Ein af grunnstoðum íslensks atvinnulífs er landbúnaður. Eyjafjörður er rótgróið landbúnaðarhérað með blómlegum byggðum og stórum þjónustu- og úrvinnslufyrirtækjum á sviði landbúnaðar.
Líta má á nýjar og breyttar áherslur t.d. tengdar ESB, niðurfellingu tolla, meiri sveigjanleika við innflutning á fersku kjöti o.fl. þætti sem töluverða ógn við bændur og þeirra starfsemi. En sú ógn einskorðast alls ekki við þá sem vinna í frumgreininni og ætla ég að varpa smá ljósi á mikilvægi landbúnaðar fyrir sveitarfélagið mitt, Dalvíkurbyggð.
Í tölum sem Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar tók saman um landbúnaðarmál byggðum á Hagstofutölum ársins 2016 kemur fram að í Dalvíkurbyggð eru 39 rekstraraðilar í landbúnaði og er ársvelta bújarðanna rúmlega 900 milljónir króna samtals. Ætla má að hjá hverjum þessara 39 aðila séu að jafnaði 1–3 störf sem skila útsvarstekjum inn í sveitarfélagið. Mörg fyrirtæki í sveitarfélaginu þjónusta landbúnaðinn t.d. í byggingariðnaði, vélaverkstæðin og verslanirnar. Þá kaupa bændur þjónustu og vöru af veitum sveitarfélagsins og greiða fasteignagjöld af byggingum á jörðunum. Eyjafjarðarsvæðið í heild nýtur góðs af og mörg stór úrvinnslufyrirtæki skapa störf og hafa tekjur af landbúnaði.
En það er svo mikið meira en tölur og peningaleg áhrif. Á jörðunum býr fólk, heldur sín húsdýr og ræktar sína jörð. Þar eru allt upp í þrjár kynslóðir á sama bænum að skapa verðmæti. Og verðmætin mælast ekki síður í félagslífi, samvinnu milli bæja og samkennd með nágrönnunum. Á meðan jarðirnar haldast í byggð og búskap er ásýnd sveitanna fögur og áður nefnd verðmæti til staðar. Það ríkir bjartsýni og trú á framtíðina. Um leið og búskapur leggst af og jarðir fara í eyði eða undir frístundabúsetu þá er erfiðara fyrir þá sem eftir standa að halda úti margvíslegum samfélagsverkefnum. Þess vegna er svo mikilvægt á landsvísu að standa vörð um landið og landbúnaðinn og koma lögum yfir uppkaup auðmanna á heilu sveitunum.
Við í Dalvíkurbyggð erum stolt af okkar bændum og þeirra metnaðarfullu starfsemi sem er mjög mikilvæg fyrir sveitarfélagið. Undanfarin ár hefur verið gaman að fylgjast með hvernig þeir hafa margir hverjir byggt upp og fært vinnsluhætti til nútímans. Ég vona að skilyrði, regluverk og umgjörð um landbúnaðinn verði með þeim hætti í framtíðinni að nýjar kynslóðir sjái áfram tækifæri í að helga sig þessari grundvallar atvinnugrein í okkar þjóðfélagi.
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri í Dalvíkurbyggð.
Greinin birtist fyrst á www.bbl.is 16. október 2018