Archives: Events
Mánudagur 7. febrúar 2022 –
Framsókn og frjálsir verða með fund mánudaginn 7. febrúar kl. 20:00 í Bárunni brugghúsi.
Dagskrá:
- Tillaga stjórnar um aðferð við val á frambjóðendum Framsóknarflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar 2022.
- Kosning uppstillingarnefndar.
- Önnur mál.
Framsókn og frjálsir á Akranesi.
Þriðjudagur 1. febrúar 2022 –
Framsóknarfélag Dalvíkurbyggðar boðar til fundar um framboðsmál Framsóknar vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. Fundurinn verður í Safnaðarheimilinu þriðjudaginn 1. febrúar kl. 17:00.
Áhugasamir frambjóðendur eru beðnir um að hafa samband við Þorstein Björnsson, í síma 892-3892.
Stjórnin.
Þriðjudagur 1. febrúar 2022 –
Boðað er til rafræns félagsfundar þriðjudagskvöldið 1. febrúar kl. 19.30. Sendur verður út linkur á mánudag til félagsmanna.
Fundarefni er undirbúningur fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí 2022.
Stjórn Framsóknarfélags Ísafjarðarbæjar
Fimmtudagur 24. mars 2022 –
Haldinn verður félagsfundur Framsónkarfélags Árborgar fimmtudaginn 24. mars að Eyravegi 15 kl. 20.00.
Dagskrá:
- Samþykkt á framboðslista Framsóknar í Árborg fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí n.k.
- Önnur mál.
Stjórnin.
Fimmtudagur 3. febrúar 2022 –
Hér með er boðað til fundar í fulltrúaráði Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði, fimmtudaginn 3. febrúar nk. kl. 20.00 að Reykjarvíkurvegi 50 (salur Nú-skólans).
Dagskrá:
- Ákvörðun um aðferð við val á framboðslista Framsóknarflokksins í Hafnarfirði í bæjarstjórnarkosningunum í vor.
- Önnur mál.
Í ljósi samkomutakmarkana vegna COVID-19 gæti dagsetning eða fyrirkomulag fundarins breyst og verður það þá auglýst eins fljótt og auðið er.
Stjórnin.
Miðvikudagur 19. janúar 2022 –
Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis og Félag ungra Framsóknarmanna á Akureyri og nágrenni boða til sameiginlegs félagsfundar miðvikudaginn 19. janúar. Fundurinn verður rafrænn og byrjar stundvíslega kl. 20:30.
Kosið í fulltrúaráð og er óskað eftir bæði almennum framboðum og framboðum í stjórn fulltrúaráðsins.
Slóð inn á fundinn verður send öllum félagsmönnum með tölvupósti en jafnframt er hægt að senda póst á framsoknakn@gmail.com og óska eftir skráningu.
Dagskrá:
1. Kosning í fulltrúaráð.
2. Boðað til fundar fulltrúaráðs.
3. Önnur mál.
Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar og nágrennis
Stjórn Félags ungra Framsóknarmanna á Akureyri og nágrennis
Miðvikudagur 15. desember 2021 –
Stjórn Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Kópavogi boðar til fulltrúaráðsfundar n.k. miðvikudag, 15. desember 2021, að Bæjarlind 14-16 í Kópavogi, kl. 19:30.
Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta, en einungis kjörnir fulltrúar félaganna í fulltrúaráðinu eiga atkvæðisrétt á fundinum.
Dagskrá:
- Aðferð við val á lista fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar.
- Önnur mál.
Stjórnin.
Miðvikudagur 24. nóvember 2021 –
Aðalfundur Framsóknarfélags Seltjarnarness verður haldinn miðvikudaginn 24. nóvember kl. 17:00 í Framsóknarhúsinu að Hverfisgötu 33 í Reykjavík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Staða og horfur í stjórnmálum.
3. Bæjarmál.
4. Önnur mál.
Nýir félagar sérstaklega boðnir velkomnir!
STJÓRNIN.
Mánudagur 1. nóvember 2021 –
Boðað er til opins félagsfundar Framsóknarfélags Fjarðabyggðar mánudaginn 1. nóvember í Þórðarbúð á Reyðarfirði kl. 19.00.
Fundarefni er undirbúningur komandi sveitarstjórnarkosninga ásamt kynningu á grænum orkugarði í Fjarðabyggð.
Boðið verður upp á súpu og nýir félagar boðnir sérstaklega velkomnir.