Póstkosning fór fram um sex efstu sæti framboðslista flokksins í kjördæminu fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021.
Kosningin stóð yfir frá 1. til 31. mars sl. Á kjörskrá voru 2.207. Niðurstaðan er þessi:
- sæti, Ingibjörg Ólöf Isaksen, framkvæmdastjóri Læknastofu Akureyrar. Hún fékk 612 atkvæði í 1. sæti.
- sæti, Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður Fáskrúðsfirði. Hún fékk 529 atkvæði í 1.-2. sæti.
- sæti, Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi Grýtubakkahreppi. Hann fékk 741 atkvæði í 1.-3. sæti.
- sæti, Helgi Héðinsson, oddviti Skútustaðahrepps. Hann fékk 578 atkvæði í 1.-4. sæti.
- sæti, Halldóra Hauksdóttir, lögmaður Akureyri. Hún fékk 547 atkvæði í 1.-5. sæti.
- sæti, Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi Kelduhverfi. Hann fékk 496 atkvæði í 1.-6. sæti.
Aðrir sem tóku þátt í póstkosningunni voru:
Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, Karítas Ríkharðsdóttir, blaðamaður, Raufarhöfn, og Jónína Brynjólfsdóttir, viðskiptalögfræðingur Egilsstöðum.