Landssamband framsóknarkvenna (LFK) vill hvetja konur til þess að gefa kost á sér á lista fyrir Framsókn í komandi kosningum. Mikilvægt er að rödd kvenna heyrist ásamt því að konur eru afar mikilvægar fyrirmyndir. Framsókn hefur verið leiðandi í kynjajafnrétti og við viljum halda því áfram þar sem sýnileiki kvenna eykur líkur á að gildi og viðhorf beggja kynja gefi farsælli sókn til framtíðar.
Einnig vill LFK vekja athygli á að í grein 15.8 í lögum flokksins segir: „Við skipan í trúnaðar- og ábyrgðarstöður innan flokksins sem og við val á framboðslista hans skal hlutur hvors kyns ekki vera lægri en 40% nema þegar gagnsæjar og augljósar ástæður eru því til fyrirstöðu. Jafnréttisnefnd og LFK skulu eftir þörfum vera til ráðgjafar um að ná markmiði þessu fram.“
Categories
Mikilvægt er að rödd kvenna heyrist
11/08/2016
Mikilvægt er að rödd kvenna heyrist