Categories
Fréttir

Orri Hlöðversson kjörinn oddviti Framsóknar í Kópavogi

Deila grein

08/02/2026

Orri Hlöðversson kjörinn oddviti Framsóknar í Kópavogi

Á fundi fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Kópavogi í dag var Orri Vignir Hlöðversson kjörinn oddviti Framsóknar í Kópavogi og mun leiða flokkinn í komandi sveitarstjórnarkosningum. Orri er bæjarfulltrúi Framsóknar og formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar. Hann leiddi lista Framsóknar í sveitarstjórnarkosningunum 2022.

Orri er fæddur árið 1964 og uppalinn í Kópavogi. Hann lauk BA-gráðu í alþjóðastjórnmálum og hagfræði frá California State University í Sacramento árið 1993.

Orri hefur víðtæka reynslu bæði úr stjórnsýslu og atvinnulífinu auk þess að taka virkan þátt í ýmsum félagsstörfum. Orri hefur meðal annars starfað sem bæjarstjóri Hveragerðisbæjar og um árabil sem forstjóri Frumherja og síðar stjórnarformaður.

Í öðru sæti í kosningunni hafnaði Björg Baldursdóttir, bæjarfulltrúi. Í þriðja sæti hafnaði Gunnar Sær Ragnarsson, í fjórða sæti varð Svava Friðgeirsdóttir og Heiðdís Geirsdóttir í því fimmta.