Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur kynnt nýuppfærða Félagsvísa í ríkisstjórnar. Félagsvísar eru safn tölulegra upplýsinga sem varpa ljósi á fjölmörg atriði sem varða lífskjör þjóðarinnar og mismunandi stöðu skilgreindra hópa í samfélaginu. Þetta er í fjórða sinn sem Félagsvísar eru birtir.
Megintilgangurinn með félagsvísum er að auðvelda stjórnvöldum og almenningi að fylgjast með þróun og breytingum í samfélaginu og áhrifum þeirra á hagi fólks. Félagsvísar ná alla jafna yfir 10 ára tímabil og gera því kleift að fylgjast með þróun á þeim sviðum velferðarmála sem mæld eru. Gögnin eru sundurgreind eftir kyni, aldri og heimilisgerð svo unnt sé að skoða mismunandi aðstæður fólks eftir hópum á þeim sviðum velferðarmála sem vísarnir taka til.
Félagsvísum er ætlað að einfalda og bæta aðgengi stjórnvalda, almennings, hagsmunaaðila og rannsakenda að upplýsingum þar sem velferð, heilbrigði, vellíðan og þarfir íbúanna eru í brennidepli. Vísarnir eiga þannig að nýtast m.a. til stefnumótunar og ákvarðanatöku á sviði velferðarmála.
Sem dæmi um upplýsingar sem lesa má út úr Félagsvísum má nefna menntun, atvinnuþátttöku, upplýsingar um tekjur, eignir, skuldir og húsnæði eftir fjölskyldugerð, kyni og aldri, upplýsingar um notkun heilsugæslu, lyfjanotkun og ýmsar upplýsingar sem snúa að viðhorfum almennings til félagslegra og efnahagslegra gæða, upplýsingar um þátttöku barna í íþróttum og tómstundum, upplýsingar um samveru barna og foreldra og svo mætti áfram telja.
Categories
Lífskjör þjóðarinnar og staða skilgreindra hópa í samfélaginu
24/02/2016
Lífskjör þjóðarinnar og staða skilgreindra hópa í samfélaginu