Harðorð gagnrýni hefur komið fram síðustu daga á frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á almannatryggingum, þar sem meðal annars er lagt til að skerða lífeyrisréttindi á almennum vinnumarkaði til að bæta kjör örorkulífeyrisþega.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar, segir að með frumvarpinu sé „með einu pennastriki“ verið að lækka eftirlaun þeirra sem hafa greitt í lífeyrissjóði alla starfsævina. „Um leið rýra framtíðarréttindi verkafólks á almennum vinnumarkaði um 5-6%,“ segir hann og bætir við að málið hafi verið „keyrt áfram rétt fyrir þinglok“ og án nægilegs samráðs.
Sigurður Ingi leggur áherslu á að Framsókn styðji bætt kjör örorkulífeyrisþega, en ekki með þeim hætti sem frumvarpið gerir ráð fyrir. „Það gerum við ekki með því að skerða áunnin, stjórnarskrárvarin réttindi fólks. Verkalýðshreyfingin, eldri borgarar og atvinnulífið hafa öll varað við afleiðingunum.“
„Þjóðfélagshópum er stillt upp hvorum gegn öðrum. Málið er hroðvirknislega unnið, og ef þetta er dæmi um frábæra verkstjórn ríkisstjórnarinnar þá eru mjög fáir sammála því,“ segir hann og krefst þess að frumvarpinu verði hafnað. „Í grundvallarmáli sem þessu krefjumst við vandaðra vinnubragða, betri greininga og raunverulegs samráðs.“
LÍV varar einnig við áhrifum frumvarpsins
Stjórn Landsambands íslenskra verslunarmanna (LÍV) hefur einnig lýst yfir miklum áhyggjum af frumvarpinu. Í tilkynningu frá sambandinu segir að verði frumvarpið samþykkt muni það „grafa undan samtryggingarkerfi lífeyrissjóða“ og leiða til „eignaupptöku frá ellilífeyrisþegum til örorkulífeyrisþega“.
„Sú tilfærsla sem lögð er til í frumvarpinu mun hafa neikvæð áhrif á lífskjör eftirlaunaþega þar sem tekjur þeirra verða lægri,“ segir í yfirlýsingu stjórnar LÍV. Þar kemur jafnframt fram harð mótmæli við því að stjórnvöld „rjúfi samkomulag sem gert var við aðila vinnumarkaðarins“ án þess að forsendur hafi breyst eða nýtt fyrirkomulag hafi verið samið.
LÍV segir frumvarpið háð „alvarlegum annmörkum“ og krefst samráðs við lífeyrissjóði og aðila vinnumarkaðarins. Samkvæmt sambandinu sé eðlilegt að stjórnvöld tryggi framfærslu örorkulífeyrisþega, en ekki með lausnum sem veikja stoðir lífeyriskerfisins.
Formaður eldri borgara: „Ríkið má ekki etja hópunum saman“
Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara, tekur í sama streng og segir að frumvarpið hafi í för með sér „umtalsverðar skerðingar til ellilífeyrisþega“. Hann segir að ríkisvaldið verði að koma til móts við lífeyrissjóðina til að forða því að skerðingar bitni á eldri borgurum.
„Með þessu frumvarpi þá er raunverulega verið að lofa öryrkjum að hækka við þá bæturnar, en á móti… þá mun það hafa áhrif á ellilífeyrinn til lækkunar,“ segir hann og varar við því að „etja þessum tveimur hópum saman.“
„Við viljum að þetta nái fram að ganga með öryrkjana… en ríkisvaldið verður að jafna þessa byrði svo það verði ekki skerðingar hjá láglaunafólki í almennu verkamannasjóðunum.“
Óvissa um framhald málsins á lokaspretti þingsins
Frumvarpið er nú í meðförum Alþingis, en mótstaða virðist vera að aukast bæði innan þings og utan. Meðal gagnrýnenda eru stjórnarandstaðan, verkalýðsfélög og félagasamtök eldri borgara. Ljóst er að málið mun skapa miklar umræður á lokaspretti þingsins.
Stjórnarskrárbrot á kostnað verkafólks Með einu pennastriki hyggst ríkisstjórnin lækka eftirlaunin hjá fólki sem hefur…
Posted by Sigurður Ingi Jóhannsson on Föstudagur, 13. júní 2025