Categories
Fréttir

Sveitarfélög gagnrýna frumvarp um tvöföldun veiðigjalda

Deila grein

03/06/2025

Sveitarfélög gagnrýna frumvarp um tvöföldun veiðigjalda

Þórarinn Ingi Pétursson, alþingismaður, ræddi í störfum þingsins um tvöföldun veiðigjalda. Hann vakti athygli á fjölda umsagna frá sveitarfélögum víða um land þar sem lýst er áhyggjum af áhrifum frumvarpsins á atvinnulíf og tekjur sveitarfélaga.

„Það er ágætt að sjá hversu mörg sveitarfélög hafa sent inn umsagnir þar sem þau lýsa sínum áhyggjum af þeim áhrifum sem þetta frumvarp getur haft,“ sagði Þórarinn Ingi.

„Mig langar hér, virðulegur forseti, með þínu leyfi, að grípa niður í nokkra punkta í umsögnum þessara sveitarfélaga sem sent hafa inn umsögn og þá byrja ég bara á lestrinum hvað það varðar.

  • Suðurnesjabær segir að núverandi ríkisstjórn sé ekki að bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga eins og lofað hafi verið.
  • Grindavíkurbær: Aðgerðirnar „veiki forsendur atvinnulífs í bænum …“
  • Vestmannaeyjar koma þarna á eftir og segja óásættanlegt að ráðherra og ríkisstjórn leggi fram frumvarp um tvöföldun veiðigjalda án þess að hafa betri upplýsingar.
  • Sveitarfélagið Hornafjörður: Frumvarpið fullnægi ekki „kröfum um lög og góðar stjórnsýsluvenjur …“
  • Fjarðabyggð: Frumvarpið geti „grafið undan rekstrarhæfni útgerða í brothættum byggðum …“
  • Langanesbyggð sér fram á að missa bróðurpartinn af útsvarstekjum sínum.
  • Norðurþing: Þar skortir að þeirra mati mat á fjárhagslegum áhrifum, m.a. vegna þess að vinnslan fer oft fram í öðrum sveitarfélögum en þar sem útgerðin á t.d. lögheimili.
  • Hjá Grýtubakkahreppi kemur fram að of seint sé að fara í ákveðna greiningarvinnu þegar neikvæð áhrif hafi þegar komið fram.

Þórarinn Ingi tók skýrt fram í ræðu sinni: „Ég neita að trúa því að svo sé komið fyrir ríkisstjórnarflokkunum að ekki eigi að hlusta á þessar áhyggjur fyrrgreindra sveitarfélaga.“