Boðað er til 16. Landsþings Landssambands framsóknarkvenna (LFK) laugardaginn 7. september í Framsóknarhúsinu Hverfisgötu 33, 3. hæð í Reykjavík. Skráning fer fram á skrifstofu Framsóknar í síma 540-4300 eða á netfangið framsokn@framsokn.is. Skráning fer fram til 31. ágúst. Mikilvægt er að konur skrái sig tímanlega vegna undirbúnings þingsins.
Þinggjöld eru 1.500 kr. Innifalið í þinggjöldum eru þinggögn, súpa og brauð í hádeginu, kaffi og með því.
Framsóknarkonur vítt og breytt um landið eru því beðnar um að taka þessa daga frá og að taka þátt í öflugu landsþingi LFK og stemmingu sem enginn verður svikin af!
Uppstillingarnefnd hefur hafið störf. Vinsamlega látið vita af framboði ykkar til hennar:
- Elín Gunnarsdóttir – tysvellir@simnet.is – 863 2085
- Guðmunda Vala Jónasdóttir – vala@fell.is – 866 8002
Drög að dagskrá:
Laugardagur 7. september 2013
09.00 Þingsetning
09.05 Kosning starfsmanna þingsins:
– Kosning þingforseta
– Kosning þingritara
– Kosning starfsnefndar (3)
09.10 Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fram / umræður
09.40 Ávarp félags- og húsnæðismálaráðherra Eyglóar Harðardóttur
10.00 Kaffihlé
11.15 Málefnahópar kynntir – taka til starfa:
Hópur 1 – Stjórnskipun, mannréttindi, lýðræði og utanríkismál
Hópur 2 – Efnahagsmál
Hópur 3 – Atvinna, samgöngur og umhverfi
Hópur 4 – Menntun, menning og íþróttir
Hópur 5 – Velferð
Hópur 6 – Lagabreytingar og aðrar tillögur
12.00 Hádegishlé
14.30 Niðurstöður hópvinnu og tillögur lagðar fyrir þingið – umræður
15.20 Lagabreytingar
15.30 Kosningar:
– Formaður
– Framkvæmdastjórn (4) og varastjórn (2)
– Landsstjórn (6) og varastjórn (6)
– Skoðunarmenn reikninga (2)
– Varaskoðunarmenn reikninga (2)
15.45 Önnur mál
16.00 Þingslit
Framkvæmdastjórn LFK áskilur sér rétt til breytinga á dagskrá þingsins.
FRAMKVÆMDASTJÓRN LFK