Fjölskyldudagur Framsóknar í Reykjavík

Fjölskyldudagur 28. júní

Framsóknarfélagið í Reykjavík ásamt ungu Framsóknarfólki í Reykjavík býður ykkur hjartanlega velkomin á fjölskylduhátíð í Furulundi í Heiðmörk!

Fögnum dásamlegu sumri og eigum saman notalega stund í fallegu náttúruumhverfi. Við bjóðum upp á sumargrill, leiki og gleði fyrir alla aldurshópa – sannkölluð fjölskylduhátíð þar sem öll finna eitthvað við sitt hæfi.

  • Við grillum pylsur
  • Skemmtilegir leikir fyrir börn og fullorðna
  • Létt tónlist og notaleg stemning
  • Drykkir og meðlæti á meðan birgðir endast

Taktu með þér fjölskylduna, vinina og teppi eða dýnu til að sitja á og njóttu góðra samverustunda með Framsóknarfólki í Reykjavík. Lífið er skemmtilegra saman.

Sjá viðburð á Facebook.