Við í Framsókn erum gríðarlega þakklát og auðmjúk yfir sigri okkar í sveitarstjórnarkosningunum. Við þökkum kjósendum kærlega fyrir stuðninginn og erum stolt af kosningabaráttunni. Er afar ánægjulegt að við skyldum ná að bæta eins mikið við fulltrúafjölda okkar í sveitarstjórnum um land allt.
Af B-listum Framsóknar voru kjörnir alls 69 sveitarstjórnarfulltrúar og hafa aldrei verið fleiri í annan tíma. Framsókn bætir við sig yfir landið allt af B-listum 23 sveitarstjórnarfulltrúum. Af blönduðum framboðum voru síðan kjörnir alls 38 sveitarstjórnfulltrúar, flokksbundnir í Framsókn. Þetta gerir samantekið alls 108 sveitarstjórnarfulltrúa um land allt.
Sigrarnir voru víðsvegar um landið
Stórsigur var í höfuðborginni Reykjavík þar sem Framsókn fékk 4 borgarfulltrúa kjörna og hefur aldrei átt fleiri fulltrúa i borgarstjórn. Framsókn fékk alls 11.227 atkvæði eða 18,73%.
- Reykjavík – 11.227 atkv. 4 fulltrúar eða 18,73% – +15,56%
Á höfuðborgarsvæðinu öllu var fjölgun sveitarstjórnarfulltrúa Framsóknar. Þar ber hæst stórsigur í Mosfellsbæ en þar fékk Framsókn 4 fulltrúa kjörna í bæjarstjórnina með 32,20% atkv. Það eru 12 ár frá því Framsókn átti síðast fulltrúa í bæjarstjórninni, kjörtímabilið 2006-2010. Í Kópavogi og í Hafnarfirði bætti Framsókn við einum bæjarfulltrúa í hvoru sveitarfélaganna. Í Garðabæ fékk B-listi Framsóknar á ný fulltrúa í bæjarstjórn, en síðast hlaut B-listi kjörna fulltrúa í kosningunum 2002, er kjörnir voru 2 bæjarfulltrúar með 26,64% atkv.
- Kópavogur – 2.489 atkv. 2 fulltrúar eða 15,16% – +6,99%
- Garðabær – 1.116 atkv. 1 fulltrúi eða 13,06% – +9,99%
- Hafnarfjörður – 1.750 atkv. 2 fulltrúar eða 13,67% – +5,64%
- Mosfellsbær – 1.811 atkv. 4 fulltrúar eða 32,2% – +29,26%
Í Norðvesturkjördæmi ber hæst hreinn meirihluti Framsóknar í Borgarbyggð, en þar hlaut Framsókn 49,66% atkv. Á Akranesi var bæting og einn bæjarfulltrúi til, alls hlut Framsókn 35,63% atkv. og 3 sveitarstjórnarmenn. Í nýju sameinuðu sveitarfélagi Blönduós og Húnavatshrepps fékk B-listinn 3 sveitarstjórnarfulltrúa eða 31,72% atkv.
- Akranes – 1.208 atkv. 3 fulltrúar eða 35,63% – +13,84%
- Borgarbyggð – 947 atkv. 5 fulltrúar eða 49,66% – +13,47%
- Ísafjarðarbær – 473 atkv. 2 fulltrúar eða 24,39% – +1,96%
- Húnaþing vestra – 217 atkv. 3 fulltrúar eða 34,61% – -20,1%
- Blönduós/Húnavatnahreppur – 249 atkv. 3 fulltrúar eða 31,72% – +31.72%
- Skagafjörður – 732 atkv. 3 fulltrúar eða 32,35% – -1.7%
Í Norðausturkjördæmi ber hæst hreinn meirihluti Framsóknar og óháðra á Vopnafirði, fékk 4 sveitarstjórnarfultrúa kjörna eða 50,67% atkv. Í Múlaþingi og í Fjarðabyggð bætti Framsókn við sig einum fulltrúa í hvoru sveitarfélaganna.
- Dalvíkurbyggð – 240 atkv. 2 fulltrúar eða 23,51% – -19,4%
- Akureyri – 1.550 atkv. 2 fulltrúar eða 17% – -0.53%
- Norðurþing – 489 atkv. 3 fulltrúar eða 31,61% – +5,22%
- Vopnafjörður – 190 atkv. 4 fulltrúar eða 50,67% – +13.35%
- Fjarðabyggð – 695 atkv. 3 fulltrúar eða 30% – +6,41%
- Múlaþing – 587 atkv. 3 fulltrúar eða 25,09% – +5,92%
Í Suðurkjördæmi ber hæst hreinn meirihluti í Mýrdalshreppi, 3 sveitarstjórnarfulltrúar með 53,31% atkv. B-listi Framfarasinna í Ölfusi bauð nú fram að nýju og hlut 2 sveitarstjórnarfulltrúa með 30,46% atkv. Í Hveragerði fékk B-listinn 2 sveitarstjórnarfulltrúa kjörna með 27,54% atkv. Í Reykjanesbæ bættist við einn bæjarfulltrúi til, 3 sveitarstjórnarfulltrúar kjörnir með 22,64% atkv.
- Hornafjörður – 381 atkv. 2 fulltrúar eða 31,67% – -24%
- Mýrdalshreppur – 193 atkv. 3 fulltrúar eða 53,31% – +53,31%
- Rangárþing eystra – 378 atkv. 3 fulltrúar eða 36,31% – -0,06%
- Árborg – 956 atkv. 2 fulltrúar eða 19,33% – +3,85%
- Hveragerði – 480 atkv. 2 fulltrúar eða 27,54% – +13%
- Ölfus – 381 atkv. 2 fulltrúar eða 30,46% – +30,46%
- Grindavík – 324 atkv. 1 fulltrúi eða 20,24 – +6,42%
- Suðurnesjabær – 304 atkv. 2 fulltrúar eða 18,88% – +2,38%
- Reykjanesbær – 1.536 atkv. 3 fulltrúar eða 22,64% – +8,72%