Categories
Fréttir

Rafrænt prófkjör Framsóknar í Reykjanesbæ

Deila grein

06/02/2026

Rafrænt prófkjör Framsóknar í Reykjanesbæ

Rafrænt prófkjör Framsóknar í Reykjanesbæ hefst á miðnætti og stendur til klukkan 18:00 laugardaginn 7. febrúar. Rétt til þátttöku eiga þeir sem skráðir voru í félagið 1.febrúar og eiga lögheimili í Reykjanesbæ.

Til að greiða atkvæði er hægt að smella á þessa slóð: kos.is/framsokn

Þeir sem eru ekki með rafræn skilríki eða auðkennisapp geta komið í kosningamiðstöð félagsins að Hafnargötu 62 í Reykjanesbæ og fengið aðstoð við að greiða atkvæði. Einnig er veitt aðstoð í síma 8585708 og hægt er að senda póst á rnb@framsokn.is.

Í framboði eru:

  • Birgir Már Bragasonframkvæmdastjóri Keflavíkur, sækist eftir 2.–4. sæti.
  • Díana Hilmarsdóttir, forstöðumaður Björginni geðræktarmiðstöð, sækist eftir 2.–3. sæti.
  • Fida Abu Libdehframkvæmdastjóri Geo Silica, sækist eftir 2.–3. sæti.
  • Gunnar Jón Ólafsson, verkefnastjóri eldvarnaeftirlits hjá BS, sækist eftir 3.–4. sæti.
  • Halldóra Fríða Þorvaldsdóttirverkefnastjóri hjá Reykjanesbæ, sækist eftir 1. sæti.
  • Róbert Jóhann Guðmundssonmálarameistari, sækist eftir 2. sæti.
Framsókn fyrir Reykjanesbæ – tökum þátt!