Nú eru 30 ár liðin frá stofnun Stígamóta. Stígamót voru stofnuð sem Samtök kvenna gegn kynferðisofbeldi. Aðdragandi þess var að það voru nokkrir sjálfboðaliðahópar kvenna sem höfðu komið að álíka málum og ákváðu að taka höndum saman og stofna samtökin. Stígamót, staðurinn þar sem stígar mætast, voru svo stofnuð á baráttudegi kvenna árið 1989. Þarna var stigið stórt og mikilvægt skref í réttindabaráttu kvenna. Núna starfa Stígamót sem ráðgjafar- og stuðningsmiðstöð fyrir bæði konur og karla sem hafa verið beitt hvers kyns kynferðisofbeldi.
Takk, takk
Mig langar til að nota þennan vettvang til að segja: Takk, þið konur sem stiguð þetta skref, takk fyrir hönd þeirra kvenna sem fengu þarna tækifæri til að stíga fram og létta af sér þungri byrði og fengu áheyrn og þar með bata. Takk, þið konur sem stiguð þetta skref og stöðvuðuð þá þöggun sem viðhöfð var á þessum tíma í samfélaginu okkar. Fyrir 30 árum hafði þessu málefni ekki verið sinnt af heilbrigðiskerfinu og lítt af dómskerfinu þrátt fyrir að sannarlega mætti finna viðurlög vegna kynferðislegs ofbeldis í lögum. Þá þurftu þeir sem lentu í kynferðislegu ofbeldi að klífa sextugan hamarinn í leit að réttlæti. Enn er við hamarinn að eiga en umræðan hefur skilað okkur fram á veginn.
Umræðan bætir samfélagið
Fyrsta áratug Stígamóta unnu þau að mikilvægasta verkefninu en það var að standa upp og opna þessa umræðu og berjast þar með fyrir bættu samfélagi og að umræðan um kynferðisofbeldi væri opin og viðurkennd. Þegar sú umræða fór af stað tók samfélagið við sér og sem betur fer í dag hafa félagsmála- og heilbrigðisyfirvöld styrkt sitt umhverfi í átt að heilbrigðari umræðu í þessum málum. Umræðan hefur líka opnað á afleiðingar ofbeldisins og þar með opnað á fjölbreytta meðferð til að styrkja þolendur til að lifa með því.
Þrátt fyrir að markmið Stígamóta hafi náðst með því að opna þessa umræðu í þjóðfélaginu og viðurkenna skelfilegar afleiðingar þessa ofbeldis þá verður samfélagið stöðugt að halda þessum boltum á lofti. Við náum því sennilega seint að uppræta kynferðislegt ofbeldi úr samfélaginu en stöðug umræða heldur því niðri og forðar okkur frá þöggun og meðvirkni með ofbeldinu.
Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður Framsóknar í Norðvesturkjördæmi.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 10. mars 2020.