Categories
Fréttir

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir leiðir Framsókn í Reykjanesbæ

Deila grein

08/02/2026

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir leiðir Framsókn í Reykjanesbæ

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir verður áfram oddviti Framsóknar í Reykjanesbæ en hún varð efst í prófkjöri sem flokkurinn hélt í dag. Mjög góð þátttaka var, 876 kusu eða 63,48%.

Halldóra Fríða, sem hefur verið formaður bæjarráðs á kjörtímabilinu var ein sem bauð sig í efsta sætið. Hún hlaut 519 atkvæði.

Róbert Jóhann Guðmundsson hlaut flest atkvæði í 1.-2. sæti eða 268 en hann var í 4. sæti flokksins fyrir síðustu kosningar.

Í þriðja sæti með 337 atkvæði í 1.-3. sæti varð Díana Hilmarsdóttir en hún var í því sæti fyrir síðustu kosningar.

Í fjórða sæti með 396 atkvæði í 1.-4. sæti varð Birgir Már Bragason en hann gekk yfir til Framsóknar úr Beinni leið nýlega þar sem hann var á lista fyrir síðustu kosningar.