42. Sambandsþing Sambands ungra Framsóknarmanna (SUF) var haldið 17.-18. febrúar í Kópavogi og gekk þingið fram úr björtustu vonum. Ný stjórn var kjörin ásamt nýjum formanni. Nýr formaður SUF Sandra Rán Ásgrímsdóttir er 26 ára sjálfbærniverkfræðingur. Sandra Rán er fimmta konan til að gegna embætti formanns SUF í 79 ára sögu sambandsins.
Sandra Rán útskrifaðist með B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands 2013 og meistaragráðu í sjálfbærniverkfræði frá háskólanum í Cambridge 2015. Hún starfar í dag sem verkfræðingur. Sandra er fædd og uppalin á Höfn í Hornafirði en hefur búið í Reykjavík og erlendis frá 2010. Hún hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum innan SUF síðustu ár, verið ritari, gjaldkeri og formaður alþjóðanefndar. Hún hefur sótt viðburði erlendis fyrir sambandið og er varaformaður Ungliðahreyfingar norrænna miðjuflokka (NCF). Þá á hún sæti í miðstjórn og hefur verið á framboðslista flokksins í Suðurkjördæmi í síðustu tvennum þingkosningum.
Aðrir sem voru kosnir í aðastjórn SUF á nýliðnu þingi eru eftirfarandi:
Páll Marís Pálsson – Suðvestur
Guðmundur Hákon Hermannsson – Suðvestur
Fjóla Hrund Björnsdóttir – Suður
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir – Norðvestur
Hinrik Bergsson – Reykjavík
Róbert Smári Gunnarsson – Norðvestur
Snorri Eldjárn Hauksson – Norðaustur
Tanja Rún Kristmannsdóttir – Norðaustur
Bjarni Dagur Þórðarson – Suðvestur
Gauti Geirsson – Norðvestur
Hildur Guðbjörg Benediktsdóttir – Suður
Marta Mirjam Kristinsdóttir – Reykjavík
Málefnaályktanir SUF 2017
Categories
Nýr formaður SUF Sandra Rán Ásgrímsdóttir
20/02/2017
Nýr formaður SUF Sandra Rán Ásgrímsdóttir