Aukning verður á veiðiheimildum á svæðum A og B fyrir strandveiðibáta á strandveiðitímabilinu sem hefst 2. maí og stendur til 31. ágúst 2016. Önnur ákvæði um veiðisvæði, veiðidaga, hámarksafla á dag og fjölda handfærarúlla verða óbreytt frá fyrri árum.
Við úthlutun aflaheimilda er byggt á svæðaskiptingu; svæði A) nær frá A. Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps, svæði B) nær frá Strandabyggð til Grýtubakkahrepps, svæði C) nær frá Þingeyjarsveit til Djúpavogshrepps og svæði D) nær frá Hornafirði til Borgarbyggðar.
Strandveiðar hófust fyrst í júní 2009 og var heildarmagnið þá 4.000 tonn. Á komandi vertíð verður leyfilegur heildarafli 9.000 tonn og er það aukning um 400 tonn frá fyrra ári. Reikna má með að útgefin veiðileyfi verði rúmlega 700.
Svæði D sker sig töluvert úr hvað varðar meðalveiði á bát, en þar er veiði að jafnaði mun lakari en á hinum svæðunum. Síðustu tvö ár voru um 100-200 tonn óveidd á svæði D. Núverandi veiðidagar á svæðum gera ráð fyrir um 30 – 60 dögum í veiði. Fæstir veiðidagar eru á svæði A en flestir á svæði D.
Til þess að ná meiri jöfnuði í meðalveiði á bát á komandi vertíð fyrir svæði A, B og C mun aukningin fara á svæði A og að auki 150 tonn frá svæði D. Þá verða 50 tonn flutt af svæði D yfir á svæði B.
Svæði |
Meðal- dagafjöldi á bát 2014/2015 |
Meðalafli í kg. á bát á dag 2014/2015 | Meðalveiði alls tonn á bát 2014/2015 | Fjöldi báta á svæði 2014/2015 | Líkleg meðalveiði í tonnum á bát 2016 m.v. reglugerð | Breyting í tonnum á svæði 2016 |
A | 32 | 394 | 12,6 | 233 | 15,1 | + 550 |
B | 50 | 305 | 15,3 | 141 | 15,7 | + 50 |
C | 56 | 282 | 15,8 | 147 | 15,8 | 0 |
D | 66 | 171 | 11,3 | 120 | 11,3 | – 200 |
Úthlutun 2016:
Botnfiskur | Maí | Júní | Júlí | Ágúst | |
Svæði A | 852 | 1.023 | 1.023 | 512 | |
Svæði B | 521 | 626 | 626 | 313 | |
Svæði C | 551 | 661 | 661 | 331 | |
Svæði D | 520 | 455 | 195 | 130 |
Heimild: www.atvinnuvegaraduneyti.is