins og framkvæmdastjóri hans eiga þar seturétt með málfrelsi og tillögurétt. Nú getur kjörinn fulltrúi eða varamaður hans ekki mætt á kjördæmisþingi og skal þá formaður þess félags sem hann tilheyrir, ákveða um fulltrúa í hans stað.
2.4 Á kjördæmisþingi skal kjósa í eftirfarandi embætti:
a) Formann KSFS og varaformann;
b) Fimm (5) fulltrúa að auki í stjórn KSFS og sjö (7) til vara;
c) Formann kjörstjórnar;
d) Sex (6) fulltrúa í kjörstjórn;
e) Fulltrúa KSFS í miðstjórn Framsóknarflokksins skv. lögum hans;
f) Þrjá fulltrúa í launþegaráð og þrjá til vara.
h) Tveir (2) skoðunarmenn reikninga KSFS og tveir (2) til vara.
2.5 Á fyrsta reglulega kjördæmisþingi að loknum alþingiskosningum skal kjósa 3 fulltrúa KSFS í launþegaráð Framsóknarflokksins samkvæmt lögum flokksins. Jafnmargir varamenn skulu kjörnir. Kjósa skal fulltrúa úr hópi launþega í kjördæminu. Kjósa skal í einu lagi þannig að þeir þrír, sem efstir verða í kjörinu, skulu verða aðalfulltrúar og þeir þrír, sem næstir koma, verða varafulltrúar. Kjör launþegaráðsins gildir fram að fyrsta reglulega kjördæmisþingi sem haldið er að loknum næstu alþingiskosningum eftir að kjörið fer fram.
Kosningin skal fara fram í einu lagi þannig að þeir þrír sem efstir verða í kjörinu skulu verða aðalfulltrúar og þeir þrír sem næstir koma verða varafulltrúar.
2.6 Á fyrsta reglulega kjördæmisþingi að loknum sveitarstjórnarkosningum skal kjósa 3 fulltrúa KSFS í sveitarstjórnarráð Framsóknarflokksins samkvæmt lögum flokksins.
Jafnmargir varamenn skulu kjörnir.
Fulltrúar í sveitarstjórnarráði skulu vera aðalmenn í sveitarstjórn, sveitarstjórar eða bæjarstjórar og jafnframt félagsmenn í Framsóknarflokknum. Í þeim kjördæmum, þar sem svo háttar til að færri en 3 einstaklingar uppfylla þessi skilyrði, má kjósa varafulltrúa og eftir atvikum aðalfulltrúa í ráðið úr hópi varamanna í sveitarstjórn.
Kjör sveitarstjórnaráðs gildir fram að fyrsta reglulega kjördæmisþingi sem haldið er að loknum næstu sveitarstjórnakosningum eftir að kjör fer fram.
2.7 Að loknu hverju kjördæmisþingi skal stjórn KSFS senda skrifstofu flokksins skýrslu um störf sambandsins umliðið ár, upplýsingar um hverjir skipa stjórn og aðrar trúnaðarstöður á vegum þess, sem og afrit af skýrslum aðildarfélaga KSFS.
STJÓRN KSFS.