38. Flokksþing Framsóknar verður haldið 14.-15. febrúar 2026 á Hilton Reykjavík Nordica í Reykjavík.
Framsókn heldur reglulegt flokksþing eigi sjaldnar en annað hvert ár og skal það að jafnaði haldið fyrri hluta árs. Flokksþing Framsóknarmanna ákveður meginstefnu flokksins í landsmálum, setur flokknum lög og hefur æðsta vald í málefnum hans.
Mikilvægar dagsetningar:
15. janúar – viðmiðunardagur fulltrúatölu aðildarfélaga.
30. janúar – lagabreytingum skal í síðasta lagi á miðnætti skilað inn til flokksskrifstofu.
7. febrúar – kjörbréfum skal í síðasta lagi á hádegi skilað inn til flokksskrifstofu.
Verkefni flokksþings
Á flokksþingi skal kjósa formann Framsóknarflokksins og skal hann jafnframt vera formaður miðstjórnar flokksins. Þá skal á flokksþingi kjósa varaformann, ritara og tvo skoðunarmenn reikninga. Einnig skal kjósa tvo meðstjórnendur í laganefnd og tvo til vara. Ennfremur skal kjósa tvo meðstjórnendur siðanefndar og tvo til vara.
Hvert flokksfélag hefur rétt til að senda einn fulltrúa með atkvæðisrétt á flokksþing fyrir hverja 15 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu. Jafnmargir varamenn skulu kjörnir. Fulltrúatala skal miðast við félagatal eins og það liggur fyrir á skrifstofu flokksins 30 dögum fyrir flokksþing. Um fyrirkomulag kosninga fulltrúa fer eftir lögum einstakra aðildarfélaga. Aðildarfélög skulu tilkynna val sitt á fulltrúum á flokksþing til skrifstofu flokksins eigi síðar en viku áður en flokksþing er sett.
Allir félagsmenn í flokknum hafa rétt til að sækja flokksþing og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
Miðstjórnarmenn eiga sæti á flokksþingi með atkvæðisrétti.
Gott að vita:
- Forskráning á Flokksþingið fer fram hér: https://tix.is/event/20958/38-flokksthing-framsoknar
- Sala miða á hátíðarkvöldverðinn fer fram hér (ath. að takmarkað magn miða er í boði): https://tix.is/event/20955/hatidarkvoldverdur-a-flokksthingi-framsoknar
- Hilton býður fulltrúum tilboð í gistingu sem hægt er að bóka í gegnum þennan hlekk eða með afsláttarkóðanum WHPBB1: https://www.hilton.com/en/book/reservation/rooms/?ctyhocn=KEFHFHI&arrivalDate=2026-02-13&departureDate=2026-02-16&groupCode=WHPBB1&room1NumAdults=1&displayCurrency=ISK
Drög að dagskrá***:
Laugardagur 14. febrúar
08:30 – Skráning, afhending þinggagna og sala miða á hátíðarkvöldverð og ball.
10:00 – Þingsetning.
10:10 – Kosning þingforseta, þingritara, kjörbréfanefndar, kjörstjórnar, samræmingarnefndar og dagskrárnefndar.
10:15 – Skýrsla ritara.
10:30 – Mál lögð fyrir þingið.
10:40 – Nefndastörf hefjast.
12:30 – Hádegishlé.
13:00 – Yfirlitsræða formanns.
13:30 – Ræða varaformanns.
13:45 – Almennar umræður.
16:30 – Nefndastörf.
20:00 – Hátíðarkvöldverður.
Sunnudagur 15. febrúar
08:30 – Skráning og afhending þinggagna.
09:00 – Nefndastörf.
10:30 – Afgreiðsla mála.
12:00 – Hádegishlé.
13:00 – Kosningar: Formaður, varaformaður, ritari, laganefnd, siðanefnd, skoðunarmenn reikninga og löggiltan endurskoðenda.
14:00 – Afgreiðsla mála, framhald.
17:00 – Þingslit.
*** Með fyrirvara um breytingar.
