Halla Hrund Logadóttir, alþingismaður, kallar eftir þjóðarsjóði: „Kominn tími til að ræða þetta af alvöru“
Í ræðu á Alþingi vakti Halla Hrund Logadóttir máls á nauðsyn þess að stofna þjóðarsjóð sem safnar arði af sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar, einkum þeim sem finnast innan þjóðlendna.
Arður af ólíkum auðlindum
„Nýlega lagði forsætisráðherra fram skýrslu um ráðstöfun lands og landsréttinda innan þjóðlendna. Sú ágæta skýrsla vekur upp mikilvægar spurningar um hvernig við nýtum auðlindir okkar. Þjóðlendur þekja um 40% landsins en þetta eru svæði sem ekki eru háð einkaeignarrétti og því eru þetta sameiginlegar auðlindir okkar Íslendinga. Gegnsæi um samninga og gjaldtöku á þjóðlendum skiptir því miklu máli eins og í auðlindamálum almennt. Ég vil því í þessu samhengi vekja máls á stofnun þjóðarsjóðs sem í rynni arður af ólíkum auðlindum okkar Íslendinga, m.a. innan þjóðlendna. Það er kominn tími til að ræða stofnun slíks sjóðs af alvöru, ekki síst vegna þess að við erum að sjá aukna ásókn í nýtingu frá innlendum og erlendum aðilum. Hér er ég að tala um orkuvinnsluna, ég er að tala um jarðefnin, vatnið o.s.frv. Sem fyrirmynd getum við horft til olíusjóðs Norðmanna sem hefur tekist vel að ávaxta pundið fyrir framtíðarkynslóðir.
Þurfum að stofna þjóðarsjóð
Í nýlegri skýrslu fjármálaráðherra um langtímahorfur í efnahagsmálum er lítil umfjöllun um stórar fjármálaáskoranir, svo sem öldrun þjóðarinnar, fjárfestingu í innviðum fyrir landsbyggðina og líka óvissu í alþjóðamálum. Það eru einmitt þessar áskoranir sem munu hvíla þungt á okkur til lengri tíma og krefjast þess að við hugsum hlutina dálítið upp á nýtt þegar kemur að efnahagsmálunum. Brátt erum við síðan að horfa hér í þinginu á síðari umræðu um fjármálaáætlun þar sem við erum að ræða fjármálin opinberu til næstu ára. Mér fannst því vera rétti tímapunkturinn nú að vekja máls á stofnun þjóðarsjóðs. Það hefur verið lagt fram frumvarp sem nær að ákveðnu leyti utan um þessa hugsun sem hefur ekki náð fram að ganga en ég óska eftir nýju samtali um stofnun þjóðarsjóðs og samvinnu við framlagningu nýs frumvarps á haustþingi.“