Sveitarstjórnarráðstefna Framsóknar

Föstudagur 19.apríl –

Í aðdraganda 37. Flokksþings Framsóknar er boðað til sveitarstjórnarráðstefnu, föstudaginn 19. apríl í Bæjarlind 14-16 og hefst hún kl. 17:00.
Frummælendur verða:
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar og fjármála- og efnahagsráðherra.
  • Fjármál ríkis og sveitarfélaga, framtíðarhorfur og aðkoma hins opinbera að kjarasamningum
Einar Þorsteinsson, borgarstjóri.
  • Breytingar í borginni! – Tækifæri og áskoranir.
Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoðarmaður fjármálaráðherra og sérfræðingur í skipulags- og byggingarmálum.
  • Skilvirkari byggingarreglugerð – aukið framboð.
Ásmundur Einar Daðason, ritari Framsókn og mennta- og barnamálaráðherra.
  • Málefni innflytjenda og fjöltyngdra barna
Að umræðu lokinni er boðið upp á veitingar að hætti hússins.
Vonandi sjá sem flestir sér færi til þess að mæta og taka þátt í umræðum og hita upp fyrir flokksþing.
Fyrir hönd stjórnar sveitarstjórnarráðs Framsóknar,
Einar Freyr Elínarson, formaður

Laugardagsfundur um málefni Múlaþings

Laugardagur 13. apríl –

Kæru félagar í Múlaþingi

Í vetur og vor ætlum við að vera með málefnafundi og veitingar í Austrasalnum að Tjarnarbraut 19, Egilsstöðum og er næsti fundur á laugardaginn 13. apríl kl. 11.

Við munum taka á móti gestum og gangandi og ræða málefni líðandi stundar og verða sveitarstjórnarmálin til umræðu á þessum fundi. Gestir fundarins eru Björn Ingimarsson sveitarstjóri og sveitarstjórnarfulltrúar Framsóknar þau Jónína Brynjólfsdóttir, Vilhjálmur Jónsson og Björg Eyþórsdóttir.

Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin

Ath. vegna takmarka á húsnæði okkar er aðgengi því miður ekki fullnægjandi.

Kær kveðja,

Framsóknarfélag Múlaþings

37. Flokksþing Framsóknar

20.-21. apríl 2024 –
37. Flokksþing Framsóknar verður haldið 20.-21. apríl á Hótel Hilton í Reykjavík. Framsókn heldur reglulegt flokksþing eigi sjaldnar en annað hvert ár og skal það að jafnaði haldið fyrri hluta árs. Flokksþing Framsóknarmanna ákveður meginstefnu flokksins í landsmálum, setur flokknum lög og hefur æðsta vald í málefnum hans. Þinggjaldið er kr. 10.000,- en fyrir öryrkja og námsfólk er þinggjaldið kr. 7.000,- 

Dagskrá:

Laugardagur 20. apríl –

Kl. 08:00 – Skráning, afhending þinggagna
Kl. 09:00 – Þingsetning – kosning þingforseta (4)
Kl. 09:10 – Kosning þingritara (4), kjörbréfanefndar (5), kjörstjórnar (7), samræmingarnefndar (3) og dagskrárnefndar (3)
Kl. 09:15 – Skýrsla ritara, Ásmundar Einars Daðasonar
Kl. 09:30 – Mál lögð fyrir þingið
Kl. 09:45 – Nefndastörf hefjast
Kl. 12:00 – Hádegishlé
Kl. 13:00 – Yfirlitsræða formanns, Sigurðar Inga Jóhannssonar
Kl. 13:30 – Ræða varaformanns, Lilju Daggar Alfreðsdóttur
Kl. 13:45 – Ávarp borgarstjóra, Einars Þorsteinssonar
Kl. 14:00 – Almennar umræður
Kl. 15:45 – Íslensk kvikmyndagerð – Baltasar Kormákur
Kl. 15:40 – Afgreiðsla mála – lagabreytingar
Kl. 16:00 – Nefndastörf, framhald
Kl. 19:00 – Fordrykkur
Kl. 20:00 – Kvöldverðarhóf

Sunnudagur 21. apríl –

Kl. 08:30 – Skráning og afhending þinggagna
Kl. 09:00 – Nefndastörf, framhald
Kl. 09:30 – Lagabreytingar – afgreiðsla
Kl. 10:00 – Afgreiðsla mála
Kl. 11:30 – Kosningar: Formaður, varaformaður, ritari, laganefnd, siðanefnd og skoðunarmenn reikninga
Kl. 12:00 – Hádegishlé
Kl. 13:00 – Afgreiðsla mála, framhald
Kl. 16:30 – Önnur mál
Kl. 17:00 – Þingslit

Drög að ályktunum flokksþings

  1. Innviðir – drög

  1. Heilbrigði og málefni eldra fólks – drög

  1. Menning, viðskipti og efnahagur – drög

  1. Mennta- og barnamál – drög

  1. Stjórnskipan, mannréttindi, málefni innflytjenda og utanríkismál – drög

  1. Atvinnumál – drög

  1. Umhverfis-, orku- og loftslagsmál – drög

  1. Laganefnd – drög

Skýrsla og tillögur um innra starf

Miðar á hátíðarkvöldverð og ballMiðar á hátíðarkvöldverð eru til sölu á tix.is og innifalið er fordrykkur, þriggja rétta kvöldverður, skemmtun, PATRi!K – Prettyboychoco og ball með hljómsveitinni Sunnan 6. Síðasti möguleiki á að kaupa miða er á mánudaginn.

Upphitun fyrir Flokksþing

Í tilefni Flokksþings flokksins helgina 20.-21. apríl þá bjóðum við Framsóknarfólki að koma og þjófstarta helgini með okkur!

Viðburðurinn fer fram í Kópavogi, Bæjarlind 14-16 og hefst kl. 20.00.

Mikilvægar dagsetningar:

  • 21. mars – viðmiðunardagur fulltrúatölu aðildarfélaga.
  • 5. apríl – lagabreytingum skal í síðasta lagi á miðnætti skilað inn til flokksskrifstofu.
  • 13. apríl – kjörbréfum skal í síðasta lagi á hádegi skilað inn til flokksskrifstofu.

Á flokksþingi skal kjósa formann Framsóknarflokksins og skal hann jafnframt vera formaður miðstjórnar flokksins. Þá skal á flokksþingi kjósa varaformann, ritara og tvo skoðunarmenn reikninga. Einnig skal kjósa tvo meðstjórnendur í laganefnd og tvo til vara. Ennfremur skal kjósa tvo meðstjórnendur siðanefndar og tvo til vara. Hvert flokksfélag hefur rétt til að senda einn fulltrúa með atkvæðisrétt á flokksþing fyrir hverja 15 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu. Jafnmargir varamenn skulu kjörnir. Fulltrúatala skal miðast við félagatal eins og það liggur fyrir á skrifstofu flokksins 30 dögum fyrir flokksþing. Um fyrirkomulag kosninga fulltrúa fer eftir lögum einstakra aðildarfélaga. Aðildarfélög skulu tilkynna val sitt á fulltrúum á flokksþing til skrifstofu flokksins eigi síðar en viku áður en flokksþing er sett. Allir félagsmenn í flokknum hafa rétt til að sækja flokksþing og hafa þar málfrelsi og tillögurétt. Miðstjórnarmenn eiga sæti á flokksþingi með atkvæðisrétti.

Bílastæði á flokksþingi

Norðan megin við Hilton hótel:

Sunnan megin við Hilton hótel:

FRAMSÓKN

Framsóknarvist

Sunnudagur 14.apríl –

Kæra Framsóknarfólk verið velkomin á Framsóknarvist sunnudaginn 14. apríl n.k.

Ekki er gerð krafa um að kunna að spila vist. Læra má vist á staðnum.

 Sunnudagur, 14. apríl
 13:00
 Hverfisgata 33

Sigrún Magnúsdóttir, fyrrum ráðherra verður með tölu um Framsóknarvist hér á árum áður í hléinu.

Kostar ekkert að spila en hægt verður að kaupa kaffi og bakkelsi.

Hlekkur á Facebook-viðburð: https://fb.me/e/1Nnr5vQGV

Öll velkomin óháð aldri!

Sjáumst,
Stjórn Ung Framsókn í Reykjavík og Samband eldri Framsóknarmanna.

Páskabingó – Reykjavík

May be an image of text

Páskabingó fyrir alla fjölskylduna verður laugardaginn 23. mars kl. 14:00 á Hverfisgötu 33.
Ekki missa af ósvikinni páskagleði og möguleika á að vinna páskaegg!
Sjáumst!

Framsókn í Reykjavík

Opinn fundur með Sigurði Inga – Borgarnes

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknar verður með opinn fund í Arinstofunni, Landnámssetri Íslands, Borgarnesi, 19. mars, kl. 20:00.

HÉR má sjá viðburðinn á Facebook.

Verið öll hjartanlega velkomin!

 

 

Opinn fundur í kjördæmaviku – Vopnafjörður

Miðvikudagur 28. febrúar –

Opinn fundur með þingmönnum Framsóknar í Norðausturkjördæmi þeim Ingibjörgu Isaksen, þingflokksformanni, Líneik Önnu Sævarsdóttur og Þórarni Inga Péturssyni, formanni atvinnuveganefndar.
Hlökkum til að eiga gott samtal!
Hvar: Safnaðarheimilinu, Vopnafirði.

Framsókn

Opinn fundur í kjördæmaviku – Sauðárkrókur

Fimmtudagur 29. febrúar –

May be an image of 3 people and text

Opinn fundur með þingmönnum Framsóknar í Norðvesturkjördæmi þeim Stefáni Vagni Stefánssyni, formanni fjárlaganefndar, Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur og Höllu Signýju Kristjánsdóttur.
Sérstakir gestir fundarins verða sveitarstjórnarfulltrúar Framsóknar í Skagafirði þau Einar Eðvald Einarsson, formaður byggðaráðs, Hrund Pétursdóttir og Hrefna Jóhannesdóttir.
Hlökkum til að eiga gott samtal!
Hvar: kaffi krókur, Aðalgötu 16, Sauðárkróki

Framsókn

Opinn fundur í kjördæmaviku – Hafnarfjörður

Laugardagur 2. mars –

May be an image of 2 people and text

Opinn fundur með Ágústi Bjarna Garðarssyni þingmanni Framsóknar í Suðvesturkjördæmi. Með Ágústi Bjarna verður Margrét Vala Marteinsdóttir bæjarfulltrúi Framsóknar Í Hafnarfirði.
Hlökkum til að eiga gott samtal!
Hvar: Kiwanissalnum, Helluhrauni 22, Hafnarfirði

Framsókn

Opinn fundur í kjördæmaviku – Egilsstaðir

Fimmtudagur 29. febrúar –

May be an image of 4 people and text

Opinn fundur með Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra. Með Willum á fundinum verða þingmenn Framsóknar í Norðausturkjördæmi þau Ingibjörg Isaksen, þinflokksformaður, Líneik Anna Sævarsdóttir og Þórarinn Ingi Pétursson formaður atvinnuveganefndar.

Sérstakir gestir verða sveitarstjórnarfulltrúar Framsóknar í Múlaþingi þau Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar, Vilhjálmur Jónsson og Björg Eyþórsdóttir.

Hlökkum til að eiga gott samtal!

Hvar: Tehúsið, Kaupvangi 17, Egilsstöðum

Framsókn