14. Kjördæmaþing KFR í fjarfundi

Þriðjudagur 7. desember 2021 –

Boðað er til 14. Kjördæmaþings Kjördæmasambands Framsóknar í Reykjavík (KFR) þriðjudaginn 7. desember 2021 í fjarfundi, kl. 20.00.

Praktískar upplýsingar með hlekk á þingið verður sendur þingfulltrúum er nær dregur.

Framkomin framboð og tilnefningar í ábyrgðarstöður gilda sbr. auglýsingu um Kjördæmaþing.

Athugið:  Stjórn KFR hefur samþykkt samhljóða að leggja fram tillögu fyrir þingið að fram fari lokað prófkjör skv framboðsreglum flokksins í Reykjavík í febrúar 2022 vegna borgarstjórnakosninga næsta vor.

Dagskrá kjördæmaþings skv. 6. gr. laga KFR:
  1. Kosning starfsmanna þingsins.
  2. Skýrsla stjórnar og ársreikningur 2020.
  3. Ávörp gesta.
  4. Lagabreytingar.
  5. Kosningar:
    1. Formaður KFR.
    2. 6 fulltrúar í stjórn KFR og 2 til vara.
    3. Formaður kjörstjórnar.
    4. 6 fulltrúar í kjörstjórn og 3 til vara.
    5. Miðstjórn (1 fulltrúi fyrir hverja byrjaða 100 félagsmenn og jafnmargir til vara. Kynjareglur og þriðjungur úr Ungum.)
    6. Launþegaráð – 3 fulltrúar og 3 til vara.
    7. 2 skoðunarmenn reikninga og 1 til vara.
  6. Aðferð við val á lista til borgarstjórnarkosninga 2022.
  7. Önnur mál.
Stjórn KFR.