Í kjölfar nýrrar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að framlengja strandveiðar um 48 daga, vekur Ingibjörg Isaksen, alþingismaður og formaður þingflokks Framsóknar, athygli á því að slík ákvörðun brjóti í bága við ráðleggingar Hafrannsóknastofnunar og geti stefnt sjálfbærni auðlinda í hættu.
„Við höfum heyrt þingmenn og ráðherra úr Viðreisn og Samfylkingu tala fyrir ábyrgri nýtingu og mikilvægi þess að fylgja ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Nú, þegar á reynir, eru þeir tilbúnir að víkja frá þeirri meginreglu – til að tryggja pólitísk markmið um 48 daga strandveiðar, jafnvel þó hætta sé á að ofveiði skapist,“ segir Ingibjörg Isaksen og bætir við: „Það virðist vera seinni tíma vandamál sem fresta á til næsta kjörtímabils.“
Ingibjörg bendir á að Hafrannsóknastofnun hafi ítrekað varað við þessari leið og talið hana ekki í samræmi við aflareglu sem fylgt hefur verið hingað til. „Hafrannsóknastofnun segir þetta ekki í samræmi við aflareglu sem fylgt hefur verið og að breytingarnar geti stefnt sjálfbærni í hættu. Ekkert samráð hafi átt sér stað við stofnunina,“ segir hún og veltir því upp hvers vegna stjórnvöld kjósi að hunsa faglega ráðgjöf í þágu pólitískra ákvarðana.
„Hvers vegna er pólitísk ákvörðun látin vega þyngra en varfærin og fagleg ráðgjöf um sjálfbæra nýtingu sameiginlegra auðlinda?“ spyr Ingibjörg.
Að hennar mati verði að tryggja jafnræði og fyrirsjáanleika fyrir strandveiðimenn, en slíkt verði aðeins gert á traustum grunni sjálfbærrar nýtingar.
„Það er mikilvægt að tryggja jafnræði og fyrirsjáanleika fyrir strandveiðimenn. Það verður þó að gerast á grunni traustrar, gagnsærrar og sjálfbærrar stefnu. Ekki með aðferð sem Hafrannsóknastofnun varar við og hefur ekki verið prófuð,“ segir hún að lokum.
Við höfum heyrt þingmenn og ráðherra úr Viðreisn og Samfylkingu tala fyrir ábyrgri nýtingu og mikilvægi þess að fylgja…
Posted by Ingibjörg Isaksen on Föstudagur, 30. maí 2025