Categories
Fréttir

Vextir og verðbólga: Hvar er sleggjan?“

Deila grein

02/06/2025

Vextir og verðbólga: Hvar er sleggjan?“

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar, gagnrýnir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur fyrir að hafa ekki staðið við loforð um að lækka vexti og verðbólgu.

Í ræðu á Alþingi í dag rifjaði Sigurður Ingi upp að Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefði fyrir kosningar lofað landsmönnum að „negla niður vexti og verðbólgu“. Hún hefði meira að segja komið fram í sjónvarpi með risavaxna sleggju til að undirstrika þessi fyrirheit. Kjósendur hefðu því treyst henni fyrir því að bæta stöðu heimila landsins.

„Þegar kosið var til Alþingis hafði verðbólgan lækkað úr 10,2% í febrúar 2023 niður í 4,8% og hafði lækkað samfleytt síðustu fjóra mánuði,“ sagði Sigurður Ingi. „Seðlabankinn hafði jafnframt hafið vaxtalækkunarferli og almennt var litið svo á að hlutirnir væru á réttri leið.“

Sigurður Ingi sagði að miklar vonir hefðu verið bundnar við ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, en nú væru blikur á lofti. „Fyrstu 100 daga ríkisstjórnarinnar lækkuðu vextir og verðbólga áfram, þó hægar. En eftir að ríkisstjórnin hélt 100 daga afmæli sitt í embætti jókst verðbólga í fyrsta sinn í níu mánuði í apríl og Seðlabankinn hefur síðan hægt á vaxtalækkunum. Seðlabankastjóri virðist hafa sett vaxtalækkunarferlið á pásu þar til búið verður að ná tökum á verðbólgunni.“

Sigurður Ingi spurði forsætisráðherra beint út hvort þetta væri samkvæmt plani. „Formaður Samfylkingarinnar sagði fyrir kosningar að lækkun vaxta og verðbólgu væri pólitísk ákvörðun. Hún lofaði að negla þau niður þegar hún yrði forsætisráðherra. Nú hefur hið gagnstæða gerst: verðbólga hefur hækkað og vaxtalækkun er komin á pásu. Hvar er sleggjan?“