36. Flokksþing Framsóknar verður haldið helgina 19.-20. mars á Grand hótel við Sigtún í Reykjavík.
Framsókn heldur reglulegt flokksþing sem haustfundur miðstjórnar boðar til, eigi sjaldnar en annað hvert ár og skal það að jafnaði haldið fyrri hluta árs.
Flokksþing Framsóknarmanna ákveður meginstefnu flokksins í landsmálum, setur flokknum lög og hefur æðsta vald í málefnum hans.
Á flokksþingi skal kjósa formann Framsóknarflokksins og skal hann jafnframt vera formaður miðstjórnar flokksins.
Þá skal á flokksþingi kjósa varaformann, ritara og tvo skoðunarmenn reikninga.
Einnig skal kjósa tvo meðstjórnendur í laganefnd og tvo til vara. Ennfremur skal kjósa tvo meðstjórnendur siðanefndar og tvo til vara.
Hvert flokksfélag hefur rétt til að senda einn fulltrúa með atkvæðisrétt á flokksþing fyrir hverja 15 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu. Jafnmargir varamenn skulu kjörnir.
Fulltrúatala skal miðast við félagatal eins og það liggur fyrir á skrifstofu flokksins 30 dögum fyrir flokksþing, þó að teknu tilliti til gr. 2.4. Um fyrirkomulag kosninga fulltrúa fer eftir lögum einstakra aðildarfélaga.
Aðildarfélög skulu tilkynna val sitt á fulltrúum á flokksþing til skrifstofu flokksins eigi síðar en viku áður en flokksþing er sett.
Allir félagsmenn í flokknum hafa rétt til að sækja flokksþing og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
Miðstjórnarmenn eiga sæti á flokksþingi með atkvæðisrétti.
Nánari dagskrá verður send út í næstu viku.
Mikilvægar dagsetningar:
- 17. febrúar – viðmiðunardagur fulltrúatölu aðildarfélaga.
- 4. mars – lagabreytingum skal í síðasta lagi á miðnætti skilað inn til flokksskrifstofu.
- 12. mars – kjörbréfum skal í síðasta lagi á hádeegi skilað inn til flokksskrifstofu.
Verð á hótelherbergjum:
- Einstaklingsherbergi með morgunmat kr. 18.900,-
- Tveggja manna herbergi með morgunmat kr. 21.900,-
Hátíðarskemmtun verður laugardagskvöldið 19. mars.