Málefnanefnd hefur lokið við að uppfæra stefnu Framsóknar frá síðasta flokksþingi.
Nefndin hefur endurraðað ályktununum, umorðað og bætt við nýjum ályktunum.
Hóparnir á flokksþinginu munu vera að mestu leiti samsvarandi þingnefndum Alþingis.
- AMN: Allsherjar- og menntamálanefnd
- ATV: Atvinnuveganefnd
- VEL: Velferðarnefnd
- UMSAM: Umhverfis- og samgöngunefnd
- STJ: Stjórnskipunarnefnd
- UTN: Utanríkismálanefnd
- EHN: Efnahagsnefnd
Í málefnamöppunni er búið að skipta málaflokkunum, innan nefndanna, niður til að gera yfirferð þægilegri.
Hér má finna málefnamöppuna:
Við óskum eftir nýjum ályktunum og breytingartillögum frá framsóknarfélögum. Hægt er að senda inn tillögur til miðnættis 10. febrúar.
