Categories
Fréttir

Einar Þorsteinsson og Magnea Gná Jóhannsdóttir leiða Framsókn í Reykjavík

Deila grein

08/02/2026

Einar Þorsteinsson og Magnea Gná Jóhannsdóttir leiða Framsókn í Reykjavík

Einar Þorsteinsson og Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúar munu leiða lista Framsóknar í borgarstjórnarkosningunum í vor. Bindandi kosning í fjögur efstu sæti á framboðslista Framsóknar í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor fóru fram á tvöföldu kjördæmaþingi í dag.

Niðurstaðan var eftirfarandi:

  1. Einar Þorsteinsson borgarfulltrúi (sjálfkjörinn)
  2. Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi (sjálfkjörin)
  3. Þorvaldur Daníelsson framkvæmdastjóri Hjólakrafts
  4. Halldór Bachman kynningarstjóri Almenna lífeyrissjóðsins

Kjörstjórn mun nú stilla upp frambjóðendum í önnur sæti listans og verður listinn borinn upp til samþykktar þann 28 febrúar.

„Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt með því að fela mér að leiða lista Framsóknar í kosningunum í vor. Við höfum sýnt það á þessu kjörtímabili að við erum í stjórnmálum til að ná árangri fyrir borgarbúa. Stjórnmál snúast um verkefnin en ekki valdastólana og við höfum séð á þessu kjörtímabili hvaða flokkar eru ekki til í þær nauðsynlegu breytingar sem íbúar kalla eftir,“ sagði Einar Þorsteinsson.