Ingibjörg Isaksen, alþingismaður og formaður þingflokks Framsóknar, kynnti í störfum þingsins að hún muni leggja fram þingsályktunartillögu sem hefur að markmið að tryggja áframhaldandi stuðning við geðendurhæfingu ungmenna með fjölþættan vanda. Tilefnið er að starfsemi Janusar endurhæfingar, sem þjónustað hefur ungt fólk með alvarlegan geðrænan og félagslegan vanda í yfir 25 ár, stendur frammi fyrir lokun án þess að sambærilegt úrræði komi í staðinn.
Loforð stjórnvalda
Ingibjörg vakti athygli á því að stjórnvöld hafi ítrekað lýst yfir vilja sínum til að efla geðheilbrigðisþjónustu, sérstaklega fyrir ungt fólk. Hún benti á að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar sé lögð sérstök áhersla á þessi mál, auk þess sem fjölbreytt rekstrarform eigi að fá að njóta sín.
„Við þekkjum öll setningarnar; geðheilbrigðismál í forgang, sérstök áhersla á þjónustu við ungt fólk, fjölbreytt rekstrarform á að fá að njóta sín,“ sagði Ingibjörg. „En orð duga skammt ef ábyrgð fylgir ekki.“
Hvers vegna að loka Janusi endurhæfingu?
Í ræðu sinni gagnrýndi hún þá ákvörðun að loka Janusi endurhæfingu án útskýringa og án þess að kynna valkost í staðinn. „Það sem hefur virkað er nú lagt niður og engin sambærileg lausn er tilbúin í staðinn,“ sagði hún og bætti við að fyrir marga skjólstæðinga hafi þetta ekki verið valkostur, heldur líflína. „Þjónustan hefur skipt sköpum og fyrir marga því verið beinlínis lífsspursmál.“
Tillagan sem Ingibjörg leggur fram felur í sér bráðabirgðasamning, samráð við fagfólk og notendur og vinnu að framtíðarskipulagi. Að hennar mati er þetta nauðsynleg brú milli þess sem hefur virkað og framtíðarsýnar í geðheilbrigðisþjónustu fyrir ungt fólk.
Ingibjörg kallaði eftir ábyrgð frá þingmönnum meirihlutans og hvatti til þess að orð í stjórnarsáttmála verði látin fylgja með raunverulegum aðgerðum. Hún lagði áherslu á að þetta mál snúist ekki um hana sjálfa né um Janus endurhæfingu sem stofnun, heldur um rétt ungs fólks til árangursríkrar þjónustu:
„Þetta snýst ekki um mig og þetta snýst ekki um Janus endurhæfingu, þetta snýst um unga fólkið okkar og hvort það eigi rétt á að fá þjónustu sem virkar eða ekki.“