Einar Þorsteinsson borgarstjóri hefur nú sýnt að hann er flestum stjórnmálamönnum fremri, sannfæring ræður för. Hann hikar ekki við að fórna starfi og stundarframa þegar ekkert miðar í þeim áformum sem hann og flokkur hans hétu Reykvíkingum og þjóðinni í málefnum höfuðborgarinnar. Stærst vegur þar sú ábyrgð að standa með lífinu, frammi fyrir þeirri lífshættu sem flugáhöfnum og farþegum er búinn á Reykjavíkurflugvelli. Þar vegur þyngst sjúkraflug með fólk í lífsáhættu þar sem ekki mínútur heldur sekúndur skipta máli. Takið eftir, oft er eins og flugvöllurinn í Vatnsmýrinni sé bara sjúkraflugvöllur landsbyggðarfólks. Reykvíkingarnir og höfuðborgarbúarnir skipta þúsundum sem eiga flugvellinum líf sitt eða ástvinar síns að launa.
Það er mikil sorgarsaga hvernig stjórnmálamenn hafa látið leiða sig út í hvert óhæfuverkið eftir annað til að slátra Reykjavíkurflugvelli með heimskulegum aðgerðum. Þrengja miskunnarlaust að flugvellinum eins og annar flugvöllur sé innan seilingar, sem loksins er viðurkennt eftir ákvörðun Einars og umræðu hans og fleiri um flugvöllinn að er ekki til staðar og ekki í sjónmáli.
Nú liggur fyrir að í Hvassahrauni eru glórulaus áform um vara- og neyðarflugvöll, sem samt er haldið áfram með. Íþróttafélagið Valur hefur með miskunnarlausum ásetningi haldið áfram að sækja leyfi til að byggja blokkir til að eyðileggja flugvöllinn, og byggingarnar eru farnar að ögra með sviptivindum flugi á flugbrautinni þeirri einu sem opin er. Svo stendur til að þrengja svo um munar að flugvellinum með risablokkum í Skerjafirði, borgin með ráðherraleyfi sem ber að afturkalla.
Loksins tókst þér Einar Þorsteinsson, á neyðarstundu þegar aðflugi að flugvellinum, neyðarbrautinni, er lokað, að fá liðið í borgarstjórninni til að skipta um skoðun, já eða þora ekki annað en að taka sjúklinga fram yfir tré. Skógarhöggið er hafið og öll þessi tré eiga að fara og byggja útivistarsvæði með göngubrautum, birkitrjám og blómum.
Forsætis-, umhverfis- og orkumálaráðherra eru gengin í lið með Einari og krefjast aðgerða. Eyjólfur Ármannsson samgönguráðherra hefur talað skýrast allra ráðherra fyrr og síðar, burt með trén. Margir eru sökudólgar í máli flugvallarins en einn mann ber þar hæst, hann ætti að spyrja í dagsbirtu hvaða skoðun hann hafi á hinni miklu neyðaraðgerð að höggva skóginn við þær aðstæður sem nú blasa við, eða lokun neyðarbrautarinnar? Og annarri enn mikilvægari neyðarbraut var áður fórnað og lokað.
Til hamingju Einar Þorsteinsson borgarstjóri, það er stálvilji og virðingarvert að hverfa frá völdum og neita að bera ábyrgð þar sem harmleikur getur átt sér stað á hverri stundu á skertum öryggisflugvelli Íslands í Reykjavík. Ég vildi ekki bera ábyrgð á þeirri stöðu. En þú lesandi minn? Lesið svo söguna á Vísi af Birni Sigurði Jónssyni sauðfjárbónda þar sem læknir hans sagði að tvær mínútur hefðu skilið á milli lífs og dauða. Hjartanu í Vatnsmýrinni blæðir nú.
Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra.
Grein birtist fyrst í Morgunblaðinu 14. febrúar 2025.