Kjördæmissamband Framsóknar í Reykjavíkur (KFR) hefur samþykkt framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavík suður á fjölmennu aukaþingi sambandsins að Nauthóli í Reykjavík rétt í þessu.
Í fyrsta sæti er Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknar.
Í öðru sæti er Einar Bárðarson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi.
Í þriðja sæti er Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi og formaður ungs framsóknarfólks í Reykjavík.
Í fjórða sæti er Þorvaldur Daníelsson, framkvæmdarstjóri og 1. varaborgarfulltrúi.
Í fimmta sæti er Dagbjört S. Höskuldsdóttir, fyrrum kaupmaður og útibússtjóri.
,,Ég er stolt af því að leiða þennan öfluga lista Framsóknar í Reykjavík suður. Listinn er fjölbreyttur og samanstendur af vinnusömu og góðu fólki sem vill láta gott af sér leiða fyrir samfélagið. Stærsta hagsmunamál heimila og fyrirtækja er að ná niður verðbólgu og vöxtum. Það voru jákvæð tíðindi þegar að Seðlabankinn lækkaði vexti með síðustu ákvörðun sinni, en algjört forgangsmál er að tryggja af festu og ábyrgð að sú þróun haldi áfram,‘‘ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, oddviti listans og varaformaður Framsóknar.
Listi Framsóknar í Reykjavíkurkjördæmi suður í heild sinni:
1. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknar.
2. Einar Bárðarson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi.
3. Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi og formaður Ungs Framsóknarfólks í Reykjavík.
4. Þorvaldur Daníelsson, framkvæmdarstjóri og 1. varaborgarfulltrúi.
5. Dagbjört S. Höskuldsdóttir, fyrrum kaupmaður og útibússtjóri.
6. Ólafur Hrafn Steinarsson, stofnandi Esports Coaching Academy.
7. Helena Ólafsdóttir, knattspyrnuþjálfari og þáttastjórnandi.
8. Hafdís Inga Helgudóttir Hinriksdóttir, klínískur félagsráðgjafi MA.
9. Ágúst Guðjónsson, lögfræðingur.
10. Aron Ólafsson, markaðsstjóri.
11. Jóhanna Sóley Gunnarsdóttir, sjúkraliði.
12. Björn Ívar Björnsson, fjármálastjóri KR.
13. Ásta Björg Björgvinsdóttir, tónlistarkona og forstöðukona í félagsmiðstöð.
14. Jón Finnbogason, sérfræðingur.
15. Emilíana Splidt, framhaldskólanemi.
16. Stefán Þór Björnsson, viðskiptafræðingur.
17. Gunnar Guðbjörnsson, óperusöngvari og skólastjóri Söngskóla Sigurðar Demetz.
18. Lárus Sigurður Lárusson, lögmaður.
19. Inga Þyrí Kjartansdóttir, f.v. framkvæmdastjóri.
20. Níels Árni Lund, f.v. skrifstofustjóri og varaþingmaður.
21. Hörður Gunnarsson, f.v. ráðgjafi og glímukappi.
22. Sigrún Magnúsdóttir, f.v. ráðherra.